Open Country Skirt |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Heklað pils með áferðamynstri úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar/endar þegar heklað er í hring. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR – Á við um þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjur (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls). Endið umferð með 1 stuðli og í 3. loftlykkju, þessi stuðull er heklaður til að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið og hoppað er yfir í næstu umferð. ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja (t.d. 156 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 26. Í þessu dæmi eru heklaðar 25. og 26. hver lykkja saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það er 10 cm klauf neðst á pilsinu, stykkið er fyrst heklað fram og til baka í 2 stykkjum þar til klaufin hefur verið hekluð til loka, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins allan tímann. Að lokum er heklaður kantur fyrir tölu. FRAMSTYKKI: Heklið 78-84-90-96-108-120 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA með Muskat með heklunál 4. ÖLL MÁL ERU GERÐ HÉÐAN! Snúið stykkinu og heklið til baka þannig: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur. Snúið og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju til baka. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir ca 10 cm er stykkið lagt til hliðar og bakstykkið er heklað, stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé 2., 4. eða 6. umferð í mynsturteikningu, þetta er mikilvægt til að mynstrið verði rétt frá réttu þegar heklað er í hring. BAKSTYKKI: Heklið 78-84-90-96-108-120 loftlykkjur með Muskat með heklunál 4. Snúið og heklið til baka þannig: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur. Snúið og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju til baka. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist 10 cm – endið í sömu umferð og á framstykki. PILS eftir klauf: Haldið áfram með mynstur – heklið fyrst lykkjur frá réttu yfir framstykki, síðan eru lykkjur heklaðar frá réttu yfir bakstykki, að lokum er umferðin hekluð saman með keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, heklið loftlykkjur í A.2, snúið stykkinu og heklið til baka frá röngu. Stykkið er síðan heklað í hring, en stykkinu er snúið í hverri umferð, þannig að heklað er bæði frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í öllu stykkinu. Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis = hliðar. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 = 156-168-180-192-216-240 lykkjur í umferð (A.2 er ekki talið með í lykkjufjölda). Þegar A.1 hefur verið heklað 3 sinnum á hæðina er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og ÚRTAKA-2 (jafnt yfir). Fækkið lykkjum svona í öðrum hverjum cm alls 6 sinnum = 120-132-144-156-180-204 stuðlar. Þegar stykkið mælist 30-32-34-36-38-40 cm heklið fram og til baka, í lokin er heklaður kantur fyrir tölur yfir efstu 10 cm. Stykkinu er ekki snúið við með A.2, heldur er heklað fram og til baka þannig að það myndist klauf efst í annarri hliðinni – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram fram og til baka með stuðlum þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm. Heklið síðan fram og til baka með fastalykkjum. Haldið áfram þar til stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm. Klippið þráðinn og festið. HNESLUR: Meðfram hlið á opi sem situr á framstykki eru heklaðar 3 hneslur/lykkja fyrir tölu þannig (byrjið neðst): 4 fastalykkjur um 2 fyrstu umferðir með stuðlum, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, * heklið 4 fastalykkjur um 2 næstu stuðlaumferðir/í 4 næstu fastalykkjuumferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 2 fastalykkjur í 2 síðustu fastalykkju umferð efst, snúið og heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga. Klippið þráðinn og festið. FALDUR FYRIR TÖLUR: Meðfram hinni hliðinni á opi eru heklaðar 5 umferðir með fastalykkjum fram og til baka (í 1. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð og 1 fastalykkja um hverja fastalykkjuumferð). Klippið þráðinn og festið . Saumið tölur í faldinn. SKRAUTKANTUR: Skrautkanturinn er heklaður í kringum kantinn neðst – einnig upp og niður meðfram hvorri klauf. Skrautkanturinn er heklaður með heklunál 4 með Muskat þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fastalykkju *. Heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Randi Hustad wrote:
Hei, hvor finner jeg diagram A1?
14.06.2023 - 22:16DROPS Design answered:
Hei Randi, Diagram og målskissen er på bunn av sida. God fornøyelse!
15.06.2023 - 08:32Cheyenne wrote:
Ik snap niet hoe ik a2 moet doen van dit patroon
08.11.2022 - 21:48DROPS Design answered:
Dag Cheyenne,
A.2 geeft aan hoe de toeren beginnen en eindigen. Nadat je A.1 hebt gebreid, brei je een halve vaste in de 3e losse van het begin van de toer om de toer te sluiten en dan brei je 3 lossen om de volgende toer te beginnen. Vervolgens haak je weer A.1 in de rondte.
10.11.2022 - 17:11Elin Eide-robertsen wrote:
Hei. Er det ikke mulig å få en hekleoppskrift på dette skjørtet og ikke i diagram?
11.08.2021 - 19:42DROPS Design answered:
Hei Elin, Dessverre, har vi den oppskriften bare i diagram for øyeblikket, . Hilsen Drops Team.
16.08.2021 - 09:10Gunilla wrote:
Var ser jag måtten till varje storlek?
05.05.2021 - 10:26DROPS Design answered:
Hej Gunilla. Du hittar en måttskiss längst ner på mönstret, under diagrammet som visar mått i alla storlekar i cm. Mvh DROPS Design
05.05.2021 - 11:01