Peach Melba |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð tunika úr DROPS Safran, prjónuð frá hlið í garðaprjóni, gatamynstri og tölum að framan. Stærð S - XXXL
DROPS 139-3 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTMYNSTUR: UMFERÐ 1 (= rétta): 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri), 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt (= 17 lykkjur). UMFERÐ 2 (= ranga): 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (= 17 lykkjur). UMFERÐ 3-4: Prjónið eins og umferð 1 og 2. UMFERÐ 5: 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkju brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (= 18 lykkjur). UMFERÐ 6: 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (= 18 lykkjur). UMFERÐ 7: 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt, 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt (= 19 lykkjur). UMFERÐ 8: 5 lykkjur slétt, 7 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (= 19 lykkjur). UMFERÐ 9: 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 lykkjur slétt (= 21 lykkja). UMFERÐ 10: Fellið af 4 lykkjur (1 lykkja er nú á hægri prjóni), 2 lykkjur slétt, 7 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (= 17 lykkjur): Endurtakið þessar 10 umferðir. GATAMYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. STUTTAR UMFERÐIR-1: Umferð 1 er prjónuð frá neðri kanti (= frá röngu). * Prjónið að 1. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið að 2. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið að 3. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið að 1. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur. * Endurtakið frá *-*, þ.e.a.s. að það eru 10 umferðir neðst og 2 umferðir efst í 1. mynstureiningu. STUTTAR UMFERÐIR-2: Umferð 1 er prjónuð frá neðri kanti (= frá röngu). * Umferð 1 er prjónuð frá neðri kanti (= frá röngu). * Prjónið að 1. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið að 2. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið að 3. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið að 1. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið að 4. Prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur. * Endurtakið frá *-*, þ.e.a.s. að það eru 12 umferðir neðst og 2 umferðir efst í 1. mynstureiningu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið frá miðju að framan – prjónað er frá hægri kant að framan. Til að fá pláss fyrir allar lykkjur, prjónið fram og til baka á hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið LAUST upp 149-154-158-163-168-173 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur (umferð 1 = ranga). Næsta umferð er prjónuð ofan frá þannig (= rétta): 3 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11-11-11-12-12-12 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið þær 27-32-36-32-37-42 lykkjur sem eftir eru slétt (= 10 hnappagöt). Prjónið síðan 5 umferðir slétt fram og til baka yfir allar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð ofan frá þannig (= rétta): 4-6-7-9-11-13 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, M.1 (=25 lykkjur), 103-106-109-112-115-118 lykkjur garðaprjón og síðan KANTMYNSTUR yfir síðustu 17 lykkjur – sjá útskýringu að ofan! Næsta umferð er prjónuð frá neðri kanti þannig (= ranga) jafnframt því sem sett eru 3 prjónamerki í stykkið þannig: Kantmynstur yfir fyrstu 17 lykkjur, setjið 1. prjónamerki, prjónið 65-65-67-67-69-69 lykkjur garðaprjón, setjið 2. prjónamerki, prjónið 38-41-42-45-46-49 lykkjur garðaprjón, setjið 3. prjónamerki, prjónið M.1 og prjónið síðustu 4-6-7-9-11-13 lykkjur garðaprjón. Snúið og prjónið til baka í garðaprjóni og mynstri eins og fyrri umferð. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR-1 með byrjun frá röngu – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 3 cm efst við háls (mælt frá uppfitjunarkanti þegar stykkið liggur flatt), aukið út um 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 efstu lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 9 sinnum og síðan í 4. hverri umferð 3 sinnum. JAFNFRAMT eftir 8 útaukningar er sett 1 nýtt prjónamerki eftir 4 lykkjur frá toppi (= 4. prjónamerki). Prjónið síðan STUTTAR UMFERÐIR-2. Eftir allar útaukningu eru 8 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki efst og alls 161-166-170-175-180-185 lykkjur á prjóni (eftir 1 heila mynstureiningu af