Icy Waves |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, V-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-37 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 129 lykkjur), mínus kantlykkjur í garðaprjóni (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 39,7. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 39. og 40. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman á öxlum. Vestið er sett saman með tölum í hliðum. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur fyrir kant í hálsmáli. Bakstykkið er 5 cm lengra en framstykkið. BAKSTYKKI: Fitjið upp 129-139-157 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 126-136-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: 5 lykkjur garðaprjón, 9-14-23 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.2 yfir næstu 42 lykkjur, prjónið síðustu 12 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 14 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 9-14-23 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-33-35 cm, prjónið garðaprjón yfir ystu 9-11-17 lykkjur í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 9-11-17 lykkjur í hvorri hlið, fellið af 4-6-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 118-124-130 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður yfir miðju 98 lykkjur og prjónið 5-8-11 lykkjur sléttprjón innan við 5 lykkjur garðaprjón að hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 56-60-64 cm. Setjið nú miðju 26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með eins margar lykkjur í mynstri og pláss er fyrir við háls og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjur í kaðli í A.2. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 45-48-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-64-68 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 29-32-35 lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 129-139-157 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 126-136-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: 5 lykkjur garðaprjón, 9-14-23 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.2 yfir næstu 42 lykkjur, prjónið síðustu 12 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 14 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 9-14-23 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 26-28-30 cm, prjónið garðaprjón yfir ystu 9-11-17 lykkjur í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 9-11-17 lykkjur í hvorri hlið, fellið af 4-6-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 118-124-130 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður yfir miðju 98 lykkjur og prjónið 5-8-11 lykkjur sléttprjón innan við 5 lykkjur garðaprjón að hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 33-35-37 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir í sléttprjóni á eftir síðasta kaðli í A.2, þannig að kaðallinn komi ekki of nálægt hálsmáli. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 58-61-64 lykkjur inn í mynstur eins og áður og setjið þær á þráð fyrir hægra framstykki, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri og þessi lykkja er miðjulykkja), setjið miðjulykkjuna á eigin þráð, prjónið síðustu 58-61-64 lykkjur (= vinstra framstykki). VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: Prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 12 sinnum og í 4. hverri umferð 1 sinni (= alls 13 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli) = 45-48-51 lykkjur eftir á öxl. Eftir því sem lykkjum fækkar fyrir V-hálsmáli eru ekki nægilega margar lykkjur til að prjóna kaðla í A.2 við hálsmál og því er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur – ef þú vilt hafa einn kaðal til viðbótar á meðan lykkjum er fækkað, þá getur þú prjónað einn auka kaðal yfir fyrstu 10 lykkjur af sléttprjónuðu lykkjum í A.2 eins og gert er á flíkinni á myndinni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 55-59-63 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 29-32-35 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 12 sinnum og í 4. hverri umferð 1 sinni (= alls 13 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli) = 45-48-51 lykkjur eftir á öxl. Eftir því sem lykkjum fækkar fyrir V-hálsmáli eru ekki nægilega margar lykkjur til að prjóna kaðla í A.2 við hálsmál og því er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur – ef þú vilt hafa einn kaðal til viðbótar á meðan lykkjum er fækkað, þá getur þú prjónað einn auka kaðal yfir síðustu 10 lykkjur af sléttprjónuðu lykkjum í A.2 eins og gert er á flíkinni á myndinni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 55-59-63 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 29-32-35 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Passið uppá að saumurinn dragist ekki saman. Saumið vestið saman undir ermum í hvorri hlið með því að sauma skrauttölur í gegnum kanta í garðaprjóni þannig: Leggið kantinn í garðaprjóni á framstykki yfir kant í garðaprjóni á bakstykki. Saumið eina tölu í gegnum bæði stykkin ca 3 cm niður frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Saumið aðra tölu til viðbótar ca 7 cm neðar við fyrri tölu. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 126-142 lykkjur (meðtalin miðjulykkja af þræði mitt að framan og lykkjur af þræði frá bakstykki) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum hálsmál með hringprjón 4 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en stillið af að stroffið gangi jafnt upp þannig að miðjulykkjan að framan sé prjónuð slétt. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju að framan. JAFNFRAMT í 2. umferð með stroffi byrjar úrtaka mitt að framan – fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 3 næstu lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið 3 lyftu lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 4 lykkjur færri). Þegar lykkjum er fækkað svona þá kemur miðjulykkjan að framan að liggja yfir og fylgja með upp eins og bein lína. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Catherine Mackay wrote:
Not sure how to decrease for armhole
05.03.2024 - 15:08DROPS Design answered:
Dear Mrs Mackay, when piece measures 31-33-35 cm work the 9-11-17 sts in each side in garter stitch for 4 rows (= 2 ridges over these stitches), then cast off 4-6-12 sts on each side (= at the beg of next 2 rows), then continue wokring as before with 5 sts in garter stitch in each side. Happy knitting!
