Reflections of Aurora |
|
|
|
Heklað pils úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með öldumynstri og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-27 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------ HEKLLEIÐBEININGAR-1: Í öllum umferðum með fastalykkjum er snúið við með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR-2. Í hverri umferð með öldumynstri er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / stuðull. RENDUR: Það eru heklaðar rendur þannig: ATH! Rendurnar enda mismunandi eftir stærðum: 2 umferð með litur 62, sítróna 6 umferð með litur 65, pistasía 2 umferð með litur 64, ljós beige 2 umferð með litur 63, sægrænn 2 umferð með litur 72, krít 4 umferð með litur 50, mynta 4 umferð með litur 70, sæt orkidéa 4 umferð með litur 72, krít 2 umferð með litur 06, gallabuxnablár 2 umferð með litur 65, pistasía 4 umferð með litur 63, sægrænn 2 umferð með litur 64, ljós beige 4 umferð með litur 70, sæt orkidéa 2 umferð með litur 62, sítróna 3 umferð með litur 72, krít 2 umferð með litur 50, mynta 2 umferð með litur 63, sægrænn 2 umferð með litur 64, ljós beige 4 umferð með litur 06, gallabuxnablár Ef allar rendurnar hafa verið heklaðar til loka, heklið aftur frá byrjun. ÚRTAKA: HEKLIÐ 2 LYKKJUR SAMAN Í 1 STUÐUL: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). HEKLIÐ 3 LYKKJUR SAMAN Í 1 STUÐUL: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá hlið þangað til op / klauf í hlið hefur verið hekluð til loka, síðan er heklað í hring. PILS: Heklið 151-165-181-195-225-255 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með litnum mynta í DROPS Safran. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 150-164-180-194-224-254 fastalykkjur + 1 loftlykkja – Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 2 umferðir til viðbótar fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Næsta umferð er hekluð þannig: 2 loftlykkjur, hoppið yfir fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* út umferðina = 75-82-90-97-112-127 fastalykkjur og 75-82-90-97-112-127 loftlykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: 2 loftlykkjur, hoppið yfir fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð og heklið 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina. Endurtakið þessa síðustu umferð þar til stykkið mælist 5-6-6-7-7-8 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er hekluð 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkja um hverja loftlykkju = 150-164-180-194-224-254 fastalykkjur. Í næstu umfeðr er aukið út jafnt yfir þannig: * 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* þar til 0-2-0-2-2-2 fastalykkjur eru eftir, heklið 2 fastalykkjur í hvora af þessum fastalykkjum = 200-220-240-260-300-340 fastalykkjur. Síðan eru heklaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er heklað öldumynstur fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 3 loftlykkjur (1 stuðull), 1 stuðull í hverja af næstu 7 fastalykkjum, * heklið næstu 4 fastalykkjur saman 2 og 2 – sjá ÚRTAKA, 1 stuðull í hverja af næstu 8 fastalykkjum, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja af næstu 8 fastalykkjum *, heklið frá 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, heklið næstu 4 fastalykkjur saman 2 og 2, 1 stuðull í hverja af síðustu 8 fastalykkjum = 180-198-216-234-270-306 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur (1 stuðull) + 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í hvorn af næstu 2 stuðlum, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, * heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 6 stuðlum, 3 stuðlar um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 stuðull í hvern af næstu 6 stuðlum *, heklið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, endið með 1 stuðul í hvern af næstu 3 stuðlum og 2 stuðlar í hvern af síðustu 3 stuðlum = 200-220-240-260-300-340 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 3 loftlykkjur (1 stuðull) + 1 stuðull í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum, * heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum, 2 stuðlar um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum *, heklið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, endið með 1 stuðul í hvern af næstu 5 stuðlum og 2 stuðlar í hvorn af síðustu 2 stuðlum = 200-220-240-260-300-340 stuðlar. Endurtakið 3. umferð 1 sinni til viðbótar, snúið stykkinu. Nú mælist stykkið ca 11-12-12-13-13-14 cm. Hér líkur klaufin / opið, síðan er næsta umferð hekluð þannig: 3 loftlykkjur + 1 stuðull í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum, * heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum, 2 stuðlar um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum *, heklið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í hvorn af 2 síðustu stuðlum í umferð, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 200-220-240-260-300-340 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2: * 1 stuðull í hvern og einn af fyrstu 7 stuðlum, heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum, 2 stuðlar um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Haldið áfram hringinn með öldumynstri. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 2 stuðla í hverri mynstureiningu með því að hekla 3 stuðla + 3 loftlykkjur + 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga í stað 2 stuðla + 3 loftlykkjur + 2 stuðla (þ.e.a.s. það er aukið út frá 10 til 11 stuðla meðfram hverjum vinkil, umferðina hringinn) = 220-242-264-286-330-374 stuðlar. Endurtakið útaukningu alveg eins í 6. hverri umferð 5 sinnum til viðbótar = 320-352-384-416-480-544 stuðlar (á eftir síðustu útaukningu eru 16 stuðlar meðfram hverjum vinkil). Heklið áfram þar til pilsið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm þar sem stykkið er lengst. Klippið þræðina og festið. HNESLUR / LYKKJUR: Meðfram hlið á opi í hlið sem snýr að bakstykki, heklið kant að framan með hneslum / lykkjum þannig: Heklið 3 umferðir með fastalykkjum og litnum mynta fram og til baka. Síðan eru heklaðar 3-3-3-4-4-4 hneslur / lykkjur jafnt yfir í næstu umferð – 1 hnesla / lykkja = 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju. Neðsa lykkjan á að vera ca 1 cm frá neðri kanti á klauf og efsta ca 1 cm frá toppi. Heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, klippið þráðinn og festið. FALDUR FYRIR TÖLUR: Meðfram hinni hlið á opinu eru heklaðar 5 umferðir með fastalykkjum og litnum mynta fram og til baka. Klippið þráðinn og festið. Saumið tölur í 1. umferð á faldinum þannig að þær passið við hneslur / lykkjur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Ann Joshage wrote:
Hej varför är början av vänstra sidan av era mönster borta? Oläs bar då hela texten inte kommer med.
