Mina Pullover |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora.
DROPS 191-22 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 114 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 11,4. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 10. og 11. hverja lykkju og 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni prjóninn til skiptis á eftir ca 11. og 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Aukið er út um alls 8 lykkjur í hveri útaukningsumferð. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 8 lykkjum á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 16 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykki verði aðeins hærra aftan í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að aftan og að framan – sjá útskýringu á upphækkun aðeins neðar í uppskrift. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 114-117-123-129-135-141 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-9-11-9-7-9 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 104-108-112-120-128-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið 9-10-11-12-13-14 lykkjur slétt fram hjá lykkju með merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 18-20-22-24-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 27-30-33-36-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-40-44-48-52-56 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 9-10-11-12-13-14 lykkjur fleiri í hvert skipti þar til prjónað hefur verið yfir miðju 72-80-88-96-104-112 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. BERUSTYKKI: = 104-108-112-120-128-132 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 26-27-28-30-32-33 mynstureiningar með 4 lykkjur). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið jafnt út yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Ör-1: Aukið út um 20-20-20-32-32-36 lykkjur jafnt yfir = 124-128-132-152-160-168 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 8-8-8-16-14-12 lykkjur jafnt yfir = 132-136-140-168-174-180 lykkjur. Nú er pláss fyrir 33-34-35-28-29-30 mynstureiningar með 4-4-4-6-6-6 lykkjur. Síðan er aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Ör-3: Nú eru 264-272-280-280-290-300 lykkjur í umferð og hver mynstureining nær yfir 8-8-8-10-10-10 lykkjur. Aukið JAFNFRAMT út um 18-16-20-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 282-288-300-306-318-330 lykkjur. Ör-4: Aukið út um 6-6-6-14-10-6 lykkjur jafnt yfir = 288-294-306-320-328-336 lykkjur. Prjónið síðan þar til A.1 hefur verið prjónað alveg til loka. Prjónið síðan 1 umferð slétt með litnum ljós grár þar sem auknar eru út 0-0-4-6-6-4 lykkjur jafnt yfir = 288-294-310-326-334-340 lykkjur. Setjið núna 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur): Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 45-46-48-52-55-58 lykkjur í umferð (= ½ bakstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 55-56-60-60-58-55 lykkjum (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 89-91-95-103-109-115 lykkjur (= framstykki) og fjórða prjónamerki er sett á eftir næstu 55-56-60-60-58-55 lykkjur (= ermi). Nú eru 44-45-47-51-54-57 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og með litnum ljós grár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-9-11-13-16-19 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerki = 328-366-398-430-462-492 lykkjur. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 50-55-59-65-71-77 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-117-129-141-153 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 49-54-58-64-70-76 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 218-238-258-282-310-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 109-119-129-141-155-169 lykkjur á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 12 sinnum í hvorri hlið = 266-286-306-330-358-386 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 55-59-63-66-74-79 lykkjur jafnt yfir = 321-345-369-396-432-465 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 65-74-82-86-90-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-84-94-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-2-3-2-3-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 10.-7.-5.-5.-4.-4. hverri umferð alls 13-17-21-22-23-24 sinnum = 49-50-52-54-58-61 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 41-40-38-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-11-12-11-11 lykkjur jafnt yfir = 57-60-63-66-69-72 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Janne Feldstedt wrote:
Drops 191-22 afslutning på ryg/forstykke * 1 ret 2 masker i RETSTRIK (se forklaring over) *, strik fra *-* omgangen rundt. Hvordan skal det forstås? Hilsen Janne
22.10.2023 - 17:02DROPS Design answered:
Hej Janne, 1 ret = glat og 2 m retstrik = riller - altså 2m vrang på hver 2.omgang (når du strikker rundt) :)
24.10.2023 - 09:28Anjo wrote:
I am enjoying knitting this jumper. However, I have noticed that while the chart is correct, the photo shows the single light blue pattern stitches in the wrong place. This is eight rounds from the end of the chart. There is a similar photo in the short sleeve version, but - in the alternative colourways, the photo is correct!
