Ice Tide |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, áferðamynstri og háum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 243-10 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MYNSTUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið A.1. Prjónið A.2. Þegar stykkið er prjónað fram og til baka, endið með fyrstu lykkju í A.2 þannig að mynstrið byrji alveg eins í hvorri hlið. Prjónið A.1. Prjónið perluprjón i 8-8-8-9-10-12 cm. Prjónið A.1. Prjónið A.2. Prjónið A.1. Stykkið mælist nú 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður (mælt á framstykki innst við hálsmál). MYNSTUR ERMI: Prjónið perluprjón i 8-8-7-7-6-6 cm. Prjónið A.1. Prjónið A.2. Prjónið A.1. Prjónið perluprjón þar til stykkið mælist ca 30-29-29-27-26-25 cm. Prjónið A.1. Stykkið mælist nú ca 38-37-37-35-34-33 cm. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegurinn hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli að framan og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegurinn hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Stykkið skiptist fyrir klauf í hliðum og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrri sig. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli hringinn. BAKSTYKKI: Fitjið upp 17-17-17-21-21-21 lykkjur á hringprjón 9 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónameri að innanverðu við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga síðan að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Nú er prjónað PERLUPRJÓN fram og til baka – lesið útskýringu að ofan, 3 lykkjur í hvorri hlið er prjónuð í sléttprjóni. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út á sama hátt – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 16-18-20-20-22-24 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 49-53-57-61-65-69 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið perluprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 4-3-2-1-1-2 cm. Nú er prjónað MYNSTUR FRAM- OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 16-18-20-20-22-24 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki). Fyrsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 13-15-17-17-19-21 lykkjur perluprjón (byrjið með 1 lykkju slétt), endið með 3 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með perluprjón og 3 lykkjur sléttprjón við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út alls 4 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni = 20-22-24-24-26-28 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 16-18-20-20-22-24 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Fyrsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 3 lykkjur sléttprjón, 13-15-17-17-19-21 lykkjur perluprjón (byrjið með 1 lykkju brugðið). Haldið áfram með perluprjón og 3 lykkjur sléttprjón við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út 1 lykkju alls 4 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni = 20-22-24-24-26-28 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið perluprjón yfir 20-22-24-24-26-28 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 9-9-9-13-13-13 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið perluprjón eins og áður yfir 20-22-24-24-26-28 lykkjur frá vinstra framstykki = 49-53-57-61-65-69 lykkjur. Prjónið perluprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-13-12-13-13-14 cm. Prjónið MYNSTUR FRAM- OG BAKSTYKKI fram og til baka þar til stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, mælt yst meðfram handvegi. Passið uppá að endað sé í sömu umferð í mynstri eins og á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið mynstur eins og áður yfir 49-53-57-61-65-69 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 1-1-1-3-5-7 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið mynstur eins og áður yfir 49-53-57-61-65-69 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 1-1-1-3-5-7 nýjar lykkjur í lok umferðar = 100-108-116-128-140-152 lykkjur. Nú er fram- og bakstykkið prjónað í hring og mynstrið heldur áfram eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Mynstrið á nú að vera lokið. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það verður klauf í hliðum. Setjið 50-54-58-64-70-76 lykkjur frá bakstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá framstykki. FRAMSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 22-22-26-28-30-32 lykkjur jafnt yfir = 72-76-84-92-100-108 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá efsta punkti á öxl. BAKSTYKKI: Setjið lykkjur á hringprjón 8. Prjónið á sama hátt og framstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 9 og prjónið upp frá réttu 24-25-26-28-29-30 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 14-15-16-16-17-18 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 38-40-42-44-46-48 lykkjur meðfram handvegi. Prjónið MYNSTUR ERMI fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-2-2-3-4 cm. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 9 – afgangur af erminni er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og haldið áfram með mynstur. Þegar ermin mælist 3-3-4-4-5-6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 11-11-11-7-7-7 cm millibili 3-3-3-4-4-4 sinnum = 32-34-36-36-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-37-37-35-34-33 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-16-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 8. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-47-47-45-44-43 cm frá merkiþræði. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur á gagnstæðan hátt, þ.e.a.s. prjónið upp 14-15-16-16-17-18 lykkjur frá botni á handvegi og upp að öxl (meðfram bakstykki) og 24-25-26-28-29-30 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn við handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 48 til 64 lykkjur í kringum kant í hálsmáli á stuttan hringprjón 8. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Fellið af aðeins laust. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (20)
Marthe Aasmundseth wrote:
Hvilken vanskelighetsgrad har denne genseren?
