Wild Blueberries |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Sett með prjónuðum galla, prjónaður ofan frá og niður með norrænu mynstri og hringlaga berustykki, plús húfu með eyrnaleppum og dúsk úr DROPS Karisma. Stærð börn 1-6 ára
DROPS Children 27-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALLI: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan): Í þeim umferðum þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er prjónað með þeim lit í rönd eða grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið, en skipt er um þræði á milli kants að framan og fram- og bakstykki (þetta er gert til að sleppa við að festa enda yst í kanti að framan). ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til að reikna út hversu oft eigi að fella af/auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7 lykkjur) = 10,6. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca í 10. og 11. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat – ATH: Lykkjur er ekki fækkað/felldar af yfir kant að framan). ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi og innan verðu á skálm): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 1½-2 cm frá kanti í hálsmáli, fellið síðan af fyrir næstu 5-5-6-6 hnappagötum með 7½-8-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Til að auðveldara verði að áætla lengd á ermum og skálmum er gallinn prjónaður ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-96 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á stutta hringprjóna nr 3 með litnum bensínblár DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 7-5-4-1 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-88-95 lykkjur. Prjónið síðan upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur, þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð (= 11-12-11-12 mynstureiningar 6-6-7-7 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (svo að mynstrið byrji og endi alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið – ATH: Ekki er aukið út í þessum lykkjum) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri – LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 187-203-220-239 lykkjur á prjóni. Prjónið 0-1-0-1 cm með litnum grænn. Stykkið mælist nú ca 13-14-15-16 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). Stykkið er síðan prjónað áfram í sléttprjóni með litnum grænn. Í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 7-7-10-7 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 194-210-230-246 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 29-31-34-36 lykkjur eins og áður, setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 52-56-62-66 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið 29-31-34-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 122-130-142-150 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-39 lykkjur inn frá hvorri hið (= 58-62-68-72 l á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-10-12-12 cm aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-20-24-24 cm = 130-138-150-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38 cm frá handveg endar kantur við miðju að framan. Fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 124-132-144-152 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón í hring yfir allar lykkjur í ca 3 cm – stykkið mælist nú 32-34-38-41 cm frá handvegi og 45-48-53-57 cm frá miðju að framan (mælt án stroffs í hálsi). Nú skiptist stykkið upp í skálmar. SKÁLM: Byrjið við miðju að framan, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón hringinn yfir fyrstu 62-66-72-76 lykkjur (þær 62-66-72-76 lykkjur sem eftir eru bíða á hringprjóninum). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferð (= innan á skálm). Þegar skálmin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur á innanverðri skálm – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 3.-4.-6.-7. hverri umf alls 10-10-11-11 sinnum = 42-46-50-54 lykkjur. Þegar skálmin mælist 13-18-25-31 cm er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm (eða að óskuðu máli). Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 65-70-75-80 lykkjur. Síðan er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur af hringprjóni á sokkaprjóna nr 4 og prjónið hina skálmina alveg eins. Allur gallinn mælist ca 66-74-88-98 cm frá miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). ERMI: Setjið inn lykkjur af öðrum þræði á sokkaprjóna nr 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur = mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón í hring með litnum grænn. Þegar ermin mælist 2-2-1-1 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-4.