Juanita |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska með röndum og blómum, hekluð neðan frá og upp. Stykkið er heklað úr DROPS Paris.
DROPS 187-3 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti stuðull í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju. Þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan hekluð í umferð þannig: Stingið heklunálinni í 3. loftlykkju í byrjun á umferð og skiptið yfir í næsta lit, dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í 1 LYKKJU: Heklið einn stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni). Heklið einn stuðul til viðbótar í sömu lykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 2 stuðlar heklaðir saman í 1 lykkju). RENDUR Í TÖSKU: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1-2: bensínblár UMFERÐ 3: gráblár UMFERÐ 4: ljós fjólublár UMFERÐ 5: púðurbleikur UMFERÐ 6: sinnep UMFERÐ 7: skærbleikur UMFERÐ 8: bleikvínrauður UMFERÐ 9: bensínblár UMFERÐ 10: pistasía UMFERÐ 11: ljós ísblár UMFERÐ 12: gráblár UMFERÐ 13: ljós fjólublár UMFERÐ 14: sinnep UMFERÐ 15: vanillugulur UMFERÐ 16: sinnep UMFERÐ 17: kórall UMFERÐ 18: bleikvínrauður UMFERÐ 19: pistasía UMFERÐ 20: bensínblár UMFERÐ 21: gráblár UMFERÐ 22: ljós ísblár UMFERÐ 23: gráblár UMFERÐ 24: púðurbleikur UMFERÐ 25: sinnep UMFERÐ 26: vanillugulur UMFEÐR 27: skærbleikur UMFERÐ 28: bleikvínrauður UMFERÐ 29: bensínblár UMFERÐ 30: ljós ísblár UMFERÐ 31: gráblár UMFERÐ 32: pistasía UMFERÐ 33: ljós fjólublár UMFERÐ 34: púðurbleikur UMFERÐ 35: kórall RENDUR Á AXLARÓL: Loftlykkjuumferð í byrjun á axlaról + UMFERÐ 1: sinnep UMFERÐ 2: vanillugulur UMFERÐ 3: sinnep UMFERÐ 4: kórall UMFERÐ 5: bleikvínrauður ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, frá miðju á botni og upp. Axlarólin er hekluð fram og til baka og herkluð saman við töskuna í lokin. TASKA: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum bensínblár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið síðan RENDUR Á TÖSKU – sjá útskýringu að ofan og stuðla þannig: UMFERÐ 1: Heklið 11 stuðla um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 22 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 33 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 33 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 44 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5-11: Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. fyrir hverja umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 121 stuðlar. Nú er heklað áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Í 22. umferð er 2. umferð í A.1 + A.2 (blóm) hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, ** Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 5 stuðlum, heklið 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í 1 LYKKJU – sjá útskýringu að ofan og um þessa stuðla er A.2 (blóm) heklað þannig (sjá ör í A.2, hér byrjar blóm): Um síðasta stuðul sem var heklaður í A.1 er heklað þannig: * Heklið 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja*, heklið frá *-* alls 3 sinnum, síðan er heklað um næst síðasta stuðul sem var heklaður í A.1 þannig: ** Heklið 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 loftlykkju, heklið síðan A.1 áfram þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 6 stuðlum **. Heklið frá **-** umferðina allan hringinn = 10 blóm. (Síðar á að hekla í kringum loftlykkjubogana í blómi með mismunandi litum (= A.3). Í 23. umferð er 3. umferð í A.1 hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul. ** Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 5 stuðlum, heklið 1 stuðul um loftlykkju sem var hekluð á eftir blómi, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 6 stuðlum **, heklið frá **-** umferðina hringinn. UMFERÐ 24-33: Haldið áfram hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar 33. röndin hefur verið hekluð til loka, geymið stykkið og heklið axlaról. AXLARÓL: Heklið 152 loftlykkjur með litnum sinnep með heklunál 3,5. Heklið þannig: UMFERÐ 1: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 24 sinnum = 126 stuðlar. ATH: Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum sem koma í stað fyrsta stuðul í umferð. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn vanillugulur og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn sinnep og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn kóral og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn bleikvínrauður og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Klippið frá og festið enda. Nú er 34. umferðin hekluð – munið eftir röndum, jafnframt er axlarólin hekluð saman við töskuna þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 28 stuðlum, geymið annan endann á axlarólinni meðfram innri hlið á töskunni og heklið axlarólina saman við töskuna með því að hekla 1 stuðul í næsta stuðul og í gegnum fyrstu umferð á axlarólinni, heklið í hvern af næstu 4 stuðlum saman með næstu umferð á axlarólinni (axlarólin á að koma til með að skreppa smá saman), haldið áfram með 1 stuðul í hvern af 55 næstu stuðla á töskunni, leggið hinn endann á axlarólinni meðfram innri hlið á töskunni og heklið axlarólina saman við töskuna með því að hekla 1 stuðul í næsta stuðul og í gegnum fyrstu umferð á axlarólinni, heklið í hvern af næstu 4 stuðlum saman við næstu umferð á axlarólinni (axlarólin kemur til með að skreppa smá saman), heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 28 stuðlum. Heklið síðan síðustu umferð á töskunni. Klippið frá og festið enda. BLÓM: Í kringum hverja loftlykkju sem var hekluð í A.2 (= loftlykkjur) er A.3 heklað í mismunandi litum – sjá útskýringu að neðan. Þegar A.3 hefur verið heklað utan um alla 5 loftlykkjubogana í 1 blómi, klippið frá, hnýtið endana saman og festið enda. Heklið 1. og 6. blóm í lit 35 vanillugulur. Heklið 2. og 7. blóm í lit 06 skær bleikur. Heklið 3. og 8. blóm í lit 07 bleikvínrauður. Heklið 4. og 9. blóm í lit 58 púðurbleikur. Heklið 5. og 10. blóm í lit 38, kórall. Heklið nú 4 laus blóm þannig: Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 í 1. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á stykki + umferð 1: Púðurbleikur. Umferð 2: bleikvínrauður. 2. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á stykki + umferð 1: Púðurbleikur. Umferð 2: Skær bleikur. 3. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á stykki + umferð 1: Púðurbleikur. Umferð 2: Kórall. 4. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á stykki + umferð 1: Púðurbleikur. Umferð 2: Vanillugulur. Saumið blóm 1. og 2. á töskuna með litnum púðurbleikur. Saumið í gegnum 34. umferð (= umferð með litnum púðurbleikur) og axlaról. Saumið blóm 3. og 4. á sama hátt í hina hliðina á töskunni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Kranti wrote:
You are wonderfull .
13.11.2020 - 18:52Paola wrote:
Voi sapete solo copiare dal lavoro di veri designer. Complimenti per aver copiato l’ennesimo modello. questo e’ un modello di Lucy di attic 24. https://attic24.typepad.com/weblog/crochet-bag.html
11.07.2020 - 01:34Beatrix wrote:
Wenn ich nur in einer Farbe diese Tasche möchte....wie viel Knäuel benötige ich dann von der Paris?
26.07.2019 - 16:01DROPS Design answered:
Liebe Beatrix, für dieses Modell können wir Ihnen leider keine genaue Garnmenge für ein einfarbiges Modell nennen. Am besten schauen Sie sich vergleichbare Taschen an und können dann in etwa abschätzen, wie viel Garn dafür benötigt wird, z.B. werden für die zweifarbige Tasche 173-1 mit gleichem Umfang und gleicher Höhe 400 g Paris benötigt. In etwa mit dieser Garnmenge sollten Sie rechnen. Viel Spaß beim Häkeln!
29.07.2019 - 16:30William S. Bowie wrote:
This type of planter is very grademiners popular with avid gardeners because they provide a healthy environment for an annual’s root system and discourage root rot. They are meant to be used with a liner of some type, typically a fibrous liner made of compressed fibers called coir.
23.12.2018 - 18:34Jenny wrote:
Modellen på bilden vart har hon fått tag på blusen? Tacksam för svar🌞
13.06.2018 - 11:24DROPS Design answered:
Hej Jenny, det kan vi tyvärr inte svara på :)
13.06.2018 - 15:06Martina Kaufmann wrote:
Hallo, ich suche die Anleitung von der Tasche mit Tulpenmotiv. In der Vorschau war sie zu sehen.Können sie mit bitte weiterhelfen? Gruss Tina
02.05.2018 - 13:59DROPS Design answered:
Liebe Frau Kaufmann, dieses Modell wurde noch nicht hochgeladen, es kommt aber sicher in den nächsten Wochen. Bleiben Sie daran!
02.05.2018 - 15:17Kate wrote:
Terrible description, why mess things up like that? Crazy 2 DOUBLE CROCHETS TOGETHER IN 1 STITCH and flowers in knitted fabric. Why not just sew them on?
26.02.2018 - 21:36Agnes Nilssen wrote:
Hei! Flott veske, men... Skjønner ikke beskrivelsen/hvordan jeg fester/hekler stroppen fast i vesken? Kan dere lage en video?
17.02.2018 - 18:20DROPS Design answered:
Hej Agnes, den hækles sammen med 34.omgang ved at hækle både stroppen og 34.omgang samtidigt. Vi skriver dit ønske om video på vores ønskeliste. God fornøjelse!
21.02.2018 - 14:52