Cozy Cuddle |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa fyrir börn með röndum og tátiljur úr DROPS Snow. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-25 |
||||||||||||||||||||||
PEYSA: RENDUR: Sjá mynsturteikningu M.1. 1 rúða í mynsturteikningu = 1 umferð með stuðlahópum. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Í byrjun á umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. HEKLLEIÐBEININGAR-2: 1 stuðlahópur = 2 stuðlar í sömu lykkju. ½ stuðlahópur – 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli). -------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 31-34-40 (43-46) loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 9 og natur. Heklið rendur eftir M.1 þannig (ef að það er meira pláss eftir M.1 er heklað til loka með natur): UMFERÐ 1: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 2 loftlykkjur, 2 stuðlar í næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina = 10-11-13 (14-15) stuðlahópar, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 2 stuðlar á milli 2 fyrstu stuðlahópa frá fyrri umferð (heklið í lykkju, ekki utan um hana alla), * 2 stuðlar á milli næstu 2 stuðlahópa *, endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 2 stuðla efst á síðasta stuðli = 1 stuðull af 3 loftlykkjum + 10-11-13 (14-15) stuðlahópar í umferð – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2. Endurtakið 2. umferð áfram. Þegar stykkið mælist ca 20-23-23 (27-30) cm er fitjað upp fyrir ermum í hvorri hlið þannig: Klippið frá. Heklið 16-19-19 (25-28) loftlykkjur, heklið eins og áður yfir bakstykki, í lok umferðar eru heklaðar 16-19-19 (25-28) loftlykkjur. Snúið stykkinu og heklið eins og útskýrt er í 1. umferð. Endurtakið í hinni hliðinni og haldið áfram með mynstur alveg eins og áður = 1 stuðull af 3 loftlykkjum + 20-23-25 (30-33) stuðlahópar í umferð. Þegar stykkið mælist 30-33-36 (40-45) cm klippið frá. FRAMSTYKKI: Heklið 16-16-19 (22-22) loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 9 og natur. Heklið rendur eftir M.1 og stuðlahópa alveg eins og á bakstykki = 1 stuðull af 3 loftlykkjum + 5-5-6 (7-7) stuðlahópar eftir 2. umferð. Þegar stykkið mælist 20-23-23 (27-30) cm heklið 16-19-19 (25-28) loftlykkjur fyrir ermi í annarri hliðinni alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 30-33-36 (40-45) cm klippið frá. Heklið annað framstykki til viðbótar með útaukningu fyrir ermi í gagnstæðri hlið. STROFF: Heklið 2 umferðir með stuðlahópum neðst á hvorri ermi með natur – það á að vera ca 1 stuðull af 3 loftlykkjum + 8-8-10 (10-11) stuðlahópar í umferð. KANTUR AÐ FRAMAN: Heklið 1 umferð með stuðlahópum upp meðfram kanti að framan á hvoru framstykki með natur = ca 12-13-14 (16-18) stuðlahópar. FRÁGANGUR: Saumið axla/erma sauma kant í kant – byrjið yst á hvorri ermi og saumið inn – skiljið eftir 5-6 stuðlahópa mitt að aftan fyrir op fyrir háls. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt kant í kant. HETTA: Öll hettan er hekluð í natur. Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur, eftir það eru heklaðir ca 13-14-15 (16-17) stuðlahópar í kringum kant í hálsi alveg eins og á peysu. Haldið áfram með stuðlahópa þar til hettan mælist ca 22-24-26 (29-30) cm, klippið frá. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið fallega saman efst uppi, kant í kant. Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan á að vera ca 1 - 2 cm að ofan og neðsta ca 10 - 12 cm frá neðri kanti. -------------------------------------------------------- TÁTILJUR: Lengd fótar: 10-11-12 (14-15) cm HEKLLEIÐBEININGAR-1: Í byrjun á 1 umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 fastalykkju í loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. -------------------------------------------------------- TÁTILJA: Tátiljurnar eru heklaðar sem eitt stykki og saumaðar saman við miðju að framan og miðju að aftan. Heklið 7-8-9 (10-11) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 7 og natur. Heklið fastalykkjur fram og til baka – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1 (byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni) = 7-8-9 (10-11) fastalykkjur. Þegar stykkið mælist 7-8-9 (10-10) cm er aukið út í annarri hliðinni fyrir fótinn með því að hekla 3-3-3 (4-4) nýjar loftlykkjur, haldið áfram með fastalykkjur yfir allar lykkjur = 10-11-12 (14-15) fastalykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21 (24-26) cm fellið af 3-3-3 (4-4) fastalykkjur fyrir fót með því að snúa stykkinu og hekla til baka þegar komið er að þeim. Haldið áfram með fastalykkjur yfir 7-8-9 (10-11) fastalykkjur sem eftir eru á stykki þar til stykkið mælist 22-26-30 (34-36) cm. FRÁGANGUR: Brjótið tátiljuna saman tvöfalda og saumið saman við miðju að aftan og miðju að framan með smáu spori þannig að saumurinn verði ekki þykkur – skiljið eftir op ca 5-6-7 (8-8) cm efst mitt að framan (brjótið e.t.v. upp efsta hlutann). Heklið aðra tátilju alveg eins. DÚSKUR: Gerið 2 litla dúska ca 3 cm að þvermáli – sjá www. garnstudio.com – og saumið einn dúsk mitt framan á hverja tátilju. Teppi: SjáDROPS Baby 14-21 |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (101)
Aina Jensen Melera wrote:
Hei. Vil strikke denne i 3/6 mnd. Hva blir maskeantallet? Mvh Aina
06.05.2024 - 17:45DROPS Design answered:
Hej Aina, se måleskitsen nederst i opskriften og vælg den størrelse som modsvarer målene i måleskitsen :)
08.05.2024 - 11:25Kitty wrote:
Wat zijn de cm van de panden
06.05.2024 - 08:52Kitty wrote:
Kunt u het ook in cm beschrijving
06.05.2024 - 08:51DROPS Design answered:
Dag Kitty,
Omdat dit een heel grof haakwerk is, wordt deze in toeren beschreven, omdat je overal maar een paar toeren van hebt. Het heeft dan geen zin om het in cm te beschrijven. Het is dus belangrijk dat de stekenverhouding klopt en dit en dit in de gaten te houden tijdens het haken. (Pas eventueel de naalddikte aan om deze te laten kloppen.)