-4. hverri umf alls 7-9-10-12 sinnum = 34-34-36-36 l. Þegar ermin mælist 10-12-15-18 cm er aukið út um 6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm (eða að óskaðri lengd). Í næstu umf eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 50-50-55-55 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið hægi stroff-kant yfir vinstra stroff-kant og saumið neðst með smáu spori. Saumið tölur í vinstri stroff-kant. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 lykkjurá eftir hverju prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). SNÚRA: Setjið 4 lykkjur saman á einn sokkaprjón nr 3. Prjónið 1 umferðir slétt, * færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á prjóni án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt aftur yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* að óskaðri lengd. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Fitjið upp 96-112 lykkjur á hringprjóna nr 3 með litnum bensínblár DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-16 lykkjur jafnt yfir = 84-96 lykkjur. Prjónið síðan mynstur í hring eftir A.2 (= 7-8 mynstureiningar 12 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 14 cm. Prjónið síðan með litnum grænn þar til stykkið mælist 15-17 cm. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 14-16 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 36-48 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2, prjónið 1 umferð slétt og prjónið allar lykkjur aftur slétt saman 2 og 2 = 9-12 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 20-22 cm tilbúin. EYRNALEPPUR: Fitjið upp 40-44 lykkjur með litnum bensínblár DROPS Karisma og deilið lykkjum niður á 2 sokkaprjóna nr 3 með 20-22 lykkjur á hvorum prjóni. Prjónið sléttprjón í hring á þessum 2 prjónum – ATH: Herðið aðeins á þræði í hverri skiptingu á milli þessa 2 prjóna þegar prjónað er. Þegar eyrnaleppurinn mælist 5-6 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-5 sinnum = 4 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið SNÚRA – sjá útskýringu að ofan, yfir þær lykkjur sem eftir eru og þar til snúran mælist ca 20-25 cm. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjur, herðið að og festið vel. Prjónið annan eyrnalepp á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið eyrnaleppana ca 3 cm inn undir stroffið á húfunni og saumið niður á röngu – ATH: Það á að vera ca 13-15 cm á milli eyrnaleppa að framan (= ca 7-9 cm á milli eyrnaleppa að aftan). Gerið einn dúsk með litnum grænn ca 4-5 cm að þvermáli og saumið dúskinn á toppinn á húfunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (97)
Monica-Yvonne Lund wrote:
Hei DROPS, Ser ut til at det er gjort en feil i mønster A-1 str. 3/4 + 5/6 år. På linje 9 og 13 så blir det lagt ut 1 maske på begynnelsen av rapporten begge gangene. Hvis man følger dette så blir stjernen ikke midtstilt i rapporten og kan komme ut skjevt. Alle pinner med utlegg av maske må byttes på hvilken side av rapporten masken skal legges ut, start fra pinne 13 og oppover. Vennlig hilsen Monica-Yvonne Lund Vennlig hilsen Monica-Yvonne Lund
10.04.2024 - 17:40Solene Maelys Cordet wrote:
Bonjour :) j’espère que vous allez bien ! Je souhaiterais adapter ce modèle à un nouveau né, auriez-vous des conseils ? Un immense merci !!
26.07.2023 - 14:37DROPS Design answered:
Bonjour Solene, vous trouverez les ensembles pour les nouveau-nes sur notre page ICI. Vous pouvez choisir un et ajouter un motif jacquard que vous aimez. Bon tricot!
26.07.2023 - 14:57Johanne Meek wrote:
Bonjour, Comment arriver à 187 mailles après le diagramme ? Cela inclut ou exclut les mailles de bordure( 10 au total). Je tente de faire les déductions…..à la fin du diagramme nous aurons 16 mailles x 11( car il y a ce nombre de motifs)= 176 ??? De plus que voulez vous dire à la page 4 : « Jusqu’à ce qu’il reste 6 m » Je ferai des bas en attendant votre réponse…..fatiguée de de défaire…… Merci, Johanne
26.06.2023 - 14:39DROPS Design answered:
Bonjour Mme Meek, dans la 1ère taille, vous commencez avec 77 mailles, et vous tricotez ainsi: 5 m point mousse, 11x les 6 m de A.1, (= vous répétez les 6 m de A.1 jusqu'à ce qu'il reste 6 mailles sur l'aiguille gauche et terminez ainsi: tricotez la 1ère m de A.1 et 5 m point mousse (soit = 5+(11x6)+1+5=77); à la fin de A.1, il y a 16 m dans chaque A.1 soit: 5 +(11x16)+1+5=187 mailles. Bon tricot!
26.06.2023 - 16:07Bente Engmann wrote:
Har begynt på nytt og strikker str:2 år og nu er jeg der det står : strikk mønster etter diag.A1. til det gjenstår 6 m på pinnen ( hva menes det med det ? ) og og skal jeg begynne med 1 hvit ( ikke kast i tillegg ? ) og på 3 rad står det 1 kast, skal det strikkes 7 masker + et kast hver gang hele runden ? MVH. Bente Engmann.
