Blueberry Harvest |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-19 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð, prjónið þessa lykkju slétt. LASKALÍNA: Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Aukið út fyrir ermar á eftir 3. og 1. prjónamerki og á undan 4. og 2. prjónamerki. Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir lykkju með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu á undan/eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMFERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn í næstu umferð prjónaður á undan/eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. MYNSTUR FRAM- OG BAKSTYKKI: * Prjónið A.1 hringinn á fram- og bakstykki (alls 3 umferðir á hæðina), 5 cm sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum á hæðina, prjónið A.1. Prjónið síðan sléttprjón að loka máli fyrir stroff. MYNSTUR ERMI: * Prjónið A.1 hringinn á ermi (alls 3 umferðir á hæðina), 5 cm sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum á hæðina (stillið af að hver eining með A.1 passi yfir fyrri einingu með A.1, þ.e.a.s. sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur / brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur), prjónið A.1. Prjónið síðan sléttprjón að loka máli fyrir stroff. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72 lykkjur með DROPS Snow yfir stuttan hringprjón 6 og stuttan hringprjón 8 sem haldið er saman. Dragið út stuttan hringprjón 8, haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 6 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið storff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – prjónið síðan næstu umferð í stroffprjóni eins og áður, jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. STÆRÐ S, M og L: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 8-9-9 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16-18-18 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 8-9-9 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. Farðu áfram í HÁLSMÁL. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 72-76-80 lykkjur. Síðan eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjónað umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 10-11-12 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 20-22-24 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 10-11-12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. Farðu áfram í HÁLSMÁL. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, á undan og á eftir 4 prjónamerkjum þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 76-80-80-88-92-96 lykkjur. Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 3-6-7-7-5-6 sinnum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum) = 84-112-120-128-116-128 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út lykkjur á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri í umferð). Þ.e.a.s. það er aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út alls 12-10-10-12-16-16 sinnum á fram- og bakstykki (6-5-5-6-8-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 15-16-17-19-21-22 sinnum á fram- og bakstykki og 9-11-12-13-13-14 á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 156-172-180-200-212-224 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm mælt mitt að framan – mælt eftir stroff í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 24-26-27-30-33-35 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 30-34-36-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 48-52-54-60-66-70 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 30-34-36-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 24-26-27-30-33-35 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-124-136-148-160 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan MYNSTUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 20 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-24-24-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 128-140-148-164-180-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 30-34-36-40-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 36-40-44-48-48-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan MYNSTUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-2-2-2 cm millibili alls 1-2-3-5-4-6 sinnum = 34-36-38-38-40-40 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 37-35-34-35-34-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 14-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-40-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |