Frosted Daisies |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur / t-shirt úr DROPS Belle. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-38 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð sem byrjar með stuðlum, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í hverri umferð sem byrjar með fastalykkjum, er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Þegar mynstur er heklað (þ.e.a.s. stuðlar og loftlykkjur) er heklað þannig: Þegar umferðin byrjar með 1 stuðli, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Þegar umferðin byrjar með 1 loftlykkju, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur þannig: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað stuðuls), 1 loftlykkja (fyrsta loftlykkjan í mynstri), hoppið yfir síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, heklið 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju (þetta er gert svo að umferðin færist ekki til). GATAMYNSTUR: Mynstur er heklað þannig þegar mynsturteikning gengur ekki jafnt upp yfir laskalínu og undir erm: UMFERÐ 1: Heklið * 1 stuðul um næstu loftlykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul *, heklið frá *-*. UMFERÐ 2: Heklið * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull um næstu loftlykkju *, heklið frá *-*. Stillið af hvaða umferð er byrjar á miðað við mynstur í mynsturteikningu. ÚTAUKNING: Lykkjur eru auknar út í hvorri hlið þannig: Stillið af að umferðin á undan sé umferð þar sem lykkjan mitt undir ermi er hekluð eins og 1 loftlykkja. Um þessa loftlykkju er heklaður 1 stuðull, 1 loftlykkja og 1 stuðull um sömu loftlykkju (1 loftlykkjubogi fleiri). Aukið svona í hvorri hlið (alls 2 lofltykkjubogar fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum. Stykkin eru hekluð í hring hvert fyrir sig. BERUSTYKKI: Heklið 84-86-90-92-96-102 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4,5 með DROPS Belle og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan mynstur þannig: Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hverja lykkju og aukið út um 4-2-18-16-12-26 stuðla jafnt yfir = 88-88-108-108-108-128 stuðlar. Heklið mynstur þannig: Heklið A.1, * A.2 alls 3-3-4-4-4-5 sinnum, A.3, A.4, A.5 *, A.6, heklið frá *-* alls 2 sinnum og endið með A.7. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1, A.4, A.6 og A.7 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 188-188-208-208-208-228 lykkjur í síðustu umferð (kúlur eru taldar sem 1 lykkja). Heklið síðan mynstur þannig: STÆRÐ S-M-L: Heklið A.1a, * A.2a alls 4-4-5 sinnum, A.3a, A.8a, A.4a, A.9a, A.5a, A.10a *, A.6a, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með A.7a. Heklið 5-8-8 umferðir með mynstri. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Heklið A.1a, * A.2a alls 5-5-6 sinnum, A.3a, A.8a, A.4a, A.9a, A.5a, A.10a *, A.6a, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með A.7a. Heklið 11-14-14 umferðir með mynstri. Í hvert skipti sem A.1a, A.4a, A.6a og A.7a er endurtekið á hæðina er hekluð 1 mynstureining fleiri af A.2a og A.8a á breiddina á framstykki/bakstykki og 1 mynstureining fleiri af A.9a og A.10a á breiddina á hvorri ermi. ALLAR STÆRÐIR: Heklið næstu umferð í mynstri, en nú eru kúlum í laskalínu (þ.e.a.s. 2 fyrstu kúlur í A.1a og mitt í A.4a og A.6a) með stuðlum (þ.e.a.s. 1 kúla = 1 stuðull) = 236-260-280-304-328-348 lykkjur. Stykkið mælist ca 23-26-26-30-34-34 cm. Heklið mynstur eins og áður, en yfir A.1a, A.4, A.6 og A.7 er heklað GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og lesið HEKLLEIÐBEININGAR = 232-256-276-300-324-344 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Gatamynstur er heklað þar sem mynstur gengur ekki jafnt upp og gatamynstur og kúlur eftir mynsturteikningu eins og áður yfir lykkjur á bakstykki/framstykki og ermar. Þegar stykkið mælist 26-28-29-31-33-35 cm, klippið þráðinn frá. