Candice |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með gatamynstri og ¾ ermum úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-1 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á kjól): Fækkið lykkju á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Fækkið lykkjum innanverðu við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 4,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á kjól og fyrir miðju undir ermum): Aukið út hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki á kjól og hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. KJÓLL: Fitjið laust upp 230-230-276-276-322-322 lykkjur á hringprjóna 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 23 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 210-210-252-252-294-294 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 21 lykkja). ATH: Í 7. umferð í A.2 færist mynstrið til um 1 lykkju fram. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 180-180-216-216-252-252 lykkjur í umferð. Setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett í byrjun umferðar (= í hlið), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 10 lykkjur, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 70-70-88-88-106-106 lykkjur, 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 10 lykkjur (= í hlið), 5. prjónamerki er sett á eftir næstu 10 lykkjur, 6. prjónamerki er sett á eftir næstu 70-70-88-88-106-106 lykkjur = 10 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið A.3 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 18 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 1. prjónamerki, prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur (1. prjónamerki er nú staðsett mitt í A.4 og A.4 á að falla vel yfir götin í A.3), prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4. prjónamerki, prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með sléttprjón og A.4 í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-14-16-16-15 cm fækkið lykkjum á eftir 2. og 5. prjónamerki og á undan 3. og 6. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona 2½-3½-2½-3½-2½-4½ cm millibili alls 13-10-15-11-15-10 sinnum = 128-140-156-172-192-212 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 48-49-51-53-55-57 cm (úrtöku er nú lokið), skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið A.5 hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er skipt til baka yfir á hringprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í umferðina – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umferð er prjónuð þannig: 10-13-17-17-22-27 lykkjur sléttprjón, A.6A (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), A.6B (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), 20-26-34-34-44-54 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerki í hlið er staðsett mitt í þessum lykkjum), A.6A (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), A.6B (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur) og 10-13-17-17-22-27 lykkjur í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-14-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið (6-6-7-9-11-13 lykkjur hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Í fyrstu umferð á eftir garðaprjóni eru felldar af miðju 6-6-8-12-16-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (3-3-4-6-8-10 lykkjur hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki). Fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.6 eins og áður og prjónið 3 ystu lykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fellið svona af í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-7-8-11 sinnum í hvorri hlið = 58-62-64-64-68-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm. Fellið af miðju 26-26-26-32-32-32 lykkjur fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 15-17-18-15-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: = 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Prjónið áfram alveg eins og bakstykki og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 66-69-71-74-76-79 cm (passið uppá að næsta umferð sé frá réttu), skiptið stykkinu upp fyrir miðju fyrir op á hálsmáli og hvort framstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Haldið áfram fram og til baka yfir helming af lykkjum með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, sléttprjóni og A.6A við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 72-75-78-81-84-87 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu), setjið fyrstu 9-9-9-12-12-12 lykkjur frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá miðju að framan þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 15-17-18-15-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið alveg eins og vinstra framstykki, en með affellingu í gagnstæðri hlið (þegar lykkjur eru settar á þráð fyrir hálsmáli er það gert frá réttu, ekki frá röngu). ERMI: Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna. Fitjið upp 54-58-62-64-68-72 lykkjur á sokkaprjóna 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-3 = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið A.5. Eftir A.5 er skipt til baka yfir á sokkaprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 12 cm í öllum stærðum er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-3-2½-2-1½ cm millibili alls 7-9-9-10-12-14 sinnum = 56-62-64-68-74-80 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21 cm er skipt aftur yfir í sokkaprjóna 4. Prjónið A.5, skiptið aftur til baka yfir í sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón til baka. Þegar stykkið mælist 38-38-37-36-35-34 cm fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-5-6-8 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þar til stykkið mælist 45-45-45-46-46-47 cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 46-46-46-47-47-48 cm. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið ermarnar í – kantur með garðaprjóni meðfram handvegi á að liggja utan á ermi þ.e.a.s. látið kant með garðaprjóni liggja yfir kant meðfram ermakúpu. HÁLSMÁL: Byrjið við miðju að framan og prjónið upp frá réttu ca 74 til 94 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
A B wrote:
Made the body for the S. I am 5'1 and 10. It was far too short and a tad clingy. Am redoing as an M, I have added 3 inches onto the skirt and I have taken out the side pattern as I found it ugly. With these adjustments it is going to look great. Thanks
23.04.2024 - 23:28Renate wrote:
Hallo liebes Drops Team. Werden beim Vorderteil für das Teilen in der Mitte keine Maschen abgenommen?Sondern einfach nur geteilt und dann grade hochgestrickt?Vielen Dank für eure Hilfe
02.02.2023 - 20:17DROPS Design answered:
Liebe Renate, beim Rückenteil wird es für die Armlöcher beidseitig abgekettet dann weiter gestrickt bis die Arbeit 77-92 cm (siehe Größe) misst, dann wird Halsauschnitt gearbeitet und jede Schulter separat fertig gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
03.02.2023 - 08:25Marianela wrote:
¿como es posible que disminuyan puntos al inicio del vestido? monté 276 y despues dice que debo tener 252 al hacer el diagrama A1
06.09.2019 - 23:45DROPS Design answered:
Hola Marianela. Las disminuciones están incluidas en el diagrama A.1. Mira atentamente la fila 7 de A.1
10.09.2019 - 22:05Marianela wrote:
Como disminuyen los puntos de 276 a 252 al tejer el grafico A1??
05.09.2019 - 21:25DROPS Design answered:
Ver la respuesta arriba
17.10.2019 - 20:10Katy Board wrote:
Do i just knit A4 once or repeat until decreases are done?
24.10.2018 - 17:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Board, work A.4 on each side ie repeat A.4 in height until piece measures 48-49-51-53-55-57 cm, Happy knitting!
25.10.2018 - 08:12Tina wrote:
Are the finished sizes on the chart in cm or inches?
08.03.2018 - 13:50DROPS Design answered:
Dear Tina, the finished measurements in size are taken flat from side to side and are in cm - convert into inches here. Happy knitting!
08.03.2018 - 15:26Stephanie wrote:
Bonjour, je souhaite réaliser ce modèle pour ma fille mais elle fait une taille XS, aussi je me demande quel coton du groupe B ou A dois je utiliser pour obtenir cette taille? merci pour votre réponse.
31.01.2017 - 18:13DROPS Design answered:
Bonjour Stéphanie, cette robe est prévue pour un fil du groupe C, vérifiez les mesures d'après le schéma pour ajuster à la taille souhaitée, ou inspirez-vous d'un modèle similaire dans la taille et le fil souhaités pour ajuster en fonction de votre échantillon. Bon tricot!
01.02.2017 - 08:50Enrica Colombo wrote:
Bellissimo, in perfetto stile anni 70
19.01.2017 - 20:42DOMINIK wrote:
Snow white looks amazing and comfortable
19.01.2017 - 05:42Monica wrote:
Bellissimo!
17.01.2017 - 18:08