Lakeside Watercolour Sweater |
||||||||||
|
|
|||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað neðan frá og upp með röndum, klauf í hliðum og uppábroti á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-28 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli / fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Síðasta fastalykkja í umferð er hekluð í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hver umferð með fastalykkjum er hekluð frá röngu, hver umferð með stuðlum er hekluð frá réttu. ATH: Ef 4. umferð í A.2 gengur ekki jafnt upp með lykkjum í umferð þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, heklið eins og útskýrt er í ÚRTAKA-2. RENDUR: * Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Heklið A.2 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum malva. Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum blá þoka. Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum ryð. Heklið A.2 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum púður. Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði i DROPS Kid-Silk í litnum blár vindur *, heklið frá *-* að loka máli. ÚRTAKA-1 (á við um handveg): Fækkið lykkjum í umferð með fastalykkjum. Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Skiptið út þeim fjölda lykkja sem fækka á með 1 keðjulykkju í lykkjuna fyrir neðan. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi lykkja sem fækka á um (það er ekki heklað yfir þær lykkjur sem fækka á um). ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu. Fækkið um 1 stuðul í 2. eða 4. umferð í A.1 / 2. umferð í A.2 þannig: Heklið 2 stuðla saman, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Fækkið um 1 stuðul í 4. umferð í A.2 þannig: Heklið 1 stuðul í lykkjuna sem venjulega eru heklaðar 2 lykkjur, hoppið yfir næstu lykkju eins og áður. ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp með 2 lykkjur í mynstri í 4. umferð í A.2 þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, er skipt út fyrir 1 stuðul í lykkjuna fyrir neðan, í stað 2 lykkjur í næstu lykkju og hoppið yfir 1 lykkju. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Aukið út innan við 1 lykkju í hvorri hlið á stykki. KRABBAHEKL: Heklið á sama hátt og fastalykkjur, en aftur á bak. Þ.e.a.s. krabbahekl er heklað frá vinstri til hægri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman eins og útskýrt er í uppskrift. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Heklið 70-76-84-88-98-108 LOFTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 69-75-83-87-97-107 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja, þ.e.a.s. það á ekki að hekla í þessa loftlykkju). Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið RENDUR fram og til baka – lesið útskýringu að ofan (fyrsta umferð í A.1 hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í 2. umferð í A.1). Rendurnar eru endurteknar á hæðina að loka máli – ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 3-4-4-4-7-8 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1 = 63-67-75-79-83-91 lykkjur. Haldið áfram með mynstur – munið eftir að í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm og hekla á næstu umferð frá réttu, heklið hægri öxl þannig: Heklið 20-20-24-26-26-30 stuðla, heklið 2 stuðla saman – lesið ÚRTAKA-2 = 21-21-25-27-27-31 lykkjur á öxl. Heklið fram og til baka eins og áður yfir axlalykkjur þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þræðina frá og festið. Heklið vinstri öxl frá réttu þannig: Hoppið yfir fyrstu 19-23-23-23-27-27 lykkjur eftir hægri öxl (hálsmál), heklið 2 stuðla saman, heklið 1 stuðul í hverja af 20-20-24-26-26-20 lykkjum sem eftir eru = 21-21-25-27-27-31 lykkjur á öxl. Heklið fram og til baka á sama hátt og á hægri öxl þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þræðina frá og festið. FRAMSTYKKI: Heklið 70-76-84-88-98-108 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 69-75-83-87-97-107 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja). Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið rendur fram og til baka á sama hátt og á bakstykki (byrjið í 2. umferð í A.1). Munið eftir að í 4. umferð í A.2 er A.2 heklað þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið umferð með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar stykkið mælist ca 42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 3-4-4-4-7-8 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1 = 63-67-75-79-83-91 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 54-56-58-59-61-63 cm og hekla á næstu umferð frá réttu, heklið hægri öxl þannig (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 21-21-25-27-27-31 stuðla, heklið 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA-2, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, snúið stykkinu og heklið til baka. Snúið stykkinu, heklið þar til 3 lykkjur eru eftir, heklið 2 stuðla saman, 1 stuðul í síðasta stuðul, snúið stykkinu og heklið til baka. Snúið stykkinu, heklið þar til 3 lykkjur eru eftir, heklið 2 stuðla saman, 1 stuðul í síðasta stuðul, snúið og heklið til baka = 21-21-25-27-27-31 lykkjur eftir á öxl. Heklið fram og til baka eins og áður yfir axlasaumana þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þræðina frá og festið. Heklið hægri öxl frá réttu þannig: Hoppið yfir fyrstu 15-19-19-19-23-23 lykkjur eftir vinstri öxl (hálsmál), heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 2 stuðlar saman, heklið 1 stuðul í hverja af 21-21-25-27-27-31 lykkjum sem eftir eru, snúið stykkinu og heklið til baka. Snúið stykkinu, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar saman, 1 stuðul í hverja lykkju út umferðina, snúið stykkinu og heklið til baka. Snúið stykkinu, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar saman, 1 stuðul í hverja lykkju út umferðina = 21-21-25-27-27-31 lykkjur eftir á öxl. Heklið fram og til baka á sama hátt og vinstri öxl þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þræðina og festið. ERMI: Heklið 40-40-42-42-44-46 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 39-39-41-41-43-45 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja). Heklið A.1 fram og til baka (byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu). Þegar stykkið mælist 10 cm, setjið 1 prjónamerki í stykkið. Héðan er nú stykkið mælt. Heklið síðan rendur á sama hátt og á bakstykki og framstykki, en byrjið með A.2 í 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum malva – ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar stykkið mælist 13-12-13-11-13-11 cm frá prjónamerki, auki út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 6-5-4-4-3-3 cm millibili alls 7-8-9-10-11-11 sinnum í hvorri hlið = 53-55-59-61-65-67 lykkjur. ATH: Þegar hekla á 4. umferð í A.2, heklið á sama hátt og áður, þ.e.a.s. A.2 er heklað þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar stykkið mælist 53-51-49-49-47-44 cm frá prjónamerki, setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið. Heklið áfram þar til stykkið mælist 55-54-52-52-52-50 cm frá prjónamerki neðan á ermi (öll ermin mælist alls ca 65-64-62-62-62-60 cm frá uppfitjunarkanti). Klippið þræðina og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið hliðarsaumana frá handvegi og niður þar til 11 cm er eftir í hvorri lið fyrir klauf. Saumið sauma undir ermum frá uppfitjunarkanti og upp að prjónamerki sem var sett efst á ermi, saumið kant í kant þannig að saumurinn verði flatur og passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar brotið er uppá neðstu 10 cm. Það er klauf ca 2-3-3-3-5-6 cm efst á ermi. Strekkið létt á ermakúpunni þannig að hún passi við handveginn og saumið ermakúpuna við handveginn. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Brjótið uppá neðstu 10 cm á ermum og festið uppábrotið með nokkrum sporum í hvora hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og heklið með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla þannig: 1 fastalykkja í axlasauminn, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* hringinn í hálsmáli, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = ca 26 til 29 loftlykkjubogar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, síðan eru heklaðir 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar = ca 104 til 116 lykkjur í kringum hálsmál. Heklið síðan hringinn með til skiptis 1 umferð fastalykkjur og 1 umferð stuðlar (heklið 1 lykkju í hverja lykkju) þar til kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-7-7-8-8 cm – endið eftir eina umferð með stuðlum. Í lokin er hekluð 1 umferð með KRABBAHEKL – lesið útskýringu að ofan. Klippið þræðina og festið. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Ann Österman wrote:
Hej! På diagram A1 +A2 blir det bara tre varv med stolpar innan hålmönstret. Men på bilden visar den 5 varv stolpar innan hålmönstret.
15.04.2024 - 11:12Suzy58 wrote:
Candy stripes
07.08.2023 - 12:02Else Egeland wrote:
Høst
06.08.2023 - 20:24Vanilla wrote:
Dusk till dawn
04.08.2023 - 17:32Anni wrote:
Summer Hugs / Lovingly Autumn
04.08.2023 - 09:39Nigar wrote:
Fruity Stripes
04.08.2023 - 05:45Dianne wrote:
Coastal Bliss
04.08.2023 - 01:08Jgeo wrote:
Shell Bay
03.08.2023 - 22:52Noemi wrote:
Frosty leasure
03.08.2023 - 20:59Rosi wrote:
Sunny Wintersday
03.08.2023 - 18:56