Snowy Trails |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-16 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 21 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 5,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í mitt undir ermi. Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 lykkju (þessi lykkja er alltaf prjónuð sem fyrsta lykkja í A.4), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur eins og áður fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur jafnóðum inn í A.4. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Í stærstu stærðunum er lykkjum fækkað mismunandi á framstykki/bakstykki og ermum – þetta er útskýrt í uppskrift. FRÁ RÉTTU: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri). FRÁ RÖNGU: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 1 lykkju brugðið (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Berustykkið er síðan prjónað í hring upp að hálsmáli. Lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli mitt að framan. Síðan er afgangur af berustykki prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka máls. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni og kaðlar. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fijtið upp 264-280-296-336-352-384 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-24-28-36 lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.2 (= 18 lykkjur), A.3 (= 26 lykkjur), A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 40-48-56-48-56-72 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjur), prjónið A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.3 (= 26 lykkjur), prjónið A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjur, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-24-28-36 lykkjur og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff – ATH: Í mynsturteikningu A.2 og A.3 eru endurteknar einungis 2 fyrstu umferðir á hæðina. Nú er eftir 1 umferð þar til stykkið mælist 5 cm, fækkið lykkjum í stroffprjóni – þetta er gert þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 21-25-29-25-29-37 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-4-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar 21-25-29-25-29-37 lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri), prjónið síðustu umferð í A.3 (= 26 lykkjur og 2 lykkjur færri), prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri), prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 42-50-58-50-58-74 lykkjur og fækkið jafnframt um 9-9-9-9-9-13 lykkjur jafnt yfir þessar 42-50-58-50-58-74 lykkjur, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri), prjónið síðustu umferð í A.3 (= 26 lykkjur og 2 lykkjur færri), prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri), prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir síðustu 21-25-29-25-29-37 lykkjur og fækkið jafnframt um 5-5-5-5-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar 21-25-29-25-29-37 lykkjur = 238-254-270-310-326-350 lykkjur. Stroffið er nú tilbúið. Setjið 1 prjónameri í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 120.-128.-136.-156.-164.-176. lykkju í umferð (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á síðar að fella af lykkjur fyrir handveg hvoru megin við þessi prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstrið og fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.4 yfir fyrstu 17-21-25-21-25-31 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.6 (= 17 lykkjur), A.7 (= 24 lykkjur), A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.8 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.4 yfir næstu 33-41-49-41-49-61 lykkjur (prjónamerki í hlið situr í miðju að þessum lykkjum), prjónið A.5 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.7 (= 24 lykkjur), prjónið A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.8 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum) og prjónið A.4 yfir síðustu 16-20-24-20-24-30 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26 cm í öllum stærðum, fellið af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. Nú eru ca 24-26-28-30-32-34 cm að loka máli. Stillið af að næsta umferð sé oddatala í umferð í mynsturteikningu, fellið af fyrstu 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur á undan næstu lykkju með prjónamerki í, fellið af 11-11-13-13-15-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur = 108-116-122-142-148-160 lykkjur eftir fyrir framstykki og 108-116-122-142-148-160 lykkjur eftir fyrir bakstykki. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 27-27-25-25-23-23 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 87-87-89-89-91-91 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Nú byrjar mynstrið og fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.4 yfir fyrstu 1-1-2-2-3-3 lykkjur (prjónamerki situr í fyrstu lykkju), prjónið A.5 (= 14 lykkjur), prjónið A.6 (= 17 lykkjur), A.7 (= 24 lykkjur), A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.8 (= 14 lykkjur) og endið með A.4 yfir síðustu 0-0-1-1-2-2 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 12-12-12-12-14-11 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6½-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 6-10-11-13-14-16 sinnum = 99-107-111-115-119-123 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 48-47-45-45-44-43 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu og fellið lykkjur af fyrir handveg þannig: Fellið af 6-6-7-7-8-8 lykkjur, prjónið eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur = 88-96-98-102-104-108 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 4,5 eins og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 392-424-440-488-504-536 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu. Byrjið umferð í skiptingunni á milli bakstykkis og vinstri ermi – setjið e.t.v. eitt prjónamerki hér til að merkja byrjun á umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en lykkjur hvoru megin við öll 4 prjónamerkin eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma). Prjónið 1 umferð með mynstri hringinn yfir allar lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir laskalínu. Í stærstu stærðum er lykkjum fækkað mismunandi á fram- og bakstykki og ermum. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli mitt að framan og síðasta umferð er prjónuð fram og til baka frá miðju að framan. Þegar ekki er nægilega mikil til af lykkjum til að gera kaðal, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur. Lestu kaflann LASKALÍNA og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. LASKALÍNA – STÆRÐ S, M og L: Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 15-19-21 sinnum og síðan í hverri umferð alls 18-17-17 sinnum. LASKALÍNA – STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA á eftir/undan 4 prjónamerkjum – sjá útskýringu að ofan. Í ANNARRI HVERRI UMFERÐ: Í hvorri hlið á ermum: Fækkið alls 25-29-32 sinnum. Í hvorri hlið á framstykki og bakstykki: Fækkið alls 13-17-16 sinnum. Í HVERRI UMFERÐ: Í hvorri hlið á ermum: Fækkið alls 12-9-8 sinnum. Í hvorri hlið á framstykki og bakstykki: Fækkið alls 35-33-40 sinnum. HÁLSMÁL (á við um allar stærðir): Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm (stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu), fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir miðju 24 lykkjur að framan (= A.7) – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Setjið síðan miðju 20-22-24-24-26-26 lykkjur á framstykki á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið áfram að byrjun á umferð. Klippið þráðinn frá. Byrjið frá röngu við háls og haldið áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni í hvorri hlið. Eftir allar úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru 92-98-96-108-110-110 lykkjur eftir í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að aftan og prjónið upp ca 122-130-130-142-146-146 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5. Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of vítt – prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt lykkjum jafnt yfir til 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að mynstri sem prjóna á dragi stykkið saman – prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 28-24-20-26-32-28 lykkjur jafnt yfir = 120-120-130-130-140-140 lykkjur. Prjónið A.9 hringinn (= 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar með 10 lykkjum). Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8-8-8-10-10-10 cm – eða óskaðri lengd. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju yfir hvern kaðal = 108-108-117-117-126-126 lykkjur eftir. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (81)
Mareike wrote:
Hallo, ich habe zwei Fragen zu der Halsblende, genauer zu dem Teil mit den abketten. Wo genau sollen die Maschen abgekettet werden? Ist das am Ende der Halsblende, also am Übergang zwischen den Ärmeln und Vorderteil und von da aus Richtung Hinterteil? Und wann sollen 2 Maschen abgekettet werden und wann 1? Ist das eine für die Hin-Reihe und eine für die Rück-Reihe?
09.06.2024 - 16:05DROPS Design answered:
Liebe Mareike, man wird zuerst die mittleren Maschen für den Halsausschnitt stilllegen, dann wird die Arbeit in Hin-und Rückreihen ab Halsausschnitt weitergestrickt, am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe) werden Sie Maschen für den Halsausschnitt abketten: so 2 Mal 2 M + 1 Mal 1 M beidseitig = 2 Maschen am Anfang der nächsten 4 Reihen + 1 Masche am Anfang der nächsten 2 Reihen (die Raglanabnahmen gleichzeitig weiterstricken). Viel Spaß beim Stricken!
10.06.2024 - 08:27Méabh wrote:
Hi, I have a question about the neck. Why should one bind off and then pick up stitches afterwards? Would it not be easier to just decrease?
28.05.2024 - 09:35DROPS Design answered:
Dear Méabh, only the stitches on each side of the middle stitches on front piece (put aside) will be cast off, this might help for a better shape. Happy knitting!
28.05.2024 - 13:07Grethe Swan Hellem wrote:
Lurer på om det er en regnefeil på halsen i str L. "... strikk 1 omgang rett og fell samtidig jevnt fordelt til 92-96-(100)-104-108-112 masker. Strikk 1 omgang vrang. På neste ... sammen – strikk 1 omgang rett og øk samtidig 28-24-(20)-26-32-28 masker jevnt fordelt = 120-120-(130)-130-140-140 masker." Sliter litt med å få 100 + 20 til å bli 130....
26.04.2024 - 17:05DROPS Design answered:
Hei Grethe, Du har rett. Det skal være 120 masker etter økningen. God fornøyelse!
29.04.2024 - 06:54Paulette Pol wrote:
Après avoir tricoté les manches, je vais aborder l'empiècement. Comme les manches et le corps ne finissent pas au même niveau des diagrammes, je doute beaucoup de la suite. Faudra-t-il faire avancer les points fantaisie différemment selon les parties considérées? J'espère m'être expliquée assez correctement pour que vous compreniez mon problème et vous remercie de votre aide, toujours aussi efficace.
