Winter Snuggles |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónað sett: Prjónuð peysa með norrænu mynstri, buxur og húfa með dúsk, vettlingar, sokkar og teppi úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán – 4 ára.
DROPS Baby 13-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STROFF: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HNAPPAGAT (buxur): Fellið af fyrir 2 hnappagötum að framan með ca 8-9-10 (11-12) cm millibili. 1 hnappagat = fellið af 2 l (fallegast er að fella af með 2 l br séð frá réttu) og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. ÚRTAKA (buxur): ATH: Innan við buxnaskálm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l. ÚRTAKA (húfa): Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-160-172 (200-212) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff með 1 kantlykkju og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 3-4-4 (5-5) cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt frá réttu jafnframt er l fækkað til 123-135-147 (171-183) l. Prjónið síðan 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Setjið 1 prjónamerki 31-34-37 (43-46) l inn frá hvorri hlið = 61-67-73 (85-91) l á milli prjónamerkja á bakstykki – látið prjónamerki fylgja með stykkinu uppúr. Prjónið M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið, prjónið síðan næstu umf þannig: 1 kantlykkja, M.2A yfir næstu 108-120-132 (156-168) l, M.2B (= 13 l) og 1 kantlykkja. Haldið svona áfram með mynstur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist ca 15-17-21 (25-28) cm – passið að prjónaðar séu 2 umf með litnum natur eftir 1 umf með ”doppum” – haldið áfram með M.3 á sama hátt, þ.e.a.s. 1 kantlykkja, M.3A yfir næstu 108-120-132 (156-168) l, M.3B (= 13 l) og 1 kantlykkja. Jafnframt þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm skiptist stykkið upp við handveg við bæði prjónamerkin og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 61-67-73 (85-91) l. Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 63-69-75 (87-93) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm fellið af miðju 21-23-25 (25-27) l fyrir hálsmáli. Fækkið að auki 2 l í næstu umf við háls = 19-21-23 (29-31) l eftir á hvorri öxl. Eftir M.3 er fellt af, stykkið mælist ca 28-30-34 (38-41) cm – ATH: Ef stykkið mælist styttra en þetta er haldið áfram með litnum natur til loka. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 31-34-37 (43-46) l. Fitjið upp 1 nýja l við handveg (= kantlykkja fyrir saum) = 32-35-38 (44-47) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Jafnframt þegar stykkið mælist 24-26-29 (33-35) cm eru síðustu 7-8-9 (9-9) l við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umf: 2 l 2 sinnum og 1 l 2-2-2 (2-3) sinnum = 19-21-23 (29-31) l eftir á öxl. Fellið af þegar prjónað hefur verið jafn langt og á bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fitjið upp 48-52-56 (60-64) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff. Þegar stykkið mælist 5 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 5 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er l fækkað til 40-42-44 (46-48) l. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. Prjónið síðan M.1 – stillið af við miðju, sjá ör í mynstri. Eftir M.1 er haldið áfram með M.2 (stillið af við miðju eftir ör) þar til stykkið mælist 16-17-19 (23-27) cm, prjónið síðan M.4. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi alls 7-8-9 (11-12) sinnum á prjóni 1/3 + 6/9 + 12/18 mán + 2 ára: í 5. hverri umf, stærð 3/4 ára: í 6. hverri umf = 54-58-62 (68-72) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar M.4 hefur verið prjónað er fellt laust af, stykkið mælist ca 19-20-22 (26-30) cm frá prjónamerki – ATH: Ef stykkið mælist styttra en þetta er haldið áfram með litnum natur til loka. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 74-78-86 (94-102) l meðfram vinstra framstykki á prjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff með 2 l garðaprjón og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist ca 2,5 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið meðfram hægra framstykki, þegar kantur að framan mælist ca 1 cm er fellt af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – neðsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm frá neðri kanti og það efsta ca 4-6 cm ofan frá (einnig er fellt af fyrir einu hnappagati í kanti í hálsmáli). 1 hnappagat = fellið af 2 l (fallegast er að fella af 2 l br séð frá réttu) og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 86-110 l – meðtaldar l af þræði að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 2) í kringum hálsmál og ofan við kant að framan á prjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff með 2 l garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist ca 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir þau hin sem eru í hægri kanti að framan (prjónið 3. og 4. l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn). Þegar stroff mælist 3-4-4 (5-5) cm fellið af fyrir 1 hnappagati alveg eins. