School Run |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með pepitamynstri, V-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-35 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 86 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 84 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 5,6. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um kant í hálsmáli): Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 næstu lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Færið prjónamerkið að miðju lykkju. LEIÐBEININGAR: Þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg og hálsmáli, á mynstrið að halda áfram yfir hvert annað eins og áður. Ef ysta lykkjan að hliðum eða hálsmáli er lykkja sem á að lyfta, skiptið þessari lykkju út fyrir slétta lykkju í lit sem þessi umferð er prjónuð í. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum hálsmál og handvegi. BAKSTYKKI: Fitjið upp 86-90-94-106-114-118 lykkjur á hringprjón 6 með litnum dökk grár í DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 15-15-15-19-19-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 71-75-79-87-95-99 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 1 kantlykkja), prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 17-18-19-21-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum – fyrsta mynstureining byrjar með perlugráum bakgrunni og dökk gráum lykkjum sem er lyft), prjónið fyrstu lykkju í A.2, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins og endið með A.1 (= 1 kantlykkja). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Lesið LEIÐBEININGAR og fellið af 3 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkja 6-6-6-7-7-7 sinnum í hvorri hlið = 47-51-55-55-63-67 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 15-19-23-23-23-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 15-15-15-15-19-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem úrtaka fyrir handveg byrjaði). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 86-90-94-106-114-118 lykkjur á hringprjón 6 með litnum dökk grár í DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 15-15-15-19-19-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 71-75-79-87-95-99 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 1 kantlykkja), prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 17-18-19-21-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum – fyrsta mynstureining byrjar með bakgrunni í litnum perlugrár og lykkjum í litnum dökk grár sem er lyft), prjónið fyrstu lykkju í A.2, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins og endið með A.1 (= 1 kantlykkja). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fellið síðan af fyrir handveg JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (prjónamerkið er notað þegar lykkjur eru felldar af fyrir V-hálsmáli). Lestu kaflann HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Munið eftir LEIÐBEININGAR og fellið af 3 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkja 6-6-6-7-7-7 sinnum í hvorri hlið. V-HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af miðju lykkju með prjónamerki í frá réttu og hvort stykki er prjónað áfram fyrir sig. Setjið lykkjur í vinstri hlið (þegar flíkin er mátuð) á þráð eða hjálparprjón. HÆGRI HLIÐ (þegar flíkin er mátuð): Haldið áfram fram og til baka eins og áður og haldið áfram með affellingu fyrir handveg eins og útskýrt er að ofan. Að auki er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-4-4-4-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-8-8-8 sinnum = 15-15-15-15-19-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem affelling byrjaði fyrir handveg). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRI HLIÐ (þegar flíkin er mátuð): Setjið lykkjur af þræði eða hjálparprjóni á prjón 7. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og haldið áfram með affellingu fyrir handveg. Að auki er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-4-4-4-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-8-8-8 sinnum = 15-15-15-15-19-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem affelling byrjaði fyrir handveg). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu á annarri öxlinni og prjónið upp innan við 1 kantlykkju ca 92-100-106-110-114-120 lykkjur í kringum hálsinn á hringprjón 6 með litnum dökk grár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið af að það komi 1 lykkja slétt mitt að framan neðst niðri í V-hálsmáli. Prjónið stroff hringinn í 3 cm, en til að stroffið leggist fallega mitt að framan, fækkið um 2 lykkjur mitt að framan – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð þar til kanturinn mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu í botni á öðrum handveginum og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju ca 80-84-88-92-92-96 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 6 með litnum dökk grár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Jannie Hansen wrote:
I bagstykket (og resten af opskriften), er det nødvendigt at skifte til parpinde, eller kan man fortsætte med rundpind?? Jeg har udskiftelige rundpinde.
04.02.2023 - 10:03DROPS Design answered:
Hei Jannie. Du kan bruke rundpinne 7 (og strikke frem og tilbake med rundpinne). mvh DROPS Design
06.02.2023 - 09:02Michèle Tremblay wrote:
Bonjour, Peut on faire ce modèle avec des broches droites car je n’aime pas les broches circulaires. Si oui est ce la même grosseur? Merci de me répondre et bravo pour votre site si simple a comprendre
05.01.2023 - 14:30DROPS Design answered:
Bonjour Mme Tremblay et merci; vous pouvez effectivement tricoter le dos et le devant sur des aiguilles droites - on utilise ici des circulaires pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Seul le col V et la bordure des manches se tricote en rond, il vous faudra alors adapter ces deux bordures en conséquence. Bon tricot!
05.01.2023 - 15:21Stelly wrote:
Bonjour je suis en train de réaliser ce modèle School Run DROPS 228-35. Je ne comprends pas quoi faire des 2 mailles restantes quand on suit le motif après avoir répéter A.2 4 fois. Le diagramme ne le précise pas. Merci de votre aide
09.12.2022 - 15:11DROPS Design answered:
Bonjour Stelly, vous devez tricoter ainsi, vu sur l'endroit: A.1 (= 1 m lis), puis répéter 17-18-19-21-23-24 fois les 4 mailles de A.2, tricotez ensuite la 1ère maille de A.2 pour que le motif soit symétrique, et terminez par A.1. Vu sur l'envers, tricotez A.2, la 1ère m de A.2 (celle de droite dans le diagramme)), puis répétez A.2 en le lisant de gauche à droite et terminez par A.1. Bon tricot!
09.12.2022 - 16:16Linda Ferré wrote:
Bonjour j adore ce modèle DROPS 228-35 je voudrais savoir on je peut acheter la laine j habite à NANTES Loire Atlantique merci d avance
15.11.2021 - 15:51DROPS Design answered:
Bonjour Mme Ferré et merci. Nous n'avons actuellement pas de magasin à Nantes, mais vous pourrez trouver la liste de tous les revendeurs DROPS en France ici. Bon tricot!
16.11.2021 - 09:30Patricia Thibert wrote:
Un esprit couture très chic j'adore
03.08.2021 - 17:13