Snack Sack |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Hekluð taska / net með ástarhnútum úr DROPS Belle.
DROPS 221-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Taktu í hlekkinn (= punktur D) þegar heklað er, þannig næst hringlaga og loftkennt form á ástarhnútinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í 2 stykkjum frá öðru horninu og síðan upp að gagnstæðu horni – sjá teikningu. Hekluð eru 2 alveg eins stykki sem síðan eru hekluð saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum efsta hlutann á töskunni / netinu jafnframt því sem handfangið er gert. TASKA / NET: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Sjá mynsturteikningu með máli hvernig stykkið er heklað. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU í útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju (= C í A.1) með heklunál 3 með Belle. Heklið 1 ástarhnút þannig: * Dragið lykkjuna á heklunálinni ca 0,5 cm til 1 cm langa, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, stingið heklunálinni inn í gegnum hlekkinn (sjá A.2 – hlekkur = D í A.2) sem myndaðist í gegnum aftan við löngu lykkjuna – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum hlekkinn (= 2 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= 4 ástarahnútar) og tengið saman í 1 rúðu með 1 fastalykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð (= C). UMFERÐ 2: Snúið stykkinu, heklið 3 ástarhnúta, 1 fastalykkju í 3. ástarhnút frá 1. umferð, heklið 3 ástarhnúta og 1 fastalykkju í 2. ástarhnút frá 1. umferð (= 2 rúður í umferð). UMFERÐ 3: Snúið stykkinu, heklið 1 ástarhnút og festið með 1 fastalykkju í 2. ástarhnút frá fyrri umferð (þ.e.a.s. í síðustu rúðu sem var hekluð) – nú hefur þú snúið við (= svart svæði í mynsturteikningu) þannig að nú ertu tilbúin til að hekla áfram í þessari umferð þannig: Heklið 3 ástarhnúta, 1 fastalykkju efst í síðustu rúðu frá fyrri umferð, 2 ástarhnútar, 1 fastalykkja efst í næstu rúðu, 3 ástarhnútar, 1 fastalykkja í 1. ástarhnút í fyrstu rúðu frá fyrri umferð (= 3 rúður í umferð). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Snúið stykkinu, heklið 1 ástarhnút og festið með 1 fastalykkju í 2. ástarhnút í síðustu rúðu frá fyrri umferð – nú hefur þú snúið við þannig að þú ert tilbúin að hekla áfram í þessari umferð þannig: Heklið 4 ástarhnúta, 1 fastalykkju efst í síðustu rúðuna frá fyrri umferð, 2 ástarhnútar, 1 fastalykkja efst í næstu rúðu, 2 ástarhnútar, 1 fastalykkja efst í næstu rúðu, 3 ástarhnútar, 1 fastalykkja í 1. ástarhnút í fyrstu rúðu frá fyrri umferð (= 4 rúður í umferð). Haldið svona áfram, snúið við í hverri umferð eins og útskýrt er í 3. umferð og heklið síðan þannig að það myndist ein rúða fleiri í hverri umferð. Heklaðir eru 3 ástarhnútar í hvorri hlið og 2 ástarhnútar í afgang af umferð (hver ferningur á að vera með samanlagt 4 ástarhnúta). Heklið svona þar til heklaðar hafa verið 16 rúður meðfram hvorri ystu hlið á stykki, en án þess að hekla síðasta ástarhnútinn (= þann sem þú snýrð við með). Þ.e.a.s. að endað er við punkt E og nú er heklað héðan. Stykkið mælist ca 32 cm meðfram hvorri ytri hlið – sjá stjörnu í mynsturteikningu hvernig stykkið er mælt. Heklið síðan eins og útskýrt er í A.3 (með ástarhnúta og snúið við eins og útskýrt er í mynsturteikningu), það verður þá þannig að það verður 1 rúða færri í hvorri hlið í hverri umferð. Haldið svona áfram þar til einungis 1 rúða er í umferð, klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 32 x 32 cm. Heklið annað stykki alveg eins. FRÁGANGUR: Legið bæði stykkin á hvort annað, kant í kant. Notið heklunál 3 og Belle. Byrjið með 1 fastalykkju í gegnum ysta hnút á báðum stykkjum, síðan er heklað áfram í gegnum bæði stykkin þannig: * 3 loftlykkjur, hoppið fram að næsta hnút, heklið 1 fastalykkju í hnútinn *, heklið frá *-* þar til stykkin hafa verið hekluð saman meðfram 3 hliðum, endið með 1 fastalykkju í síðasta hornið. Nú hafa stykkin verið hekluð saman þannig að það myndast op meðfram síðustu hliðinni á töskunni / netinu, heklið síðan í kringum þetta op jafnframt því sem handfangið er gert – ekki klippa þráðinn frá. KANTUR OG AXLARÓL: UMFERÐ 1: * Heklið 3 loftlykkjur (= loftlykkjubogi), hoppið fram að næsta hnút meðfram öðru stykkinu, heklið 1 fastalykkju í hnútinn *, heklið frá *-* í kringum allt opið (þ.e.a.s. bæði stykkin) og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð. Nú eru 32 loftlykkjubogar í umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. Nú eru 96 fastalykkjur í umferð (loftlykkja í byrjun á umferð kemur sem viðbót við þessar lykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu 12 fastalykkjum í umferð, heklið 84 loftlykkjur fyrir handfang, hoppið yfir 24 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 24 fastalykkjum, heklið 84 loftlykkjur fyrir handfang og hoppið yfir 24 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 12 fastalykkjum og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að handfangi, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju á handfangi *, heklið frá *-* og endið með að hekla 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að byrjun á umferð. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Klippið þráðinn frá og festið. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Kan ni göra en tutorial på hur man gör när man ska vända och få färre rutor (efter dom 16 längs varje yttersida)? Förstår inte hur jag ska göra.
06.07.2021 - 20:16DROPS Design answered:
Hej Lotta, vi har flere tutorials med kærlighedsknuder. Klik på videoen nederst og klik på kärleksknutar, så ser du også den anden :)
12.07.2021 - 15:21Hi, I'm new to crochet. I've learned how to make the Love knot in a square. Unfortunately I am completely lost in this pattern. How do I get it diagonal?
21.06.2021 - 08:31DROPS Design answered:
Dear Rinat, you should follow this video - it will be added in the matching section. Happy crocheting!
21.06.2021 - 08:45Going Green
17.01.2021 - 22:33Farmer's Market
17.01.2021 - 22:33