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum þannig: Byrjið á að telja frá miðjulykkju á bakstykki (þ.e.a.s. mitt á milli 2 laskalína), teljið 32-35-38-42-47-51 lykkjur að byrjun á umferð, næsta umferð byrjar í/um næstu lykkju. Heklið 1 fastalykkju um/í næstu lykkju, 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta eða síðasta stuðul), heklið mynstur eins og áður yfir næstu 64-70-76-84-94-102 lykkjur, kúlur sem ekki gagna jafnt upp í heilu blómi er skipt út fyrir 1 stuðul, hoppið yfir næstu 51-57-61-65-67-69 lykkjur fyrir ermi, heklið 9 loftlykkjur undir ermi, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 65-71-77-85-95-103 lykkjur, hoppið yfir næstu 51-57-61-65-67-69 lykkjur fyrir ermi og heklið 9 loftlykkjur undir ermi og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-172-188-208-224 lykkjur. Heklið mynstur hringinn eins og áður, það er heklað mynstur (þ.e.a.s. 1 stuðull, 1 loftlykkja) yfir lykkjur sem heklaðar voru undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju undir hvorri ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 loftlykkjuboga í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út í 4. hverjum cm alls 3-3-3-4-4-4 sinnum = 160-172-184-204-224-240 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, útauknar lykkjur eru heklaðar inn í mynstur eins og þær lykkjur sem eftir eru og ganga ekki jafnt upp í mynsturteikningu. Þegar stykkið mælist ca 19-19-20-20-20-20 cm frá skiptingu, endið fallega miðað við mynstur, heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul, 1 stuðul um hverja loftlykkju og e.t.v. 1 stuðul í hverja kúlu (ef það er einhver). Klippið þráðinn og festið. KANTUR ERMI: Nú er heklað yfir 51-57-61-65-67-69 lykkjur sem hoppað var yfir fyrir kant á ermum í annarri hlið þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju sem var hekluð undir ermi, heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), 1 stuðull í hvern stuðul og 1 stuðull um hverja loftlykkju = 60-66-70-74-76-78 stuðlar. Klippið þráðinn og festið. Heklið hinn kant á ermi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 1 fastalykkju í lykkjuna mitt að aftan, heklið 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju í kringum hálsmál og endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (20)
Jesse wrote:
This pattern is awful, even writing down and drawing out what every row should look like, adding up the stitches to match the total, i still can't get it to work. I have no idea where there are supposed to be increases, and from the diagrams its difficult to tell what stitches go in what stitches in the row below. I've given up.
17.11.2023 - 05:47Betty wrote:
Ik heb het patroon in maat L geprobeerd te haken maar op een gegeven mlment staat er voor maat L twee verschillende patroonbeschrijvingen. Als ik de eerste kies, kom ik niet uit met de benodigde steken. Hoe moet ik het patroon volgen? Klopt het patroon wel? Er zit geen fout in?
07.10.2023 - 14:20Monica Bjurling wrote:
Hej! Jag kan inte fatta. vad jag gör för fel. Hur jag än räknar, så blir det fel, när jag ska virka första mönstervarvet. De 88 maskorna i stl S räcker inte till. Kan ni hjälpa mig, att förstå?
30.07.2023 - 13:11DROPS Design answered:
Hej Monica, Virka A.1 (= 1m), * A.2 totalt 3gånger (= 30m), A.3 (= 3m), A.4 (= 1m), A.5 (= 9m) *, A.6 (1 m), virka *-* totalt 2 gånger och avsluta med A.7 som är en smygmaska (räknas inte som m). Det vill säga: 1m + 43 + 1 + 43 + smygmaskan = 88 m
07.08.2023 - 11:07Kerstin wrote:
Hallo, ich habe schon viel gehäkelt, aber das verstehe ich nicht. Unter dem 1. Kommentar wird erklärt wie es gehen soll. Die Rechung geht nicht auf, weil dort129 Maschen erklärt werden und den Rest verstehe ich gar nicht. Vielleicht kann mir einer Mal erklären wie es denn nach der Zunahme jetzt richtig geht. Die Größe ist XXL. Danke, ansonsten gebe ich auf.
