Bazar |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska með marglitu mynstri úr DROPS Paris.
DROPS 186-21 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju (koma ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (þetta á ekki við mynsturteikningu A.5). Hver umferð sem byrjar með að hekla 3 stuðla saman, byrjar með 3 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta stuðul), hoppið yfir 1 stuðul frá fyrri umferð, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3 stuðlum sem heklaðir voru saman. Smá hluti af mynstrinu kemur til með að færast aðeins til í byrjun á umferð og í lokin. Nokkrar umferðir eru heklaðar í aftari lykkjubogana frá fyrri umferð, sjá stjörnu við mynsturteikningu. LITAMYNSTUR: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum. Þegar heklað er með mörgum litum í umferð þá er heklað þannig: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul/fastalykkju með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í nýja litin og dragið þráðinn í gegn í lokin, síðan er heklaður næsti stuðull/fastalykkja. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjur frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að það sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með í stykkinu. Passið uppá að þræðirnir sem fylgja með strekki ekki á stykkinu og að þráðurinn verði ekki stífur þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. Fyrst er botninn heklaður með mynstri og útaukningu. Síðan er heklað upp án útaukningar. Efst er hekluð gataumferð til að þræða snúru í. Axlarólin er hekluð sér og saumuð á töskuna. Snúra er tvinnuð og þrædd í gegnum gataumferð upp og niður efst á töskunni og skúfar festir á í lokin. TASKA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum kórall Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan A.1 alls 6 sinnum hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITAMYNSTUR. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 36 stuðlar í síðustu umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið A.2 alls 12 sinnum hringinn. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka eru 144 fastalykkjur í síðustu umferð. Nú er öll útaukning lokið. Stykkið mælist 22 cm að þvermáli. Heklið A.3 alls 36 sinnum hringinn. Heklið síðan A.4 alls 12 sinnum hringinn. Klippið frá og festið enda þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. AXLARÓL: Axlarólin er heklað í hring með litnum ferskja. Heklað er frá miðju á axlarólinni og út, þ.e.a.s. fyrst er hekluð loftlykkju umferð, síðan er heklað í hring á báðum hliðum við þessa umferð. A.5 og A.6 = endar á alxarólinni, þ.e.a.s. byrjað er og endað með A.5 og A.6 er heklað á öðrum enda á axlarólinni. Heklið 93 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með = 1 stuðull) með heklunál 3,5 með litnum ferskja. UMFERÐ 1: Heklið A.5 þannig: Í 4. loftlykkju frá heklunálinni er heklað þannig: Heklið 1 stuðul (= 2 stuðlar), 1 loftlykkja, 2 stuðlar, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til eftir er 1 loftlykkja, í næstu loftlykkju er heklað A.6 þannig: Heklið 2 stuðla, 1 loftlykkja, 2 stuðlar, færið loftlykkjurnar þannig að heklað er í gagnstæðri hlið, heklið síðan í sömu loftlykkju: 2 stuðlar, 1 loftlykkja, 2 stuðlar, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til eftir eru 1 loftlykkja í gagnstæðir hlið (þ.e.a.s. sama loftlykkja og heklað var í byrjun á umferð), heklið A.5 þannig: 2 stuðlar, 1 loftlykkja og 2 stuðlar í síðustu loftlykkju = 104 stuðlar og 4 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið A.5, 1 stuðull í hvern stuðul að A.6, heklið A.6, heklið 1 stuðul í hvern stuðul að síðasta hluta af A.5, heklið A.5 = 120 stuðlar og 4 loftlykkjur. UMFERÐ 3: Heklið A.5, 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli að A.6, heklið A.6, 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli að síðasta hluta af A.5, heklið A.5 = 136 fastalykkjur og 4 loftlykkjur. Klippið frá og festið enda. Festið axlarólina í hvora hlið innan í töskunni. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði með litnum sæblár ca 2 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á þann enda sem ekki hangir saman, festið þræðina á þeim enda upp í tvinnuðu snúruna. Þræðið snúruna upp og niður í götin á töskunni. SKÚFAR: Gerið 1 stóran skúf og 3 litla skúfa sem festir eru á endana á tvinnuðu snúruna þannig: 1 STÓR SKÚFUR: Gerið skúf ca 12 cm með litnum sæblár, þræðið 1 tré perlu á endann á skúfnum og festið saman við toppinn og festið skúfinn á annan enda á snúruna. 3 LITLIR SKÚFAR: Gerið 1 skúf ca 7 cm úr hverjum af litunum: rústrauður, bleikvínrauður og kórall. Þræðið 1 tré perlu í endann sem skúfarnir eru festir saman við á toppinn og festið skúfana í annan enda á snúru. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Sylviane Gaspard wrote:
Voici le resultat de mon travail ! Je suis ravie. Vos explications sont trés complètes et merci pour vos réponses rapides. Juste une remarque, les diagrammes A5 et A6 sont difficiles à comprendre, il faudrait rajouter le sens de lecture de ces schémas car on ne sait pas trop dans quel sens les lire et oû ils commencent. Encore merci
12.07.2022 - 10:26Sylviane wrote:
Lorsqué je dois compter mes mailles (par exemple on me dit que je dois avoir 36 mailles a la fin du tour,) est ce que je dois compter la maille que j'ai sur mon crochet comme 1 maille ou bien je compte uniquement les mailles tricotées ?