KANTMYNSTUR). Þegar stykkið mælist ca 21-22-24-25-28-30 cm mælt á milli 2. og 3. prjónamerkis – mælt frá uppfitjunarkanti og út (stillið af eftir 1 heila mynstureiningu með stuttum umferðum) prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið þar til 3-3-4-4-5-5 lykkjur eru eftir á undan 3. prjónamerki (það eiga að vera 44-46-48-50-53-55 lykkjur eftir), setjið þær lykkjur sem nýlega voru prjónaðar á þráð. Prjónið út umferðina eins og áður, snúið og prjónið til baka eins og áður yfir 44-46-48-50-53-55 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka einungis yfir lykkjur á prjóni (= hægri ermi). HÆGRI ERMI: Prjónið mynstur og garðaprjón eins og áður með stuttum umferðum þannig: * Prjónið að 3. prjónamerki (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur), snúið og prjónið til baka, prjónið að 4. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til ermin mælist ca 26-28-30-32-34-36 cm í neðri kanti – endið eftir 1 umferð frá réttu. Setjið lykkjur á þráð. HÆGRA HLIÐARSTYKKI: Setjið til baka lykkjur frá fyrri þræði á prjóninn og prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður. Prjónið síðan mynstur eins og áður og stuttar umferðir þannig: * Prjónið að 1. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið að 2. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 2-4-4-6-6-8 cm efst undir ermi – endið eftir 1 umferð frá réttu yfir allar lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið allar lykkjur sem eru á prjóni + að lykkjur af þræði eru prjónaðar til baka inn á hringprjón (þessi umferð er prjónuð frá röngu án þess að prjóna stuttar umferðir). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð til baka frá réttu með mynstri eins og áður. Haldið síðan áfram með mynstur, garðaprjón og stuttar umferðir-2 eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-44-46-52-56 cm mælt á milli 2. og 3. prjónamerkis (stillið af eftir heila mynstureiningu með stuttum umferðum). Prjónið nú næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið þar til 3-3-4-4-5-5 lykkjur eru eftir á undan 3. prjónamerki, það eiga nú að vera 44-46-48-50-53-55 lykkjur eftir, setjið lykkjur sem nýlega voru prjónaðar á þráð. Prjónið út umferðina eins og áður, snúið og prjónið til baka eins og áður yfir 44-46-48-50-53-55 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka einungis yfir lykkjur á prjóni (= vinstri ermi). VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi. VINSTRA HLIÐARSTYKKI: Prjónið á samaa hátt og hægra hliðarstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið allar lykkjur sem eru á prjóni + lykkjur af þræði eru prjónaðar til baka inn á hringprjóninn. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið nú áfram með mynstur, garðaprjón og stuttar umferðir-2 eins og áður. Þegar stykkið mælist 6 cm, mælt á milli 2. og 3. prjónamerkis, byrjar úrtaka efst í hálsi. Fækkið lykkjum í næstu umferð frá réttu með því að prjóna 2. og 3. lykkju frá toppi slétt saman. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð 2 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umferð 9 sinnum. JAFNFRAMT eftir 4 úrtökur, prjónið til loka með STUTTAR UMFERÐIR-1 (takið frá 4. prjónamerkið). Þegar úrtöku er lokið eru 149-154-158-163-168-173 lykkjur á prjóni (eftir 1 heila mynstureiningu af KANTMYNSTRI). Prjónið þar til stykkið mælist ca 19-20-22-23-26-28 cm mælt á milli 2. og 3. prjónamerkis (stillið af eftir heila mynstureiningu af KANTMYNSTRI og einnig af M.1 ef það hentar). Prjónið síðan 9 umferðir slétt yfir allar lykkjur að kanti að framan. Fellið síðan LAUST af frá röngu – það er mikilvægt að affellingarkanturinn verði ekki stífur – ef hann er það, þá kemur flíkin ekki að falla fallega. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (83)
Martha wrote:
Hallo zusammen. Bin etwas irritiert. Bei der 2ten verkürzten Reihe steht am Ende „ unten 12 Reihen und oben 2 Reihen per Rapport „ Mit der vierten Markierung komme ich immer auf 4 Reihen per Rapport. Hänge jetzt fest. Denke ich vielleicht verkehrt ? Für Hilfe wäre ich sooo dankbar. Das ist eine so wunderschöne, Zeitlose Weste. LG
14.03.2023 - 09:31DROPS Design answered:
Liebe Martha, nach 4. Markierung bis zur Ende der Reihe sind es nur 2 Reihen: 2 R bis 1. Mark. + 2 R bis 2. Mark + 2 R bis 3. Mark + 2 R bis 1. Mark + 2 R bis 4. Mark + 2 R über alle M = 12 R und nur 2 nach 4. Mark. kann das Ihnen helfen?
