Ný vísbending er nú tilbúin í litlu ráðgátunni okkar. Í þessari vísbendingu klárum við stóra ferninginn sem við byrjuðum á í síðustu viku. Við eigum eftir 4 umferðir og lykkjurnar eru nánast þær sömu, en það er smá breytileiki sem mynda fallegt form á ferningnum. Eins og áður þá finnur þú alla mynsturteikninguna og myndband neðst á síðunni!
Fyrstu 6 umferðirnar í A.2 hafa nú þegar verið heklaðar, nú á að hekla 7.-10. umferð með þessum litum:
7. UMFERÐ: fjólublár
8. UMFERÐ: hvítur
9. UMFERÐ: ljós þveginn
10. UMFERÐ: hvítur
LEIÐSÖGN VARÐANDI LITI:
Notar þú aðra litasamsetningu en þá sem við notum hér?
Merktu þá hjá þér hvaða litanúmer þú setur í staðin áður en þú byrjar, þú getur fundið yfirlit yfir litanúmerinhér.
HEKLLEIÐBEININGAR:
Það sem stendur á milli tveggja * á að endurtaka í hvert skipti þar sem stendur frá *-* í uppskrift.
Rauðu táknin í mynsturteikningu eru útskýrð í texta yfir myndum.
Takið fram fyrsta ferninginn sem við gerðum í vísbendingu #4.
7. UMFERÐ:
Skiptið yfir í fjólubláan - LESIÐ LITASKIPTI að neðan, klippið ljós fjólubláa þráðinn. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í/um hverja af 5 næstu lykkjunum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í hverja af 3 næstu lykkjum.
LITASKIPTI:
Til að fá fallega skiptingu þegar skipt er um lit er síðasta lykkjan í umferð hekluð með nýja litum.
HORN:
Heklið 2 fastalykkjur um loftlykkjubogann, 3 loftlykkjur, 2 fastalykkjur um sama loftlykkjuboga.
Heklið * 1 fastalykkju í hverja af 3 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í/um hverja af 5 næstu lykkjum, heklið «1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐUL» þannig: Bregðið bandinu 3 sinnum um heklunálina, færið heklunálina í kringum toppinn á kúlunni frá 5. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur), bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina og dragið bandið undir kúluna (= 5 lykkjur á heklunálinni), ** bregðið bandinu um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum þær 2 fyrstu/næstu lykkjur á heklunálinni **, endurtakið frá **-** alls 4 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni.
Haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja og eina af 3 næstu lykkjunum, 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL um sama topp á kúlu frá 5. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur), 1 fastalykkja í/um hverja og eina af 5 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 næstu lykkjum *. Endurtakið HORN og frá *-* 3 sinnum alls, heklið HORN.
Heklið 1 fastalykkju í hverja af 3 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í/um hverja af 5 næstu lykkjum, heklið 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL um toppinn á kúlu frá 5. umferð. Heklið 1 fastalykkju í hverja af 3 næstu lykkjum, 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL um sama topp á kúlu frá 5. umferð.
Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. Skiptið yfir í hvítt og klippið fjólubláa þráðinn frá.
8. UMFERÐ:
Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í/um hverja af 6 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðull í hverja af 3 næstu lykkjum.
HORN:
Heklið 2 stuðla um loftlykkjubogann, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga.
Heklið * 1 stuðul í hverja af 3 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðull í/um hverja af 9 næstu lykkjum, heklið KÚLA í næstu lykkju þannig: Heklið 4 stuðla í sömu lykkju, sleppið lykkju frá síðasta stuðli af heklunálinni, stingið heklunálinni inn framan í toppinn á fyrsta stuðli sem var heklaður, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið hana í gegnum lykkjuna á heklunálinni. Heklið 1 stuðul í/um hverja af 9 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í hverja af 3 næstu lykkjum *.
Endurtakið HORN og frá *-* 3 sinnum alls, heklið HORN.
Heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í/um hverja af 9 næstu lykkjum, heklið KÚLA í næstu lykkju, 1 stuðul í hverja af 2 næstu lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Skiptið yfir í ljós þveginn, ekki klippa hvíta þráðinn frá.
9. UMFERÐ:
Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðull í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðull í/um hverja af 3 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðull í hverja af 3 næstu lykkjum.
HORN:
Heklið 2 stuðla um loftlykkjubogann, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga.
Heklið * 1 stuðul í hvern af 3 næstu stuðlum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í/um hvern af 3 næstu stuðlum, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í næstu lykkju.
Heklið 1 FJÓRBRUGÐINN STUÐUL þannig: Bregðið bandinu 4 sinnum um heklunálina, færið heklunálina í kringum þríbrugðna stuðulinn frá 7. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur), bregðið bandi um heklunálina og dragið uppsláttinn undir þríbrugðna stuðulinn (= 6 lykkjur á heklunálinni), ** bregðið bandi um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu/næstu lykkjur á heklunálinni **, endurtakið frá **-** alls 5 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni.
Heklið enn einn FJÓRBRUGÐINN STUÐUL í kringum hina þríbrugðnu stuðlana frá 7. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig lína liggur), hoppið yfir KÚLA, 1 stuðull í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í/um hverja af 3 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í hverja af 3 næstu lykkjum *.
Heklið HORN og frá *-* 3 sinnum alls, heklið HORN.
Heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í/um hverja af 3 næstu stuðlum, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í næstu lykkju, heklið 1 FJÓRBRUGÐINN STUÐUL í kringum þríbrugðna stuðulinn frá 7. umferð (sjá í mynsturteikningu hvert línan liggur). Hoppið yfir KÚLA, heklið enn einn FJÓRBRUGÐINN STUÐUL í kringum þríbrugðna stuðulinn frá 7. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur), 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Skiptið yfir í hvítt og klippið frá ljós þvegna þráðinn.
10. UMFERÐ:
Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur um loftlykkjubogann, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í/um hverja af 9 næstu lykkjum.
HORN:
Heklið 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 2 fastalykkjur um sama loftlykkjuboga.
Heklið * 1 fastalykkju í/um hverja af 9 næstu lykkjum, 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í/um hverja af 8 næstu lykkjum, 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í/um hverja af 9 næstu lykkjum *, endurtakið HORN og frá *-* 3 sinnum alls.
Heklið 1 fastalykkju í/um hverja af 9 næstu lykkjum, 2 fastalykkjur um loftlykkjubogann, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í/um hverja af 7 næstu lykkjum, 1 keðjulykkja í loftlykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið alla enda.
Nú þarft þú bara að hekla 7.-10. umferð á hinum ferningunum frá vísbendingu #4 í eftirfarandi litum:
7. UMFERÐ: bleikur
8. UMFERÐ: hvítur
9. UMFERÐ: fjólublár
10. UMFERÐ: hvítur
Hér séðu hvernig báðar þessar litasamsetningar með mynsturteikningu A.2 líta út. Ferningarnir eiga að vera 25 x 25 cm.
= | loftlykkja | |
= | keðjulykkja í/um lykkju | |
= | fastalykkja í lykkju | |
= | fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga | |
= | stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga | |
= | stuðull í lykkju | |
= | 3 loftlykkjur | |
= | KÚLA: Heklið 4 stuðla í sömu lykkju, sleppið lykkju frá síðasta stuðli af heklunálinni, stingið heklunálinni inn framan í toppinn á fyrsta stuðli sem var heklaður, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið hana í gegnum lykkjuna á heklunálinni. | |
= | Við hvern punkt í mynsturteikningu er heklað um lykkjuna sem línan liggur til. 7. UMFERÐ: Heklið 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐUL um toppinn á kúlu frá 5. Umferð (ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL = Bregðið bandinu 3 sinnum um heklunálina eins og útskýrt er í uppskrift, bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina og dragið bandið undir kúluna (= 5 lykkjur á heklunálinni), * bregðið bandinu um heklunálina, dragið bandið í gegnum þær 2 fyrstu/næstu lykkjunum á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni. 9. UMFERÐ: Heklið 1 FJÓRBRUGÐINN STUÐUL í kringum þríbrugðna stuðulinn frá 7. umferð (FJÓRBRUGÐINN STUÐULL = Bregðið bandinu 4 sinnum um heklunálina, færið heklunálina í kringum lykkjuna eins og útskýrt er í uppskrift, bregðið bandi um heklunálina og dragið uppsláttinn undir þríbrugðna stuðulinn (= 6 lykkjur á heklunálinni), * bregðið bandi um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu/næstu lykkjur á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni. |
Í þessum myndböndum sýnum við allar þær aðferðir sem þú þarf að geta gert í vísbendingu #5.
Stefani wrote:
I've fallen a bit behind, but I'm really enjoying myself because I'm able to take it with me easily. Thanks
11.04.2017 - 04:46