Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni | |
= setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Comfort Chronicles |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónað poncho úr DROPS Nepal með ermum og klauf í hliðum. Kaðlar og áferðamynstur í ferningum. Ein stærð.
DROPS 172-22 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LENGJUR: 1. Lengja: Ferningur 1, 2 og 3. 2. Lengja: Ferningur 3, 1 og 4 (= úrtaka í hálsmáli). 3. Lengja: Ferningur 2, 3 og 1. FERNINGAR: Fyrsti ferningur á einni lengju: Fitjið upp 38 l á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið ferning eftir útskýringu. Endið með 1 umf slétt frá röngu. Annar ferningur á einni lengju: Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið ferning eftir útskýringu. Endið með 1 umf slétt frá röngu. Síðasti ferningur á einni lengju: Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið ferning eftir útskýringu. Endið með 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Fellið síðan af frá röngu með sl yfir allar l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki eru prjónuð eins og 2 stykki, nema ferningur 4 sem er með affellingu fyrir hálsmáli. Fyrir hvert stykki eru prjónaðar 3 lengjur með 3 mismunandi ferningum. Allt 4 mismunandi ferningar. Ferningarnir eru saumaðir saman á lengdina. LESIÐ LENGJUR og FERNINGAR, sjá teikningu. Lengjurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FERNINGUR 1: Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 12 l jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 50 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið A.1a. Prjónið síðan A.1b alls 2 sinnum á hæðina, endið með A.1c. Prjónið síðan 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 38 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. FERNINGUR 2: Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 7 l jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 45 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan A.2a, A.2b alls 9 sinnum á breiddina, endið með A.2c. Endurtakið A.2 þar til ferningurinn mælist ca 1 cm minni en fullkláraður FERNINGUR 1 (stillið af eftir umf frá röngu). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 7 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir síðustu 2 l í hvorri hið) = 38 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. FERNINGUR 3: Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 18 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 56 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan A.3a, A.3b alls 3 sinnum á breiddina, endið með A.3c. Haldið svona áfram og endurtakið A.3 þar til ferningurinn mælist ca 1 cm minni en fullkláraður FERNINGUR 1 (stillið af að prjónaðar séu 3 umf á eftir síðasta kaðli). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAM er fækkað um 18 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 38 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. FERNINGUR 4 – BAKSTYKKI: Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 2 l jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 40 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan A.4 með 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. Endurtakið A.4 á breiddina og á hæðina – JAFNFRAMT þegar ferningurinn mælist 20 cm er fellt af fyrir hálsmáli með byrjun frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 7 l, fellið af næstu 26 l, prjónið þær 7 l sem eftir eru eins og áður. ATH: 1 kantlykkja við háls er prjónuð í garðaprjóni. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l = 6 l eftir á öxl. Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist ca 1 cm minni en fullkláraður FERNINGUR 1 (stillið af að prjónað sé til loka hálf eða heil mynstureining á hæðina). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu, 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Þegar fellt hefur verið af þá er hin öxlin prjónuð á sama hátt. FERNINGUR 4 – FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 2 l jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 40 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan A.4 með 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. Endurtakið A.4 á breidd og á hæð – JAFNFRAMT þegar ferningurinn mælist 18 cm (stillað af eftir heilli eða hálfri mynstureiningu á hæðina) fellið af fyrir hálsmáli með byrjun frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 12 l í mynstri eins og áður, setjið næstu 16 l á þráð fyrir hálsmáli og prjónið þær 12 l sem eftir eru eins og áður. Fellið síðan af l fyrir hálsmáli í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 6 l eftir fyrir öxl. Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist ca 1 cm minni en fullkláraður FERNINGUR 1 (og stillið af eftir FERNINGUR 4 á bakstykki). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu, 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Þegar fellt hefur verið af er hin öxlin prjónuð á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman lengjurnar á lengdina eins og útskýrt er í mynsturteikningu – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið síðan axlasauma. KRAGI: Kraginn er prjónaður í hring á stutta hringprjóna. Byrjið frá réttu með Nepal og hringprjóna nr 5 mitt ofan á annarri öxlinni og prjónið upp 96 l (meðtaldar 16 l af þræði á framstykki). Prjónið 1 umf br. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til kraginn mælist 13 cm. Fellið af með * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til allar l hafa verið felldar af (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Brjótið kragann út. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna. Fitjið upp 106 l á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 6 l jafnt yfir = 112 l. Prjónið síðan A.5a yfir allar l (= 14 mynstureiningar hringinn). Þegar A.5a hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað A.5b. Endurtakið síðan A.5b á hæðina þar til stykkið mælist 19 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermina niður ca 33 cm neðan við öxl, hinir 38 cm (= klauf). Saumið niður hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (21)
Evertdina wrote:
Ik heb hem pas gemaakt in twee kleuren. Prima te volgen patroon. Al heb ik wel wat aanpassingen gemaakt. Jammer dat ik geen foto kan plaatsen met het eindresultaat.
