Bee Season Jumper |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og með útaumuðum blómum og býflugu. Stærð 3-14 ára.
DROPS Children 40-1 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 4,75. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í umferð (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru saumuð út tvö blóm og blýfluga á framstykkið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-104-104-112-112-112 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan A.1 (13-13-13-14-14-14 mynstureiningar með 8 lykkjum) hringinn í umferð. Í síðustu umferð í A.1 eru auknar út 0-3-3-0-3-3 lykkjur jafnt yfir = 78-81-81-84-87-87 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.2 hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem það er lengst, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir í hringprjón 4.Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-15-15-16-17-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 92-96-96-100-104-104 lykkjur. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Teljið 17-18-18-19-20-20 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerki hér (= á milli bakstykkis og ermi). Teljið 12 lykkjur og setjið 2. prjónamerki hér (= ermi). Teljið 34-36-36-38-40-40 lykkjur (= framstykki) og setið 3. prjónamerki hér. Teljið 12 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki hér. Nú eru 17-18-18-19-20-20 lykkjur (= hálft bakstykki) fram að byrjun á umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-17-19-19-20-22 sinnum = 220-232-248-252-264-280 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið mitt að aftan og prjónið að 1. prjónamerki (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-50-50-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Prjónið næstu 66-70-74-76-80-84 lykkjur (= framstykki), setið næstu 44-46-50-50-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í hlið undir ermi og prjónið fram að byrjun á umferð (= 66-70-74-76-80-84 lykkjur á bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 19-22-25-28-30-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar er út 27-28-32-33-37-35 lykkjur jafnt yfir = 171-180-192-201-213-219 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.2 hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 40-44-48-52-55-58 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 44-46-50-50-52-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af nýjum 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-52-56-58-60-64 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-5-5-6-7-6½ cm millibili alls 4-4-5-5-5-6 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-29-33-37-41 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-10-8-9-10-8 lykkjur jafnt yfir = 51-54-54-57-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.2 hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 25-29-33-37-41-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. BLÓM OG BÝFLUGA: Saumið er út 1 býfluga og 2 blóm á framstykki – sjá mynd. Býflugan er saumuð út með einföldum þræði og flatsaumi í röndum og á toppinn eru staðsettir 2 vængir í keðjuspori. Saumuð eru út 2 mismunandi blóm. BÝFLUGA – KOKSGRÁR BÚKUR: Byrjið með 1 þræði með litnum koksgrár – sjá mynsturteikningu C og útskýringu á mynsturteikningu. Byrjið á að sauma út ca 4-5 cm niður frá kanti í hálsi og ca 8-10 cm frá vinstri laskalínu á framstykki. Saumið út 2 spor með flatsaum á ská upp til hægri, þétt saman ca 0,5 að lengd. Hoppaðu upp til vinstri ca 0,5 cm, samhliða með fyrstu 2 sporunum og saumaðu 4 spor með flatsaum þétt saman sem eru ca 1 cm að lengd (= miðjan á býflugu), hoppaðu fram 0,5 cm samhliða með miðju spori og saumaðu 2 spor flatsaum þétt saman sem eru ca 0,5 cm löng. Nú á að sauma út fætur undir miðju á 4 miðju sporum, saumið 2 spor flatsaum fyrir fætur sem eru ca 0,5 langir. BÝFLUGA – SINNEPSGULUR BÚKUR: Skiptið yfir í 1 þráð með litinn sinnepsgulur. Saumið nú með flatsaumi í bilið á milli miðju á býflugu og framhlið á býflugu – saumið 4 spor með flatsaum jafn löng spor og koksgráa sporið sem er næst. Saumið síðan flatsaum í bilið á milli miðju á býflugu og bakhluta á býflugu – saumið 4 spor með flatsaumi jafn löng og koksgráa sporið sem er næst. BÝFLUGA – VÆNGIR: Notið 1 þráð og litinn hvítur, vængirnir samanstanda af 2 sporum keðjusaum sem báðir byrja frá sömu átt. Byrjið á að sauma út þannig: SPOR 1: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd og látið sauminn snúa aðeins aftur á bak að bakhluta á býflugu – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu. SPOR 2: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd og látið sauminn snúa aðeins fram að framhlið á býflugu. BLÓM-1 (7 krónublöð): Byrjið með að sauma út leggsaum með litnum bleikur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Hnúturinn er staðsettur ca 3 cm frá býflugu, á ská niður til hægri. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum hvítur - sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 7 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1,5 cm langt. Klippið þræðina og festið. BLÓM-2 (5 krónublöð): Byrjaðu á að sauma út leggsaum með litnum bleikur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður út þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Hnúturinn er staðsettur ca 5 cm frá miðju á blómi-1, á hlið niður til vinstri. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum hvítur – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 5 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1 cm langt. Klippið þræðina og festið. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Marie wrote:
Merci pour votre coup de main
03.06.2024 - 08:57Marie wrote:
Bonjour, J'ai terminé le raglan, cependant une fois toutes les augmentation faites, je suis à 16 cm du bord du col (marqueur) et non à 18 comme indiqué. Dois je continuer à tricoter jusqu'à avoir 18 cm, avant de commencer à séparer les manches du corps ? Je tricote la taille 9/10 ans ?