03.03.2023 - 18:19Undine wrote:
Unter Suchbegriffe steht ' von unten nach oben' . Das ist falsch. So findet man ihn nicht, wenn man richtigerweise ' von oben nach unten' stricken will. Bitte um Korrektur ;-)
31.01.2022 - 09:41DROPS Design answered:
Liebe Undine, danke für den Hinweis - ist jetzt "von oben nach unten" :)
31.01.2022 - 10:25Simone wrote:
Tak for opskriften :) Jeg er begynder indenfor strik, og vil kaste mig ud i en strikketrøje til min svigerinde. Hun er fra Vietnam, og meget lav og slank. I EU størrelse bruger hun str. XS, Er det muligt at lave denne tøje i XS, og ved i, i såfald hvor meget ekstra trøjen skal tages ind, mv?
09.06.2021 - 21:48DROPS Design answered:
Hej Simone, Vi har desværre ikke mulighed for at regne opskriften om til XS, men her finder du flere modeller som er mindre, nogle med brystvidde på 82 cm(du kan se at det står 41 cm i bredden på måleskitsen). bluser - nordisk - damer
11.06.2021 - 09:56Bente wrote:
Hej Kan jeg starte ned fra?
10.12.2019 - 03:16DROPS Design answered:
Hei Bente! Det er mulig, men vi har dessverre ikke muligheten til å skrive om og tilpasse oppskriften nå. Lykke til!
11.12.2019 - 09:29Jamie wrote:
I want to make the largest size (XXXL) for a very loose fit for a friend of mine. Looking at the measurements, do I multiple the 70 cm x2 to get 140 cm around the bust area? If so, I think I need to drop it back down a size or two. Is there a positive ease in this sweater. I can't seem to find that in the pattern. Thank you for your help, sorry for the silly sounding questions! I'm not very experienced with sweaters yet.
29.08.2019 - 16:39DROPS Design answered:
Hi Jamie, Yes, the XXXL size will have a bust measurement of 140 cm. The yarn is quite stable, so the jumper will not stretch much after use. Happy knitting!
29.08.2019 - 16:49Karen Madsen wrote:
Kære drops Jeg vil gerne strikke en bluse, der er lidt længere bag på end foran, da jeg desværre er en anelse rundrygget. Har I en grundmodel, som jeg kan bruge? Det er ikke nok med en forhøjning i nakken, selv om det hjælper på det. Det ville være fint, om I havde en bluse, der også buer ganske svagt for neden på ryggen - måske lavet med vende pinde over samlet set 6 eller 8 pinde, hvor buen er bredest. Eller måske I har en bedre løsning?
21.07.2019 - 17:22DROPS Design answered:
Hej Karen, Hvis du finder en bluse med slids i siden, så er det enkelt at strikke bagstykket lidt længere. God fornøjelse!
30.09.2019 - 09:51Michaela Krchová wrote:
Dobrý den, ráda bych upletla svetr DROPS 191-22 Mina, ale když jsem si chtěla objednat přízi Flora uni colour, tak v nabídce chybí obě šedé barvy tj. č. 03 světle šedá a č. 05 tmavě šedá. Budou tyto barvy v nabídce a pokud ano, tak kdy a pokud ne, prosím o radu jakou přízí chybějící příze nahradit. Předem děkuji za odpověď. Krchová
29.01.2019 - 11:50DROPS Design answered:
Dobrý den, paní Krchová, žádnou přízi nahrazovat nemusíte - obě zmíněné barvy v barevnici zůstávají. Pro aktuální skladovou dostupnost sledujte prosím nabídky jednotlivých prodejců - viz záložka Prodejci. Příjemné pletení!
24.07.2019 - 00:28Annette Vibro Petersen wrote:
Kan man istedet for bærestykket tage ud og strikke raglan fra hvor ribkanten slutter?
13.04.2018 - 11:29Inger Corneliussen wrote:
Mitt barnebarn, snart 18 år, fikk velge en genser fra Dropsmodellene som jeg skulle strikke til henne og hun valgte denne. Jeg har ikke strikket raglanfelling før og ble litt usikker, men oppskriften var veldig grei og genseren ble flott.
05.04.2018 - 15:36