14.03.2023 - 10:20Ada wrote:
Klopt het dat in de 2e naald de laatste 8 steken niet gebreid moeten worden? En in de 4e, 6e, enz. ook niet?
22.07.2021 - 14:50Brigitte Gradl wrote:
Hallo, wie kann ich das Muster für Socken stricken, da es ja keine Rückreihe gibt
15.06.2021 - 09:15DROPS Design answered:
Liebe Grau Gradl, wenn Sie das Muster M.1 in der Runde stricken möchten, dann stricken Sie die Maschen, wie Sie bei den Hinreihen aussehen sollen, dh alle Kästchen werden rechts gestrickt, die mit dem schwarzen Quadrat werden links gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
15.06.2021 - 13:23Miriam Van Hoorn wrote:
Ik ben net begonnen aan dit patroon. Ik vind het heel mooi. Ik denk dat t ook mooi staat. Mijn vraag is de volgende. Hoe vaak moet ik de verkorte naalden breien? Moet ik dat steeds elke keer dat ik onderaan het patroon ben herhalen of alleen 1 x als het genoemd wordt dus 1x verkorte naalden 1 en 1x verkorte naalden 2?
03.06.2015 - 23:06DROPS Design answered:
Hoi Miriam. Je breit steeds de verkorte toeren over het hele patroon. Enige wissel is van verkorte toeren 1 naar 2 en terug naar 1.
04.06.2015 - 13:27Barcelo wrote:
Bordure fantaisie rang 5 compte 18 mailles,je n'en compte que 17 pouvez-vous m'éclairer Bien merci
01.08.2013 - 10:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Barcelo, le rang 5 a bien 18 m : 3 m end, 1 jeté, 2 m ens à l'env, 1 jeté, 2 m ens à l'env, 1 jeté, 1 m torse à l'end, 1 jeté, 2 m ens à l'end, 1 m env, 2 m ens torse à l'end, 1 jeté, 4 m end (= 18 m). Bon tricot !
01.08.2013 - 10:56Elsa Ruiz wrote:
Hermoso modelo, será uno de mis p´róximos proyectos
29.12.2012 - 21:45Clary wrote:
Combien de série de rangs raccourcis?ce n'est pas clair
13.11.2012 - 14:10DROPS Design answered:
Bonjour Clary, les rangs raccourcis 1 se tricotent jusqu'à ce que vous ayez fait 8 augmentations. Les rangs raccourcis 2 se répètent ensuite jusqu'à la fin du devant gauche où on reprend les rangs raccourcis 1. Bon tricot !
13.11.2012 - 14:22Lena Mörk wrote:
Ska vändningarna göras hela koftan? Eller bara två gånger? Lena
15.08.2012 - 14:57DROPS Design answered:
Hej, du gör vändingarna runt hela koftan! Lycka till!
16.08.2012 - 15:43Lena Mörk wrote:
Ska vändningarna göras hela koftan? Eller bara två gånger? Lena
14.08.2012 - 18:57Ana wrote:
Soy de Argentina y me gusto mucho este modelo. Gracias por publicar patrones gratuitos
25.06.2012 - 17:31