26.04.2023 - 13:49Brigitte wrote:
Da hat mir doch jemand Wolle geschenkt, mit der ich erst nichts anfangen konnte und dann sah ich diese Anleitung. Ich stricke die Quadrate nicht einzeln, sondern stricke sie direkt zusammen. Es sieht einfach nur toll aus. Die Maße passen absolut. Ich bin total begeistert. Werde auch Vorder- und Rückenteil in einem Teil stricken, so muß ich nicht soviel vernähen ;) Danke für die Anleitung zu diesem wunderschönen Poncho.
09.09.2022 - 13:44Valérie wrote:
Bonjour, Si j'ai bien compris, on doit tricoter 18 carrés individuellement, puis les coudre pour former d'abord des bandes puis coudre les bandes entre elles pour faire le poncho ? Et alors pourquoi une aiguille circulaire pour les carrés ? Je suis perdue, désolée...
30.08.2022 - 15:21DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, pas exactement, vous tricotez des bandes de carrés (cf flèche au milieu du schéma) - cf BANDES; vous allez tricoter 3 bandes pour le devant et autant pour le dos et les assembler entre elles. On tricote ici sur aiguille circulaire en allers et retours, habitude nordique; le col et les manches sont tricotés en rond, sur la petite aiguille circulaire. Bon tricot!
30.08.2022 - 16:07Patti Fisher wrote:
Hi . Am starting the sleeve. Is it sewn together into a circle before attached or left open at the bottom?
23.10.2021 - 22:07DROPS Design answered:
Dear Patti, the sleeve is knitted ON THE ROUND. It is not open, but you will not need to sew it, into a circle as it is already a circle. Happy Stitching!
24.10.2021 - 03:11Diane Caron wrote:
Does anyone know how to knit square 1 flat and achieve the cable. Very confused here.
13.02.2021 - 17:57Diane Caron wrote:
How is it possible to net square 1 flat and still achieve the cable?
13.02.2021 - 17:56DROPS Design answered:
Dear Mrs Caron, at the end of square, you will first decrease evenly 12 stitches then knit2 rows over the 38 stitches. The decreases should compensate the stitches incraesed at the beginning for the cables, and that way you should have same height at the top as at the bottom. Happy knitting!
15.02.2021 - 08:24Ann-Kristin wrote:
Hvorfor skal man legge opp 38 masker for så å ta ut til 50, så felle til 38på rute 1, for så øke til 45 igjen på rute 2,og så felle til 38,for så å legge ut til 56 og felle til 38 på rute 3.forstår ikke alle disse inn og ut leggene. Skal ikke rutene være kvadratiske?
27.06.2019 - 15:05DROPS Design answered:
Hei Ann-Kristin. Jo, rutene skal være kvadratiske og like store. Fordi det er ulike strukturer og mønster på de ulike rutene må du legge til/trekke fra masker for å få dem til å bli like store. En flette trekker seg sammen, og trenger derfor fler masker for å oppnå samme størrelse som feks glattstrikk. Det er derfor vanlig å øke rett før du begynner å strikke flette, og felle det samme antall masker når fletten er ferdig. Andre strukturer med rett og vrang oppfører seg også ulikt i forhold til både fletter og glattstrikk. Det er derfor det økes og felles ulikt for hver rute. God fornøyelse
28.06.2019 - 14:42Vincent wrote:
Bonjour, sur le carré 4 devant, je ne comprends pas comment faire concrètement \"Tricoter les 12 premières m comme avant, glisser les 16 m suivantes sur un arrêt de mailles pour l\'encolure, et tricoter les 12 dernières m comme avant\", car si je mets de côté 16 mailles de coté, puis je tricote les 12 mailles suivantes à la suite, cela fait un \"pli\". Auriez-vous une vidéo de ce passage? Merci beaucoup
22.01.2019 - 22:36DROPS Design answered:
Bonjour Vincent, tricotez les 16 mailles de l'encolure avant de les glisser en attente, ainsi vous n'avez pas à couper le fil, et vous n'avez pas de pli. Bon tricot!
23.01.2019 - 10:06Birgit Mehl wrote:
Hej Kan man ikke strikke de 3 ruder til henholdsvis forstykke og bagstykke, således man er fri for at sy dem sammen? Det er jo et spørgsmål om, der er samme antal pinden hver rude. Mvh Birgit
18.01.2019 - 15:04DROPS Design answered:
Hei Birgit. Rutene er omtrent like store, så du kan gjerne strikke dem i ett stykke om du ønsker det. God fornøyelse.
25.01.2019 - 14:24Nicole wrote:
Hallo Würden Sie bitte noch ein Video einstellen wie man am besten die Streifen zusammen fügt damit die Naht flach bleibt. Vielen Dank vorab. Liebe Grüße
03.12.2017 - 20:42DROPS Design answered:
Liebe Nicole, dieses Video zeigt wie man die Streifen (mit Krausmaschen auf beiden Seiten) zusammennähen wird. Viel Spaß beim fertigstellen!
04.12.2017 - 10:27