07.10.2023 - 12:21Mary Nielsen wrote:
Hej flot nederdel og elegant Ved afsnittet, hækle information 2 , hvad skal hækle for at for en spids mønster ved sidesømmen ? Skal jeg starte med 2 stgm i hver af de 2 sidste stgm ? Jeg har sand farve safran som jeg glædes til at lave den i . Please as soon as possible..tusind tak. Mary.
03.10.2023 - 15:16DROPS Design answered:
Hej Mary, jeg forstår ikke spørgsmålet... du får automatisk spidserne hvis du følger opskriften, zig-zag mønsteret starter ved 1.RÆKKE og alle rækker beskrives i opskriften :)
12.10.2023 - 15:43Lisbeth Høyer wrote:
Forskyder den første stangmaske på en omgang sig ikke to fordi man slår 2 m om luft maske bue, hvad gør man så når man kommer hen til at man skal strikke de 3 m sammen og samtidig skifte farve til en ny omgang ?
26.08.2023 - 09:25DROPS Design answered:
Hei Lisebeth. Litt usikker på hvor du er i oppskriften, skriv gjerne hvilken rad du hekler ( og str. du hekler). Ta også en titt på hvelkevidoene som du finner nederst på oppskriften. mvh DROPS Design
11.09.2023 - 11:55Lisbeth Høyer wrote:
Jeg havde glemt de 3 luftmasker, inden man begynder at hækle rundt.
24.08.2023 - 12:29Lisbeth Høyer wrote:
Jeg har det samme problem ,når man begynder at hækle rundt som Christina, skal der ikke laves en bue af 3 luftmasker i samlingen, så det også bliver sik sak mønster der, det stemmer heller ikke med antal masker. Vil gerne se en nederdel bagfra med samlingen om muligt .
24.08.2023 - 12:01Aslaug Lerbæk Lerbaek wrote:
Jeg vil hekle skjørtet ensfarget - hvor nye garn da?
29.06.2023 - 17:13DROPS Design answered:
Hej Aslaug, det har vi ingen information om, men vi gætter at du skal bruge ca 500 g i de mindste størrelser og ca 700 g i de største størrelser :)
30.06.2023 - 09:03Tze Moi Ang wrote:
I finished my skirt and noticed the curly result (yellow stripe immediately after the waist band. Why is that and if I were to make another one, can I improve the design? And do you have other color combinations for suggestion? Thanks.
19.04.2023 - 11:53DROPS Design answered:
Dear Mrs Ang, you can block your skirt, ie spray water and let dry flat, this should help. Enjoy your skirt!
19.04.2023 - 13:11Cherry Lim wrote:
It would be very nice if this zig-zag pattern in the form of a dress with a slightly flared skirt can be created, similar to the knitted dress version :)
08.04.2023 - 17:55Christina Rasmussen wrote:
Hej med jer Når jeg begynder at hækle rundt, så siger opskriften ikke noget om at tage ud i de første 2 og sidste 2 masker… men så passer maskerne ikke med 7 stm efterfulgt af 2x3 indtagninger og der er ikke siksak mønster i samlingen… skal der ikke tages ud på en eller dansen måde??? Håber mit spørgsmål giver mening😅
26.03.2023 - 13:37DROPS Design answered:
Hej Christina, det stemmer, du tager ud i luftmaskerne som beskrevet i opskriften, da vil antal masker stemme :)
12.04.2023 - 14:40Dinah wrote:
🇧🇷 Quais os passos para aumentar, ou seja um tamanho maior para mulheres cheinhas? São múltiplos de quanto? Obrigada.
20.03.2023 - 17:24DROPS Design answered:
Bom dia, Este modelo tem explicações para os tamanhos S - M - L - XL - XXL - XXXL Basta seguir as instruções para os números acima. Bom croché!
21.03.2023 - 09:54