DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1430.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1430.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Swirling Sea |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónað oversized / stórt vesti úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 239-14 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál á framstykki): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju í garðaprjóni. PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu eru prjónaðar brugðnar lykkjur og þegar prjónað er frá réttu eru prjónaðar sléttar lykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 16-18-18-20-22-22 sinnum og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant í handvegi í lok 2 næstu umferða = 108-120-120-132-144-144 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir mynstrið, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 20-22-22-24-24-26 lykkjur fyrir hálsmáli (44-49-49-54-60-59 lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hlið við hálsmál eru felldar af fyrstu 5 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð frá hálsmáli er prjónað þannig: Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli, prjónið þar til 6-6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Prjónið yfir 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi alls 4 sinnum. Í síðustu umferð frá hálsmáli eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-42-42-47-53-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur þannig: Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem þær voru á með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjurnar frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 46-48-48-50-50-52 cm = 108-120-120-132-144-144 lykkjur. Nú eru felldar af miðju 18 lykkjur fyrir hálsmáli (45-51-51-57-63-63 lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og samtímis er prjónuð skáhallandi öxl, lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 35-40-40-39-45-44 lykkjur. SKÁHALLANDI ÖXL: Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, prjónið skáhallandi öxl þannig: Í næstu umferð frá hlið eru felldar af 5 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð frá hálsmáli er prjónað þannig: Prjónið þar til 6-6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Prjónið yfir 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsi. Prjónið og snúið svona í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-42-42-47-53-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur þannig: Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem þær voru á með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við 1 lykkju. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður þar til 8 lykkjur eru eftir (klauf). TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 66 til 96 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn yfir allar lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist ca 12 cm. Brjótið stroffið að innanverðu á stykkinu. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (26)
Camilla wrote:
När jag maskat av axlarna i icord, hur ska jag sy ihop dem för att det ska bli snyggt? Vilken teknik? Jag får inte till det.
02.11.2023 - 16:36DROPS Design answered:
Hei Camilla. Vi har dessverre ingen video på hvordan sy to avfellingskanter i icord sammen, men takk for ditt innspill. Vi legger det på vår video-ønske-lista. I mellom tiden ta en titt på: Hvordan montere med mattrass søm eller Hvordan montere med usynlig maskesting . mvh DROPS Design
06.11.2023 - 13:35Camilla wrote:
Jag försöker maska av axeln enligt beskrivning. Första axeln, den högra, blir bra men den vänstra förstår jag inte hur den ska göras. Den kommer ju avmaskas från avigan om de två upplagda maskorna ska läggas upp mot halsen. Och det står att man ska sticka i slätstickning och med hoptagning från avigsidan enligt beskrivning ovan blir resultatet inte alls likadant som den högra axeln. Vad gör jag för fel?
21.10.2023 - 14:42DROPS Design answered:
Hej Camilla, du strikker ret over ret og vrang over vrang (som du har gjort hele vejen), du strikker vendepindene fra halssiden så du får flere pinde nærmere halsen og færre mod ærmegabet :)
24.10.2023 - 09:03Lüscher Iris wrote:
Bonjour, je suis en train de faire mon échantillon et je remarque que je vais devoir tricoter en 6 au lieu de 4 pour avoir les 17mailles= 10cm. Comme c’était recommandé de tricoter en 4mm et 5mm, je dois faire 6 à la place de 4 je fais 7 à la place de 5? Merci
08.10.2023 - 15:56DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lüscher, si vous avez l'échantillon avec des aiguilles 6, utilisez des aiguilles 5 pour les côtes (au lieu des 4). Bon tricot!
09.10.2023 - 09:06Britt wrote:
När jag ska göra halsen för framstyckets förstår jag inte. Efter 48 cm ska jag maska av 18 maskor i mitten för hals o sen sticka var sida för sig. Ok fattar Men när ska jag börja minskningen av övriga 6 maskor vid halsen? Direkt eller efter 54 cm som på bakstycket? Blev konstigt när jag gjorde som jag trodde o nu sitter jag fast här. Tycker det är otydligt i mönstret o skulle behöva ett förtydligande. Tack på förhand!
20.09.2023 - 17:22DROPS Design answered:
Hej Britt, Du börjar minskningen mod halsen direkt. Og til skrå skulder som på bagstykket (så de bliver lige lange)
26.09.2023 - 15:12Mina K wrote:
"På siste pinne mot halsen legges det opp 2 nye masker på slutten av pinnen = 37-42-42-47-53-52 masker" Betyr det at disse to maskene skal være på halssiden eller skuldersiden?
29.08.2023 - 09:12DROPS Design answered:
Hej Mina, det er mod halsen :)
13.09.2023 - 15:22Tricoteuse wrote:
Bonjour, je ne comprends pas pourquoi les 2 plus grandes tailles (XL et XXL) sont identiques (même nombre de mailles, mêmes mensurations) sauf pour les mesures tout en haut du graphique où ce sont les tailles L et XL qui sont identiques?
29.07.2023 - 20:50DROPS Design answered:
Bonjour Tricoteuse, merci pour votre retour et désolée pour le retard, un nouveau schéma va être publié pour remplacer celui-ci; Bon tricot!
18.09.2023 - 15:34Susana Araujo wrote:
While making front piece and casting off 18 stitched for the neck we have 51 stitches in each shoulder. After having decreased 6 times for the neck we should have 45 in the needle and not 40 but pattern says 40?? Should I keep decreasing until 40 or move on to diagonal shoulder?
28.05.2023 - 17:50DROPS Design answered:
Dear Susana, you have to work the neck and diagonal shoulder at the same time. You will have short rows, for the diagonal shoulder and the decreases for the neck at the same time. After finishing the decreases for the neck and finishing the diagonal shoulder decreases, you should have 40 stitches; then you cast on 2 stitches and you will have the 42 stitches needed for casting off with an edge over the shoulder stitches. Happy knitting!
28.05.2023 - 19:45Christina wrote:
Den ser rigtig sød ud, men er Alpaca ikke for varmt til sommertøj? Jeg kender ikke garnet endnu ;-)
02.05.2023 - 19:37DROPS Design answered:
Hej Christina, den er perfekt til en god dansk sommeraften :)
03.05.2023 - 07:50Susana Araujo wrote:
DIAGONAL SHOULDER: When piece measures 49-51-53-55-57-59 cm, continue with knit over knit and purl over purl, i.e. the cables are done. When piece measures 50-52-54-56-58-60 cm, work diagonal shoulder as follows: On next row from the (????) side cast off the 5 stitches in garter stitch Q: What side should this be??
30.04.2023 - 14:26DROPS Design answered:
Dear Susana, it's not referring to the right and wrong sides, but rather to a row that starts from the side of the piece, where the shoulders/sleeves are (as opposed to the center of the front piece, where the neck is). Happy knitting!
30.04.2023 - 20:25Susana Araujo wrote:
"Work * 1 stitch in STOCKING STITCH – read explanation above, work next stitch together with first/next stitch from shoulder – read KNITTING TOGETHER, pass the 2 stitches back on Hot pink they came from with strand on wrong side of piece, make sure not to tighten yarn too much " Q: What is a Hot pink???
30.04.2023 - 14:09DROPS Design answered:
Dear Susana, there seems to be a typo in the pattern, we will correct it as soon as possible. The right words are: "back on the needle they came from". Happy knitting!
30.04.2023 - 20:19