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4-5-5 (6-6) cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Brjótið kantinn í hálsmáli saman tvöfaldan að röngu og festið með fínu spori. Saumið ermar í og festið tölur. Brjótið stroffið á ermum saman tvöfalda að réttu. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá miðju og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BUXUR: Fitjið upp 160-168-176 (184-192) l á hringprjóna nr 2,5 með litnum natur – byrjun umf = miðja að aftan. Prjónið 1 umf br, prjónið síðan stroff. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum að framan – sjá HNAPPAGAT – að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki fyrir miðju að framan (merkir uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum að framan eins og áður (hnappagötin eiga að passa á móti hvort öðru þegar stroffið er brotið upp við prjónamerki). Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er l fækkað jafnt yfir til 114-120-126 (132-138) l. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Prjónið nú M.2A jafnframt er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 9-10-10 (11-11) l frá byrjun umf, snúið við (til að sleppa við göt er fyrsta l tekin óprjónuð þegar prjónað er til baka og hert á þræði). Prjónið 18-20-20 (22-22) l og snúið við. Haldið svona áfram að prjóna 9-10-10 (11-11) l fleiri í hvert skipti sem snúið er við 10 sinnum til viðbótar (= 12 umf). Prjónið síðan M.2A hringinn yfir allar l. ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 13-16-17 (18-19) cm frá prjónamerki við miðju að framan er sett 1 nýtt prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 57-60-63 (66-69) l. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við þessi prjónamerki (= 4 l fleiri í hverri útaukningu í umferð) í 3. hverri umf alls 6 sinnum = 138-144-150 (156-162) l. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24) cm. SKÁLM: Prjónið 69-72-75 (78-81) l með byrjun við miðju að aftan og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Prjónið í hring (M.2A er haldið áfram eins og áður) – setjið 1 prjónamerki að innanverðu á skálm = byrjun umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA að ofan: alls 13-12-11 (11-11) sinnum í stærð 1/3 mán: í 3. hverri umf, stærð 6/9 mán: í 4. hverri umf, stærð 12/18 mán: í 5. hverri umf, stærð 2 ára: í 7. hverri umf, stærð 3/4 ára: til skiptis í 8. hverri og 9. hverri umf = 43-48-53 (56-59) l. Þegar stykkið mælist ca 30-36-40 (46-52) cm – passið að prjónaðar verði minnst 2 umf með litnum natur eftir 1 umf með ”doppum” – prjónið M.1 – byrjið efst í mynstri og sjá ör sem merkir miðju umf (= ytri hlið á skálm). Eftir M.1 er skipt yfir í litinn natur og sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er aukið út jafnt yfir til 68-72-76 (80-84) l. Prjónið nú stroff í 10 cm áður en fellt er laust af í stroffi. Prjónið hina skálmina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brettið stroffið efst á buxum niður að innanverðu á stykki. Passið uppá að hnappagötin passi yfir hvort annað. Saumið stroffið niður að innanverðu á stykki. Til að koma í veg fyrir að stroffið verði of stíft er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. AXLABÖND: Fitjið upp 12 l á prjóna nr 2,5 með litnum natur og prjónið stroff með 1 l garðaprjón og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar axlabandið mælist ca 34-40-48 (58-64) cm fellið af. Prjónið annað axlaband á sama hátt. Festið axlaböndin aftan á buxurnar (að innanverðu við stroff) með ca 8-9-10 (11-12) cm millibili. Saumið eina tölu ca 2 cm inn á annan endann á axlabandinu – axlaböndin eru sett í kross að aftan, mátið gjarna buxurnar til að fá sem besta staðsetningu á tölum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp 112-116-120 (124-132) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú stroff með 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 10 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni og M.2A jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 90-96-102 (108-114) l í 1. umf eftir stroff. Þegar stykkið mælist 17-17-18 (19-20) cm setjið 6 prjónamerki í stykkið með 15-16-17 (18-19) l á milli hverra. Haldið áfram með M.2A jafnframt sem fækkað er um 1 l hvoru megin við öll prjónamerkin – lesið ÚRTAKA - Í annarri hverri umf: 6-7-7 (6-6) sinnum og síðan í hverri umf: 0-0-0 (2-2) sinnum = 18-12-18 (12-18) l eftir á prjóni – þær l sem ekki ganga upp í mynstrið þegar l er fækkað eru prjónaðar með litnum natur. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum allar l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið upp neðstu 5 cm á stroffi, húfan mælist nú ca 15-16-17 (18-19) cm. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum natur ca 4-5 cm að þvermáli og saumið efst á húfuna. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Þrjár stærstu stærðirnar eru prjónaðar með þumli, þær tvær minni eru án þumals. Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VETTLINGUR: Fitjið upp 36-40-44 (48-52) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf br, prjónið síðan stroff 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 8-8-10 (10-12) cm aldið áfram með sléttprjóni jafnframt er aukið út til 38-42-46 (50-54) l í 1. umf. Þær 3 stærstu stærðirnar: Eftir 1 (2-3) cm sléttprjón eru settar 5 (6-6) síðustu l í umf á þráð fyrir þumal. Fitjið upp 5 (6-6) nýjar lykkjur yfir þessar í næstu umf. Allar stærðir: Þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm prjónið M.5 yfir miðju 13 l á hönd, aðrar l eru prjónaðar með litnum beige – munið eftir að prjóna inn löngu þráðunum þannig að fingurnir festist ekki í þeim þegar vettlingurinn er mátaður – endarnir þurfa ekki að fylgja með alla leiðina hringinn, bara fram og til baka yfir mynstur-l. Eftir M.5 er haldið áfram með litnum beige yfir allar l. Þegar stykkið mælist 15-16-18 (19-21) cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin í hverri umf þar til 10 l eru eftir á prjóni – lesið ÚRTAKA. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið upp neðstu 4-4-5 (5-6) cm af stroffi, vettlingurinn mælist nú ca 13-14-16 (17-18) cm. ÞUMALL: Setjið til baka 5 (6-6) l af þræði á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið upp 7 (8-8) l í kantinn yfir þær = 12 (14-14) l. Prjónið br hringinn þar til þumallinn mælist 3 (4-5) cm. Prjónið nú allar l saman 2 og 2. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Prjónið annan vettling á sama hátt. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l jafnt yfir á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan stroff með 2 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 4-5-5 (6-7) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 4-8-4 (8-8) l jafnt yfir = 40-40-44 (44-48) l. Prjónið nú hæl - lesið HÆLÚRTAKA - þannig: Prjónið 3- 3½ - 3½ (4- 4 ½) cm sléttprjón fram og til baka yfir 16-16-16 (18-18) l fyrir miðju að aftan. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 9-9-9 (10-10) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við UMFERÐ 2: Takið 1 l óprjónaða, 3-3-3 (4-4) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 3: Takið 1 l óprjónaða, 4-4-4 (5-5) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 5-5-5 (6-6) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 5: Takið 1 l óprjónaða, 6-6-6 (7-7) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 6: Takið 1 l óprjónaða, 7-7-7 (8-8) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 7: 2 l slétt saman, 6-6-6 (8-8) l sl, 2 l snúnar slétt saman = 8-8-8 (10-10) l á prjóni (= alls 32-32-36 (36-40) l). Prjónið upp 7-8-8 (9-11) l hvoru megin við hæl og setjið allar l á sama prjón = 46-48-52 (54-62) l. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar l. Jafnframt er fækkað um 1 l hvoru megin við efstu 18-20-22 (24-26) l í annarri hverri umf 7 sinnum = 32-34-38 (40-48) l. Þegar fóturinn mælist 8-9-10 (12-12) cm (frá byrjun hælúrtöku) setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hverri umf (= 4 l færri í umf) alls 7-7-8 (8-10) sinnum. Þræðið þráðinn í gegnum þær 4-6-6 (8-8) l sem eftir eru og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. Teppi: Sjá mynstur DROPS Baby 13-10 |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (116)
Maria wrote:
Hej! Håller på med koftan, är på fram och bakstycke! Det står att kantm inte ingår i mönstret, vilken färg ska de stickas i? Natur eller samma som första/sista m i mönstret?
17.04.2024 - 20:18DROPS Design answered:
Hej Maria, kantmasken strikker du i bundfarven :)
19.04.2024 - 14:29Yaëll wrote:
Hallo, ik heb een vraag over de mindering van de muts. Ik ben een beginner wat betreft de NLse instructies. "...minder tegelijkertijd 6-7-7 (6-6) x 1 st aan weerskanten van alle merkdraden (...): in elke 2e nld en vervolgens in elke nld 0-0-0 (2-2) x = 18-12-18 (2-18) st over" In het begin is de mindering om de naald (ik brei rond, dus elke 2e rij). Vanaf wanneer moet elke naald/rij geminderd worden? Wat betekent de 0 x = 18? (Ik neem aan de laatste n steken voor casting off)
04.04.2024 - 18:45Ute wrote:
Hallo,\r\nwie kann ich bei der Blende Knopflöcher in die Linksrippe stricken, wenn ich die Blende in rechts und kraus rechts stricken soll? \r\nUte
21.02.2024 - 13:59DROPS Design answered:
Liebe Ute, die Blenden werden im Bündchen *2 re, 2 li* so gestrickt: 2 M kraus rechts, *2 re, 2 li* von *bis* wiederholen bis 4 Maschen übrig sind, 2 re, 2 M krausrechts. Die Knopflöcher sind dann in den Linken-Partien vom Bündchen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
21.02.2024 - 15:10Pia Bech wrote:
Hvorfor laver I et 2-farvet mønster, som ikke passer til at skal strikke frem og tilbage? Man skal bryde det farve flere gange, for at kunne følge mønsteret.