17.04.2024 - 14:31DROPS Design answered:
Hej Marthe, den er ikke så vanskelig, vi har videoer som viser nøjagtig hvordan man gør de forskellige moment :)
18.04.2024 - 11:41FONT wrote:
Bonjour Comment puis-je imprimer les explications ? Merci
17.03.2024 - 17:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Font, cliquez sur l'icône "imprimante" juste au-dessus de la partie Explications Une nouvelle fenêtre va s'ouvrir, réglez les paramètres de votre imprimante pour lancer l'impression. Bon tricot!
18.03.2024 - 09:27Kirstin wrote:
Guten Tag,\r\nIch versteh nicht wie ich die Ärmel anstricken soll, bzw. wie lang der waagerechte Rand ist, wo keine Maschen aufgenommen werden sollen. \r\nVielen Dank für die Hilfe.\r\nKirstin
05.03.2024 - 10:32DROPS Design answered:
Liebe Kirstin, die Maschen für die Ärmel werden am Armausschnitt aufgefassen, dh nach den abgeketteten Maschen für das Armloch am Vorder bzw Rückenteil bis die abgekettenen Maschen für das Armloch am Rücken- bzw Vorderteil, aber nicht in den Maschen die für das Armloch abegkettet wurden. Die ersten 1-1-2-2-3-4 cm werden in Reihen gestrickt und danach am Armausschntt (siehe b und B) angenäht. Viel Spaß beim Stricken!
05.03.2024 - 15:33Sarina wrote:
Beste, Dit is de eerste keer dat ik met een patroon brei... Moet ik bij Patroon lijf de telpatronen A1 en A2 achtereenvolgens breien over 1 priem dus 6 steken R van A1 en dan 4 steken R van A2 of op 1 priem A1 herhalen en op de volgende priem A2 herhalend breien? Alvast bedankt
24.02.2024 - 17:44DROPS Design answered:
Dag Sarina,
Je breit eerst patroon A.1 en dit patroon herhaal je over de breedte over de hele naald. Wanneer je patroon A.1 in de hoogte hebt gebreid, dan brei je patroon A.2, enzovoort.
25.02.2024 - 10:32Victoria wrote:
How many cms do I knit for the neck please? Many thanks, really enjoying knitting this garment :)
16.01.2024 - 14:49DROPS Design answered:
Hi Victoria, The rib on the neck is worked for 9 cm. Happy crafting!
17.01.2024 - 08:13Trine wrote:
Hei, det er en feil i oppskriften. På høyre forstykke står det (start med 1 maske vrang). Dette blir feil, den må være rett for at det skal gå opp når forstykkene skal kobles sammen.
28.11.2023 - 20:27Susana Araujo wrote:
When do we stop doing the 3 stocking stitch in each side for the back piece?
05.11.2023 - 18:33DROPS Design answered:
Dear Susana, you stop working them at the armhole, when you join both pieces. Happy knitting!
05.11.2023 - 19:58Lisa wrote:
In der Anleitung steht, man soll die Maschenprobe im Reliefmuster stricken. Was genau bedeutet das? Ist damit das Perlmuster gemeint? Oder mit welcher Technik soll die Maschenprobe gestrickt werden?
31.10.2023 - 11:02DROPS Design answered:
Liebe Lisa, stricken Sie Ihre Maschenprobe mit A.2, das ist das Reliefmuster. Viel Spaß beim stricken!
31.10.2023 - 16:09Bartus Krisztina wrote:
A mintában írt 3 harisnyakötéssel kötött szélsőszemet a szaporítások befejeztével is meg kell tartani, vagy innentől kezdve végig az adott mintával kötünk?
01.10.2023 - 22:16Leire Baixauli wrote:
In the first row of A1, what does knitting direction mean?
15.09.2023 - 20:43DROPS Design answered:
Dear Leire, there is a typo in this chart. The white square symbol in A.1 should be: knit from the right side, purl from the wrong side. We will correct it as soon as possible. Happy knitting!
17.09.2023 - 20:54