07.07.2022 - 00:09DROPS Design answered:
Bonjour Sylviane, la boucle sur le crochet compte rarement comme une maille, ce qui compte c'est le nombre de brides que vous avez réellement réalisé (comptez les "pieds" des brides par exemple), mais sinon, effectivement la boucle sur le crochet est la fin de la dernière bride, mais ne la comptez pas 2 fois. Bon crochet!
07.07.2022 - 08:57Sylviane wrote:
Bonjour, doit-on compter la maille que l'on a sur le crochet comme 1 maille ? Merci.
29.06.2022 - 21:51DROPS Design answered:
Bonjour Sylviane, je suis désolée, je ne suis pas sûre de bien comprendre votre question, dans quel contexte souhaitez-vous savoir cela? À quel niveau du modèle/motif/diagramme?
30.06.2022 - 09:23Sylviane Gaspard wrote:
Bonjour, pouvez vous me confirmer que l'on crochète donc en regardant l'envers du travail . L'endroit du travail est derrière puisque les changements de couleur se font fil devant. C'est bien cela ?
23.06.2022 - 23:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gaspard, on crochète tous les tours sur l'endroit - cette vidéo montre comment crocheter un jacquard en rond, en faisant suivre la couleur non crochetée. Bon crochet!
24.06.2022 - 08:55Evelyne wrote:
Je suis arrivée au crochet de la poignée. pas de souci pour le 1er rang Pourriez vous m expliquer pour les 2eme et 3eme rangs? Je ne comprends pas les diagrammes 5et6 merci beaucoup
13.04.2020 - 16:20DROPS Design answered:
Bonjour Evelyne, croch. le tour 2 de A.5 ainsi: 3 ml en pêche, puis 2 b, 1 ml, 2 b autour de la ml suivante, 1 b dans chacune des 2 b suivantes (A.5 est fini, continuez en b) et crochetez ensuite A.6 de droite à gauche: 1 b dans les 2 premières b , 2 b, 1 ml, 2 b dans la ml, 1 b dans les 4 b suivantes, 2 b, 1 ml, 2 b dans la ml, 1 b dans les 2 b suivantes.... puis A.5 de nouveau: 1 b dans les 2 premières b, 2 b, 1 ml, 2 b dans la ml, 1 b dans les 2 premières b et 1 mc dans la 3ème ml. Lisez le dernier rang de la même façon de gauche à droite: la fin de A.5, puis A.6 en entier et terminez A.5 en lisant de bas en haut en remontant sur la ml du début du tour. Bon crochet!
14.04.2020 - 13:03Vivian Walmsley wrote:
I love this bag but I need a written pattern , is there one available , thanks for your time
22.03.2020 - 15:41DROPS Design answered:
Dear Vivian we are sorry, but there is no written out pattern for this piece. However it is well worth the effort to learn how to make sense of diagrams, as they not only show you the very next step, but also that how the other stitches and rows relate to each other. we do have a lesson on how to read crochet patterns here, and don't forget, you can always ask for help either in person or over the phone in teh store where you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!
22.03.2020 - 18:33Evelyne wrote:
Bonsoir, pourriez vous m indiquer comment on crochète le rang 2 de A3 ?
17.03.2020 - 23:53DROPS Design answered:
Bonjour Evelyne, bien sûr, crochetez: *en pêche, crocheter 3 brides ensemble ainsi: Crocheter 1 bride dans la première maille, mais ne pas faire le dernier jeté, crocheter 1 bride dans chacune des 2 mailles suivantes, mais ne pas faire le dernier jeté, écouler les 4 boucles sur le crochet. (= 19ème symbole) puis en bleu marine : écouler 3 brides ensemble (= 20ème symbole)*, Répétez de *-* tout le tour 36 fois au total. Bon crochet!
18.03.2020 - 08:34Silvia wrote:
Hallo, ich würde gerne die Wolle für diese Tasche bestellen, kann aber die Farben Koralle und Erika nicht finden. LG
03.04.2019 - 21:30DROPS Design answered:
Liebe Silvia, alle Farben sind immer noch lieferbach, nur die Namen wurde angepasst, schauen Sie mal nach der Farbennumer, bzw Farbe 38 und 07. Viel Spaß beim häkeln!
04.04.2019 - 09:25Elena wrote:
Como puedo conseguir el patrón del bolso. Me gustaría tener el gráfico. Gracias
13.03.2019 - 12:22DROPS Design answered:
Hola Elena. Tienes el diagrama del bolso con todas las abreviaturas bajo el patrón.
16.03.2019 - 16:06Jette Lund wrote:
Hej med jer Jeg er nu kommet i gang og r nået til A3. Jeg har for mange masker, men det betyder vel bare, at tasken bliver større: Det er en meget forvirrende opskrift. F.eks. at A3 skal hækles rundt 36 gange?, men på fotoet er det a kun en gang, at mønsteret er?
28.06.2018 - 18:38