Pippa |
|
|
|
Heklaður páskahéri með blómi úr DROPS Paris. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-766 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á þræðinum og snúið bandinu einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir, dragið í endann á þræðinum svo að hægt sé að draga hringinn saman. Festið endann á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. 2 FL HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, sláið uppá og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkjan í umferð hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð með nýja litnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PÁSKAHÉRI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er efst á höfðinu með því að gera GALDRAHRING – sjá útskýringu að ofan – með heklunál nr 4 með Paris litnum natur. HÖFUÐ: UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 16 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl. UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl. UMFERÐ 9-12: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl í umf. UMFERÐ 13: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, síðan eru 2 FL HEKLAÐAR SAMAN * - Sjá skýringu að ofan, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl. UMFERÐ 14: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 15: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 17: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 18: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 19: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 20: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Klippið frá og festið endann. Fyllið höfuðið með vatti. BÚKUR Byrjað er neðst á búknum með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum skærbleikur með heklunál nr 4. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. Skiptið yfir í litinn ljós bleikur í síðustu fl – LESIÐ LITASKIPTI – FL. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl – skiptið yfir í litinn skærbleikur í síðustu fl. UMFERÐ 5: *Heklið 1 fl í næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl – skiptið yfir í litinn ljós bleikur í síðustu fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl – skiptið yfir í litinn skærbleikur í síðustu fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. Skiptið yfir í litinn ljós bleikur í síðustu fl. UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. Skiptið yfir í litinn skærbleikur í síðustu fl. UMFERÐ 9: Heklið eins og umf 7. UMFERÐ 10: Heklið eins og umf 8. UMFERÐ 11: Heklið eins og umf 7 – en skiptið yfir í litinn natur í stað ljós bleikur í síðustu fl. UMFERÐ 12-13: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl í umf. UMFERÐ 14: Heklið 1 fl í næstu 4 fl, heklið nú 2 FL HEKLAÐAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 15-16: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl í umf. UMFERÐ 17: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 18-19: Heklið 1 fl í hverja fl = 35 fl í umf. UMFERÐ 20: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl. UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti. FÓTUR: Byrjað er yst á fæti með því að gera GALDRAHRINGUR- sjá útskýringu að ofan með litnum millibleikur með heklunál nr 4. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl í umf – skiptið yfir í litinn natur í síðustu fl í umf 4. UMFERÐ 5-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Fyllið fótinn með vatti. Heklið annan fót á sama hátt. HÖND: Byrjað er yst á hendi með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan með litnum millibleikur með heklunál nr 4. Heklið umf 1-4 eins og fótur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í næstu 6 fl, heklið nú 2 FL HEKLAÐAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan = 7 fl. UMFERÐ 6-15: Heklið 1 fl í hverja fl = 7 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Fyllið hálfa höndina með vatti. Heklið aðra hönd á sama hátt. RÓFA: Byrjað er að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan með litnum ljós bleikur með heklunál nr 4. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang (fyllið ekki með vatti). EYRA: Byrjað er neðst á eyra með því að gera 8 ll (7 ll + 1 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 3 með litnum natur. UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja ll frá 2. ll frá heklunálinni = 7 fl. Snúið við. UMFERÐ 2-8: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl, snúið við = 7 fl í umf. UMFERÐ 9: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. fl, 1 fl í næstu 4 fl, hoppið yfir næstu fl, 1 fl í síðustu fl = 5 fl. Snúið við. UMFERÐ 10: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl = 5 fl. Snúið við. UMFERÐ 11: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. fl, 1 fl í næstu 2 fl, hoppið yfir næstu fl, 1 fl í síðustu fl = 3 fl. Snúið við. UMFERÐ 12: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. fl, heklið næstu 2 fl saman = 1 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið annað eyra á sama hátt. BLÓM: Heklið með heklunál nr 3 með litnum skærbleikur þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 ll, síðan 6 fl um hringinn, endið umf og skiptið yfir í litinn ljós bleikur þannig: Stingið heklunálinni í 1. fl í umf, sláið uppá með litnum ljós bleikur og dragið nýja þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. UMFERÐ 2: * Heklið 4 ll, 1 kl í næstu fl frá umf 1 *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum. Heklið nú 4 ll, endið umf og skiptið yfir í litinn skærbleikur þannig: Stingið heklunálinni í 1. fl frá umf 1, sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum skærbleikur og dragið nýja þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni = 6 blöð með litnum ljós bleikur. UMFERÐ 3: * Heklið 5 ll, snúið næsta blaði frá umf 2 að þér og heklið frá bakhlið af blaðinu þannig: Stingið heklunálinni í næstu fl frá umf 1 (til hægri á undan kl frá umf 2), heklið 1 kl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið með 5 ll og 1 kl í 1. fl frá umf 1 = 6 blöð með litnum skærbleikur. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. FRÁGANGUR: Brjótið botninn á eyrum saman við miðju og saumið þau föst á höfuðið. Saumið blómið fast neðan við annað eyrað. Saumið einn kross fyrir nef með litnum millibleikur og augu með litnum svartur. Saumið höfuðið á búkinn með smáu spori. Saumið fætur og hendur í hvora hlið á búknum með fínu spori. Saumið rófuna fasta aftan á búkinn. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Pippa Koivu wrote:
Hey. This is so nice to see, name is Pippa as my too. I Will make this bunny to our grandchilder. Greetings Pippa Koivu
23.03.2018 - 21:23Therese wrote:
Er denne opskrift og 21-42 ens?
16.03.2015 - 19:57DROPS Design answered:
Hei Therese. Ja, de er ens. Denne model blev senere inkluderet i BabyDROPS 21
18.03.2015 - 15:44Domi wrote:
Je l'ai réalisé pour ma nièce, car malgré ses 14 ans, elle adore les peluches. Elle le trouve adorable, ce petit lapin, et moi aussi d'ailleurs. Il est facile à réaliser les points de crochet sont faciles à réaliser. Merci Garnstudio pour tous les modèles gratuits que vous nous proposer !
06.07.2014 - 23:02