26.04.2024 - 04:01DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pol, effectivement, vous devez continuer les points fantaisie du dos/du devant et des manches pour qu'ils continuent ceux que vous avez tricoté auparavant, donc il est possible qu'ils soient différents sur les manches et le dos/le devant, ce qui compte avant tout c'est de bien avoir les torsades à faire sur un même tour et que les motifs continuent. Bon tricot!
26.04.2024 - 07:52Zoonia Adeel wrote:
Is there a video for the neck? I'm so confused at the neck instructions
18.03.2024 - 11:10DROPS Design answered:
Dear Mrs Adeel, starting on mid back you will pick up the stitches around neckline, including the stitches from thread on front piece, then knit 1 round decreasing evenly to 92-112 sts, then purl 1 round, knit 1 round increasing evenly to 120-140 sts (decreasing/increasing let the neckedge looking nicer); and now work A.9 in the round. Happy knitting!
18.03.2024 - 15:11Wenche wrote:
Hei Jeg forstår ikke helt raglanfellingen i str xxl. Skal jeg felle annenhver omg først, og så på hver omg, eller er det ment at jeg skal felle ulikt hele veien fra start til slutt, ulikt. Veldig forvirrende skrevet i oppskriften, og ønsker en tydeliggjøring på hva som skal gjøres her. Snowy trails. Mvh Wenche
01.03.2024 - 12:42DROPS Design answered:
Hei Wenche, Du feller annenhver omgang 29 ganger på ermene og 17 ganger på bolen. Når du er ferdig med de annenhver på bolen, fortsetter du med annenhver på ermene til riktig antall, men feller hver omgang på bolen 33 ganger. Når du er ferdig med annenhver på ermene, feller du hver omgang 9 ganger. Håper det hjelper og god fornøyelse!
04.03.2024 - 11:22Elina wrote:
Dank voor dit mooie patroon. Een vraag: er staat bij maat S dat de hals start als het lijf 48 cm meet. Zou dit niet 43 cm moeten zijn? Met 5 cm boord, 26 cm lijf, 19 cm pas en 5 cm halsboord kom ik volgens het patroon uit op 50 cm totale lengte, maar dan zouden de halsminderingen in de boord plaats moeten vinden.
25.02.2024 - 08:12DROPS Design answered:
Dag Elina,
De totale hoogte vanaf de boord aan de onderkant tot de schouder is 50 cm, dit is als je het werk plat neerlegt en exclusief de halsboord. Ik denkt dat de getallen dan wel kloppen, want je moet na de 48 cm nog een paar naalden heen en weer breien en dan kom je ongeveer op 50 cm.
25.02.2024 - 10:24Anna wrote:
Jeg strikker trøjen i størrelse small og er nået til halsen. Jeg har sat de 20 forreste masker på en snor og har strikket hen til starten. Jeg er nu nået til: SAMTIDIG lukkes der af til hals på begyndelsen af hver pind fra halsen således: Luk 2 masker af 2 gange og 1 maske 1 gang i hver side. Jeg forstår simpelthen ikke hvad jeg skal. Kan I hjælpe med at forklare det?
13.02.2024 - 13:39Cambazard wrote:
J ai un souci avec les marqueurs en utilisant les chiffres indiqués les marqueurs se situe au milieu du dos et pas au niveau des côtés du pull, pouvez vous m aider ?
11.02.2024 - 15:34DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cambazard, vous devez bien avoir le bon nombre de mailles de chaque côté des 2 marqueurs, soit 1 maille avec 1 marqueur, puis 118-126-134-154-162-174 m, 1 maille avec 1 marqueur (= la 120ème-128ème-136ème-156ème-164ème-176ème maille du tour), et 118-126-134-154-162-174 m jusqu'à la fin du tour soit un total de 238-254-270-310-326-350 m. Bon tricot!
12.02.2024 - 08:32Tine Kjærbye wrote:
Jeg forstår ikke indtagningerne i ribben. Skal maskerne forskydes når man tager ind i A2 række 3? Og i forklaringen står, at der er taget 2 m. ind ved 3. række i A.3, men ifølge diagrammet skal man strikke 2 gange ved siden af hinanden. Hvor kommer indtagningerne ind?
08.02.2024 - 10:14DROPS Design answered:
Hei Tine. I diagram A.2 og A.3 gentages kun de 2 første omgange i højden, altså indtagningerne i A.2 og A.3 strikkes kun siste gang diagrammene strikkes. Og da vil vrangborden stemme med mønstret / diagrammene som skal strikkes etter vrangborden. mvh DROPS Design
16.02.2024 - 10:35