20.06.2023 - 21:07Jannie wrote:
Jeg kan ikke få maskeantal til at passe i str. xxxl. Jeg har hæklet stangmaskerækken, og har 128 masker. Så har jeg hæklet A.1 en gang, A.2 5 gange, A.3 en gang, A.4 en gang, A.5 en gang, A.6 en gang, A.2 5 gange, A.3 en gang, A.4 en gang, og nu har jeg kun 3 masker tilbage på omgangen, men mangler at hækle A.5 og A.7 en gang. Hvad gør jeg forkert?
11.04.2023 - 21:30DROPS Design answered:
Hei Jannie. Du har 128 masker, så hekler du A.1 (over 1 maske) + A.2 5 ganger (over 50 masker) + A.3 (over 3 masker) + A.4 (over 1 maske) + A.5 (over 9 masker) + A.6 (over 1 maske) + A.2 5 ganger (over 50 masker) + A.3 (over 3 masker) + A.4 (over 1 maske) + A.5 (over 9 masker) + A.7 (over 0 masker/blir en luftmaske og 1 kjedemaske i 3. luftmasken på begynnelsen av omgangen) = 1+50+3+1+9+1+50+3+1+9+0= 128 masker. mvh DROPS Design
17.04.2023 - 13:44Victoria wrote:
So you do an entire round of A1 and then 4 rounds of A2? It's not clear what is meant by doing these, do you do A1 and A2 four times in the same round?
16.03.2023 - 20:28DROPS Design answered:
Dear Victoria, no you have to work 1st row all diagrams then 2nd row and so on, in this lesson we explain how to work several diagrams consecutively, it should help you. Happy crocheting!
17.03.2023 - 08:44Victoria wrote:
This pattern is so confusing.. after the first round of double crochets I'm not sure if I repeat A2 4 times or if I repeat A2, A4, A5 etc 2 times
16.03.2023 - 12:53DROPS Design answered:
Dear Victoria, in 3rd, 4th and 5th size, work as follows: crochet A.1 one time (first raglan line), then *crochet A.2 a total of 4 times in width, then crochet A.3 one time, crochet A.4 one time (2nd raglan line), crochet A.5 one time*, crochet A.6 (3rd raglan line) one time, then work now from *-* one more time (A.4 will be the 4th raglan line) and finish the round with A.7 (joining to the first raglan line). Happy crocheting!
16.03.2023 - 15:53Prunelle40 wrote:
Bonjour, "En commençant à partir de la maille au milieu dos, compter 42 mailles vers le début du tour, le tour suivant commence dans/autour de la maille suivante" : je ne comprends pas exactement ce qu'il faut faire. "je compte 42 m.", cela veut dire "je passe 42 m sans les crocheter" ? Que veut dire "le tour suivant commence autour de la maille suivante" ? Merci de votre aide.
05.12.2022 - 13:07DROPS Design answered:
Bonjour Prunelle40, vous allez commencer ce tour 42 m avant le milieu du dos, et plus là où vous commenciez les tours auparavant. Notez la maille centrale, comptez 42 m vers la droite (avant cette maille), joignez le fil avec 1 maille serrée dans/autour de la maille suivante, 3 ml et crochetez les 84 m suivantes comme avant. Bon crochet!
06.12.2022 - 10:27Prunelle40 wrote:
Bonsoir, et merci pour votre aide ! J'ai atteint le niveau de l'empiècement avec les A8, A9 et A10. Par contre, le motif fait 10 tours donc en quoi consiste le 11ème tour (taille L-XL) ? Dois-je recommencer un rang 1 ? Mais cela n'irait pas puisqu'on me dit de continuer en point ajouré ! Merci
30.11.2022 - 23:08DROPS Design answered:
Bonjour Prunelle40, lorsque vous avez terminé les 10 rangs de A.9 et A.10, reprenez-les au 1er rang (comme pour les autres diagrammes) pour continuer les motifs et les nopes. Bon crochet!
01.12.2022 - 11:20Prunelle40 wrote:
Bonjour, sur votre site (pour un ouvrage de même construction), j'ai trouvé l'enchaînement des diagrammes. J'ai un peu bataillé donc pour celles qui se lanceront dans l'aventure, voici la suite (taille L-XL) : A1 - A2 (4 fois) - A3 - A4 - A5 - A6 - A2 (4 fois) - A3 - A4 - A5 - A7. Et là, tout se met bien en place ! Bonne journée, have a good day !
25.11.2022 - 12:05