31.05.2024 - 17:25DROPS Design answered:
Bonjour Marie, tout à fait, continuez simplement en jersey, sans augmenter, jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 18 cm. Bon tricot!
03.06.2024 - 07:05Marie wrote:
Merci pour la rapidité de votre réponse ! Comment obtenir les explications en français Bonne soirée
17.05.2024 - 16:48DROPS Design answered:
Bonjour Marie, si les explications de votre modèle ne sont pas en français, cliquez sur le menu déroulant à côté de l'icone imprimante pour sélectionner "français"; ou bien ici pour ce modèle Bon tricot!
21.05.2024 - 12:03Marie wrote:
Bonjour Comment faire pour travailler 6 mailles ensemble à l’endroit. Ça me semble sportif 😏 Merci
17.05.2024 - 16:24DROPS Design answered:
Bonjour Marie, dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter 5 mailles ensemble à l'endroit, vous pouvez procéder de la même façon sur 6 mailles, ou bien les tricoter ensemble avec un crochet si vous êtes ainsi plus à l'aise, au choix. Bon tricot!
17.05.2024 - 16:38AM wrote:
How do you knit 6 stitches together?
17.02.2024 - 08:40DROPS Design answered:
Dear AM, you can use the following video, but you need to knit together 6 instead of 5 as in the video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=685&lang=en. Knit 6 tog as follows: K 6, pass them back on left needle, pass the next to last st over the last so that this st is around the last st, repeat until all 5 sts have been passed over (= 5 sts dec), pass the last st worked back on right needle. Happy knitting!
18.02.2024 - 21:54Cristiana wrote:
In A1 si legge di lavorare 6 maglie assieme. Non riesco a mettere 6 maglie assieme e lavorarle, come posso fare? Grazie
16.02.2024 - 21:14DROPS Design answered:
Buongiorno Cristiana, può lavorare 6 maglie diritto e poi accavallare la penultima maglia sull'ultima e così via fino a quando sono state diminuite tutte le maglie. Buon lavoro!
17.02.2024 - 13:24Valentina wrote:
Hallo, ich kann nicht sehen Diagramm A1 und A2. Wie kann man es finden?
14.12.2023 - 18:44DROPS Design answered:
Liebe Valentina, Diagramme A.1 und A.2 finden Sie bei der Maßskizze, unter den Ärmel. Viel Spaß beim stricken!
15.12.2023 - 09:05Margret wrote:
Können Sie mir bitte erklären wie ich 6Maschen zusammenstricken kann, ohne dabei die Nadeln zu verbiegen
17.11.2022 - 16:44DROPS Design answered:
Liebe Margret, dieses Video zeigt, wie man 5 Maschen zusammenstrickt, so stricken Sie aber mit 6 Maschen anstatt 5. Viel Spaß beim stricken!
17.11.2022 - 17:12Åshild wrote:
Hei! Jeg sliter med starten. Hvordan strikker jeg A1?
15.04.2022 - 20:20DROPS Design answered:
Hei Åshild, A.1 gir deg toppen av halsen som ruller litt utover. Første omgangen er 1 rett, strikke 6 masker rett sammen, 1 rett og dette gjentar du til slutten av omgangen. Neste omgang har du 1 kast, 1 rett, 1 kast, 1 rett, 1 kast, 1 rett og dette gjentas rundt. 3 omgang er strikke rett. Håper dette hjelper og god fornøyelse!
19.04.2022 - 10:29Helen wrote:
I have the pattern for your Bee Season Jumper and am confused as to A.1 directions. How do I knit into 6 stitches at once? Can you give me written instructions for A.1 rather than as a diagram?
31.01.2022 - 23:19DROPS Design answered:
Dear Helen, the first row in A.1 is worked over 8 sts as follows: K1, K6 together, K1 (=3 sts remain); on next row work: (YO, K1, YO, K1, YO, K1), there are now 6 sts. Knit all sts on 3rd round, knitting the yarn overs twisted to avoid holes. Happy knitting!
01.02.2022 - 09:20