05.03.2024 - 15:36Ilona wrote:
Sono in difficoltà nelle spiegazioni . Nel Dietro dice mettere in sospeso le 26 maglie successive per il collo. Successive a cosa?
30.12.2023 - 21:54DROPS Design answered:
Buongiorno Ilona, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo, deve mettere in sospeso le 16 maglie centrali per il collo. Buon lavoro!
31.12.2023 - 13:29Karen wrote:
Goedemiddag. Er wordt bij de kabel-telpatronen aangegeven dat alleen de naalden aan de goede kant weergegeven worden. Betekent dit dan dat het 1 repetitie van bv A1 uit 24 rijen bestaat ipv de getekende 12 rijen? En dat de teruggaande rij dan tegengesteld is van wat er in de heengaande rij gebreid is?
17.11.2023 - 14:07DROPS Design answered:
Dag Karen,
Nee, alle rijen zijn wel weergegeven, dus de oneven rijen zijn de goede kant en de even rijen zijn de verkeerde kant.
18.11.2023 - 14:26KJ wrote:
Hi. What can I use in place of the A+B yarn recommend? Can I just use a B thread?
20.09.2023 - 21:21DROPS Design answered:
Hi Kj, If you just use just a B yarn, the knitting tension will change and you will need more stitches and rows than cited in the pattern. This can be done but takes a bit of maths, after you have found out how many rows and stitches you need for 10 x 10 cm. Good luck and happy knitting!
21.09.2023 - 06:17Monica-Yvonne Lund wrote:
Hei DROPS, Når jeg bruker strikkefasthet som er oppgitt her til å være 16 masker i bredden, på den minste størrelsen står det 126 masker (etter 3 felte masker). På denne utregningen så blir bredden da 126/16x10= 78.75 cm På målskissen står bredden som 55cm. Vil flettene ha så stor betydning eller er det jeg som regner feil her? Med vennlig hilsen Monica
02.05.2023 - 15:59DROPS Design answered:
Hej Monica, strikkefastheden er i glatstrik. Når du strikker snoninger skal du bruge flere masker, da snoningerne trækker arbejdet sammen :)
04.05.2023 - 12:01Andrea wrote:
Hello! Can you, please, upload a photo of its back? Or just send me one via email?
27.01.2023 - 09:56DROPS Design answered:
Dear Andrea, we don't have a photo of the back piece, but it just looks the same as the front piece - just neck will be different (no V-neck on back piece) but cables will be the same, back piece is then just longer than front piece. Happy knitting!
27.01.2023 - 14:13Dominique Cariou wrote:
Puis je trouver ce modèle au crochet ? Merci
13.11.2022 - 13:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cariou, ce modèle existe uniquement en version tricot, mais vous pourrez retrouver ici tous nos modèles de pulls sans manches au crochet. Bon tricot!
14.11.2022 - 10:01Ann Granlöf wrote:
Är det inga flätor på bakstycket? Mvh Ann
20.02.2022 - 18:49DROPS Design answered:
Hei Ann. Jo, det er fletter på baksiden også. Følg forklaringen til Bakstycket, så får du fletter. mvh DROPS Design
21.02.2022 - 14:17Jessicka Pettersson wrote:
Hej! Är det inte mer garnåtgång på kid-silk? Mvh Jessicka
30.01.2022 - 19:08DROPS Design answered:
Hej Jessicka. Garnåtgången stämmer. Kidsilk är ett väldigt lätt garn (210 m per 25 gram) så antalet meter garn blir detsamma i de båda garnen. Mvh DROPS Design
01.02.2022 - 09:05Elmouetamid Zakia wrote:
J ai aime ce modele merci beaucoup merci
16.12.2021 - 07:45