08.01.2024 - 19:42DROPS Design answered:
Hei Pia. Men istedefor å klippe tråden, kan du ikke bare skyve masken på den ene siden over på den andre siden der tråden du skal bruker er og da strikke 2 pinner fra retten / eller fra vrangen? Når du f.eks strikker etter diagram A.3A+B og har strikket pinne 9 med beigmelert fra vrangen og skal strikke pinne 10 med natur og fargen er på motsatt side, så skyver du bare maskene over og strikker 1 pinne vrang med natur. Men noen ganger må man klippe tråden. mvh DROPS Design
15.01.2024 - 10:00Esther Seyfried wrote:
Hallo, wird beim Muster der Hose der Faden der dunklen Wolle für die eine Masche jeweils „mitgeführt“, damit man nicht immer wieder einen neuen Faden nehmen muss?
31.12.2023 - 11:34DROPS Design answered:
Liebe Frau Seyfried, ja am besten soll der Faden der dunklen Wollen "mitgeführt", so wie beim Fair Isle stricken. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2024 - 10:59Nina wrote:
Hej! Jag stickar mössan och enligt mönstret ska resåren vara 10 cm. Jag tycker det blir mycket resår på mössan och på bilden ser det inte ut att vara så bred resår som 10 cm. Kan man göra den smalare utan att det påverkar passformen? Mvh Nina
12.11.2023 - 22:13DROPS Design answered:
Hei Nina. I oppskriften står det at man skal brette vrangborden dobbelt. Så strikkes den 10 cm og brettes, vil den da bli 5 cm, slik man ser det på bildet. Ved å ha vrangborden dobbelt, vil det bli ekstra beskyttelse for ørene til babyen og luen sitter godt. Men ønsker du en enkel vrangbord, avslutter du bare vrangborden etter 5 cm, eller ønsket lengde. mvh DROPS Design
13.11.2023 - 14:28Sylvie wrote:
Bonjour, Pour le haut du pantalon, je ne comprends pas si on le tricote en aller retour ou bien en circulaire. Merci pour votre réponse
07.08.2023 - 20:43DROPS Design answered:
Bonjour Sylvie, on tricote les côtes de la taille en rond, puis on tricote une réhausse en allers et retours, on joint à nouveau et on tricote en rond en augmentant et on divise ensuite pour les jambes que l'on tricote séparément, en rond. Bon tricot!
08.08.2023 - 09:14Mychele Massicotte wrote:
Bonjour pour le bonnet je souhaite faire la grandeur 12-18 mois et 120 mailles c'est trop grand pour moi j'imagine que c'est un erreur? merci
20.09.2022 - 20:46DROPS Design answered:
Bonjour Mme Massicotte, c'est tout à fait juste, pensez à bien vérifier votre tension et à bien conserver cette même tension en tricotant; il vous faudra plus de mailles en côtes avec les aiguilles 2,5 qu'en jersey avec les aiguilles 3 - où vous diminuerez à 102 mailles au 1er rang (soit environ 43 cm de circonférence, un peu moins que le tour de tête pour que le bonnet tienne bien). Bon tricot!
21.09.2022 - 09:13Kerstin Münst wrote:
Ab wo messe ich die 7 cm für die M-Zunahme am Ärmel der Jacke? Eine Markierung habe ich ja nur nach 5 cm Büdchen gesetzt.
10.08.2022 - 08:05DROPS Design answered:
Liebe Frau Münst, messen Sie diese 7 cm ab der Anschlagskante = 2 cm nach dem Bündchen. Viel Spaß beim stricken!
10.08.2022 - 09:18Ute Ortland wrote:
Liebes Team, ich habe leider nochmal eine Frage: Ich bin etwas irritiert. Wird die Hose in Runden oder Reihen gestrickt? Ich steige da nicht ganz durch. Vielen Dank für Ihre Hilfe. Gruß Ute
16.02.2022 - 23:38DROPS Design answered:
Liebe Frau Ortland, die Hose wird in der Runde von oben nach unten gestrickt, Sie stricken eine gefaltete Kante und dann eine Erhöhung (in Reihen) dann stricken Sie wieder in der Runde mit Zunahmen - dann teilen Sie die Arbeit für die Beine, die in der Runde, separat gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!
17.02.2022 - 10:21