05.06.2023 - 13:41Nel wrote:
Ik brei met Karisma. Mijn proeflapje klopte met de voorgeschreven aantallen nld. :28 =10 cm. In het patroon ben heb ik nu veel minder naalden in 10 cm. Ik denk dat ik nu het A2 patroon moet pakken om aan 13 cm te komen voor de kleinste maat.
14.03.2023 - 22:47DROPS Design answered:
Dag Nel,
Als de stekenverhouding verder wel in de breedte klopt, kun je op bepaalde plekken in het patroon een aantal extra naalden breien om aan de hoogte te komen, bijvoorbeeld bij de naalden waar maar 1 kleur gebruikt wordt.
01.04.2023 - 19:54Tone Patrick wrote:
Hei, ønsker å strikke dressen i str 3/4 og 5/6, men syntes det er vanskelig å strikke bærestykket med økninger når det ikke står hvor mange masker jeg skal ha etter hver økning. Jeg er en erfaren strikker og tenker at dette er noe flere vil ha problemer med.
27.02.2023 - 12:55DROPS Design answered:
Hei Tone. Oppskriftene våre blir skrevet på ulike måter for å tilfredstille alle brukerne. Noen liker å "lese"diagram der man ser økningene i diagrammet og der man selv enkelt kan telle og gang med antall rapporter på hva maskeantallet skal være. Mens andre liker å vite maskeantallet etter hver økeomgang. Ta en titt på f.eks DROPS Children 37-5, der er økeomgangene vist med pil og hvor mange masker det er etter økningene. Vanskelig å tilfredstille alle da dette er personlig smak og behag. mvh DROPS Design
27.02.2023 - 14:02Helen Aundal wrote:
Hvor mange cm strikkes på bolen, før en begynner på opphøyningen bak? I oppskriften ser det ut som om den strikkes før bolen.
20.02.2023 - 13:15DROPS Design answered:
Hej Helen, den strikker du allerede efter vrangborden i halsen, du starter med at strikker der hvor det står BÆRESTK :)
23.02.2023 - 15:20Catherine wrote:
This may be a silly question but is there a best way to sew the ear flaps under the rib rim of the hat? Running stitch, mattress stitch, or any other way to maintain the stretch of the rib brim? Thanks! Catherine
11.02.2023 - 15:44DROPS Design answered:
Dear Catherine, the earflaps can be sewn with matress stitch. What's important it that the seam is flat. We recommend first joining the upper part of the ear flap (with mattress stitch, for example) and then join to the rest of the hat, making sure that the seam is flat. Happy knitting!
12.02.2023 - 23:16Catherine Frew wrote:
Hi. This is my first time knitting fair isle. I wish the number of stitches had been given for after each increase row in A1 as I have completed the yoke and find I have 190 stitches (not 187). I really don’t want to rip it out but am unsure if I can carry on by either increasing evenly by 4 to give me 194 or 7 stitches (197). Which would be best - or do I really have to start A1 again? Thanks for your advice.
03.12.2022 - 10:36DROPS Design answered:
Dear Mrs Few, in the first size you work A.1 a total of 11 times in width, and there are 16 sts in each A.1 when all increases are done (= 5 front band sts, (16x11), 1st st A.1 5 front band sts= 5+176+1+5=187 sts) - you can decrease 3 sts evenly before the end of A.1 so that the last rows in A.1 are fitting the row, then you can increase 7 sts evenly to get 194 sts. Happy knitting!
06.12.2022 - 08:39Strickprofi wrote:
Meine Vorherige Frage wurde leider nicht beantwortet. Wenn ich die 1. Masche von A.1 Stricken soll am Ende, wäre das dann der Umschlag ( also nochmal ein Umschlag am Ende), ist das korrekt?
08.11.2022 - 13:52DROPS Design answered:
Liebe Strickprofi, am Ende der Reihe stricken Sie die 1. Masche aber nicht die Zunahme, die am Anfang der Reihe gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!
08.11.2022 - 16:47