08.05.2024 - 11:19Sue wrote:
Is there a pattern the same made with 8 ply yarn and a smaller 5 crochet hook. Thanks 😃
05.01.2024 - 13:22DROPS Design answered:
See previous answer - one of the links could help. Happy crocheting!
05.01.2024 - 15:41Sue wrote:
Can this pattern be modified with 8 ply yarn and a smaller 4 or 5 hook. Thanks😃
05.01.2024 - 13:19DROPS Design answered:
Dear Sue, this pattern is worked with a bulky yarn, you would have to adapt the pattern to your own tension. Please find all our crocheted jackets for babies here and for kids here. Happy crocheting!
05.01.2024 - 15:41Emilie wrote:
Rebonjour, et merci pour votre réponse rapide! Il me semble que dans les vidéos , les rayures sont faites avec 2 rangs de la même couleur. Ici on change de couleur à la fin de chaque rang, si j’ai bien compris: alors les fils doivent traverser l’ouvrage, est-ce que vous voyez ce que je veux dire? Comment puis-je faire pour ne pas les couper dans ce cas là ? Merci beaucoup
19.10.2022 - 17:22DROPS Design answered:
Bonjour Émilie, on peut effectivement couper le fil dans ce cas-là, ou bien utiliser la technique de cette vidéo qui va permettre de ne pas couper, mais de la faire suivre en hauteur, vous crochèterez ainsi alternativement ou successivement sur l'endroit/sur l'envers, du côté où se trouve le fil dont vous avez besoin. Bon crochet!
20.10.2022 - 09:42Emilie wrote:
Bonjour, J’aimerais savoir s’il faut couper les fils à chaque changement de couleur ou s’il est possible de faire autrement ? Merci beaucoup, je trouve ce modèle superbe !
19.10.2022 - 14:43DROPS Design answered:
Bonjour Émilie et merci :) Vous pouvez faire suivre les fils pour éviter d'avoir à les couper (et d'avoir trop de fils à rentrer) - retrouvez ici quelques astuces supplémentaires. Bon crochet!
19.10.2022 - 16:19Sheila Eastman wrote:
I do not understand at all how to do the sleeves. What does it mean to crochet over the back piece?Why are you making 2 separate chains? This is very badly explained!You can see that many are confused about the sleeves. I'll have to make up my own solution.
02.07.2022 - 03:42DROPS Design answered:
Dear Sheila, for the sleeve you cast on and make a chain of 16...28 chain stitches (depending on the size). Now continue working by inserting the hook in the stitch in the back and work according to the pattern. Continue working on the back until finishing the row. When you are at the end of the row, cast on and make a chain of 16...28 stitches (depending on the size). Turn the work and work as explained in the first row on the back. Here is a video on how to cast on the stitches after the back: https://www.garnstudio.com/video.php?id=30&lang=en. Happy crocheting!
02.07.2022 - 16:11Shikk wrote:
Hi, I made it past the sleevs thanks to reading the comments but I cannot for the life of me work out the left front peace. Anyone want to explain? I feel like I'm having brain block.
23.06.2021 - 00:54DROPS Design answered:
Dear Shikk, can you be more specific, in what exactly you cannot work ut in the front piece ? Happy Crafting.
23.06.2021 - 01:54Mary wrote:
I was confused at first about the stitches but printed the pattern in english and figured it out. Now I finished the back and I am confused about the sleeves. It says cast on new stitches for sleeves? Do I do the sleeves separate and sew them on at the end? Or do I crochet them on to each side of sweater. I have been crocheting a long time and this pattern is very confusing. I have made lots of baby sweaters but the way this pattern is written I just don't get it. Thanks Mary
24.01.2021 - 02:40DROPS Design answered:
Dear Mary, sleeves will be crocheted at each side of the back piece as follows (you should cut the yarn when stated), then crochet new chains for the first sleeve, work the stitches on back piece just as before (as if you wouldn't have cut the yarn and crochet chains before), and crochet new chains at the end of the row for 2nd sleeve. Turn piece and now work as before over all stitches: you have now the new stitches for the sleeves on each side (piece is now looking like a T). Happy crocheting!
25.01.2021 - 09:24