DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki |
836.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki 836.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= brugðið frá réttu, slétt frá röngu | |
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Riviera Stripes |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa með áferðamynstri, röndum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 191-30 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukningar/úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4. Í þessu dæmi er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 3. og 4. hver lykkja slétt saman í þessu dæmi. RENDUR: * Prjónið 2½-3-3-3-3½-3½ cm með litnum gallabuxnablár, prjónið 5-5-5-5½-5½-5½.cm með litnum natur *, endurtakið síðan frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA Á ERMI: Aukið út um 1 lykkju (= 2 nýjar lykkjur á hvorri ermi) þannig: Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Á undan A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.1. LASKALÍNA Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út um 2 lykkjur (= 4 nýjar lykkjur á framstykki/4 nýjar lykkjur á bakstykki) þannig: Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Á undan A.2: Prjónið þar til eftir er 1 lykkja á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 lykkju (= 2 nýjar lykkjur á framstykki/2 nýjar lykkjur á bakstykki) þannig: Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Á undan A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Fram- og bakstykki skiptist við klauf og fram-/bakstykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 96-96-96-102-102-102 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 24-24-28-30-34-50 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-120-124-132-136-152 lykkjur. Nú byrjar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar ca við miðju að aftan. Prjónið A.1 yfir fyrstu 22-22-22-24-24-28 lykkjur (= hálft bakstykki), prjónið A.2 (= 3 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= ermi), A.2, prjónið A.1 yfir næstu 42-42-44-46-48-56 lykkjur (= framstykki), A.2, prjónið A.1 yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, A.2, prjónið A.1 yfir síðustu 20-20-22-22-24-28 lykkjur (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Mismunandi er aukið út á framstykki/bakstykki og á ermum þannig: ERMI: Aukið út í annarri hverri umferð alls 17-18-18-22-23-24 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 7-8-9-8-9-10 sinnum. FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð alls 6-9-12-18-21-24 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð alls 25-25-24-20-20-20 sinnum. Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 364-396-424-476-512-560 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram hringinn án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-27-29-31 cm frá hálsmáli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 61-67-72-82-88-98 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið A.1 yfir næstu 120-132-144-162-176-196 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið A.1 yfir síðustu 59-65-72-80-88-98 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 240-264-288-324-352-392 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Haldið áfram með rendur og A.1 eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 19-19-19-20-20-20 cm frá skiptingu – stillið af þannig að endað sé á eftir rönd með litnum gallabuxnablár, prjónið með litnum natur til loka. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem auknar eru út 6-6-6-6-2-4 lykkjur jafnt yfir = 246-270-294-330-354-396 lykkjur. Nú skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 123-135-147-165-177-198 lykkjur. Prjónið síðan stroff frá réttu – þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 6 lykkjur, prjónið 3 lykkjur slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 9 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: = 123-135-147-165-177-198 lykkjur. Prjónið á sama hátt og á framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjónum. Setjið 62-66-68-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5. Haldið áfram með rendur eins og áður og mynstur A.1 yfir allar lykkjur. Þegar prjónuð hefur verið 1 rönd með litnum gallabuxnablár á ermi, haldið áfram með litnum natur til loka. Þegar stykkið mælist ca 7 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-0-2-4-2-0 lykkjur jafnt yfir = 60-66-66-72-78-84 lykkjur. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið í 9 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (32)
Cerys Lyn Short wrote:
What is the yarn amount correction, have done several patterns and some have come up very short on yarn and I could notcomplete the item and was left with wool I was unable to use.
13.06.2023 - 14:55DROPS Design answered:
Dear Mrs Short, if you printed the pattern after the correction day, then you get the correct amount of yarn - but remember to check and keep your gauge - read more here. Happy knitting!
13.06.2023 - 16:04Christiane Josy wrote:
Wenn ich dieses Modell mit Drops Paris stricke, brauche ich dann die gleiche Wollmenge, wie mit Brushed Alpaka Silk, obwohl die Paris eine ganz andere Lauflänge hat? Oder muss ich das umrechnen?
24.04.2021 - 15:00DROPS Design answered:
Liebe Frau Josy, benutzen Sie unseren Garnumechner, so lassen Sie sich die neue Garnmenge kalkulieren - hier lesen Sie mehr über Garnalternativen. Viel Spaß beim stricken!
26.04.2021 - 09:21Aneta wrote:
Ale jeszcze chce sie dopytac o 3 etap dodawania oczek.8 razy na tył i przód,a na rekaw co 4 okrążenie -ale ile razy?4tylko?to mi sie nie zgadza ilosc koncowa oczek
04.02.2021 - 12:24DROPS Design answered:
Witaj Aneto, łącznie będziesz dodawać do 68 okrążenia. Na rękawach ostatni etap to zamykanie 8 x 4 o. co 4 okrążenia, na tyle i przodzie ostatni etap to 25 x 4 o. co 2 okrążenia. A teraz obliczenia: RĘKAWY: (18 x 4 o.)+(8 x 4 o.)= dodane 104 o. TYŁ&PRZÓD: (9 x 8 o.)+(25 x 4 o.)= dodane 172 o. Łącznie mamy dodanych na reglan 276 o. I zgadza się wszystko: 120 początkowe + 276 dodanych o. = 396 o. dla rozmiaru M (po dodaniu oczek na reglan). Powodzenia!
04.02.2021 - 17:26Aneta wrote:
Dziekuje Agnieszce za pomoc.jak sie zrozumie opis to robi sie bardzo fajnie.ja robie cały biały z alpaki i kid silku.fason świetny i nowoczesny.powodzenia
04.02.2021 - 12:10DROPS Design wrote:
Trudność jest taka że dodajesz oczka na rękawy i na tył/przód 1) w innej częstotliwości 2) inna jest liczba dodawanych oczek (1 oczko, gdy po prostu wykonujesz 1 narzut obok tych 3 o.p., albo 2 o. -dotyczy tylko fragmentu tyłu/przodu- gdzie obok tych 3 o.p. wykonujesz 1 narzut, 1 o.p. i 1 narzut). Musisz to sobie rozpisać, aby się nie pomylić.
29.01.2021 - 17:33DROPS Design wrote:
Na rękawy: dodawać za schematem A.2 na początku każdego rękawa i przed schematem A.2 na końcu każdego rękawa: 18 razy co 2 okrążenia i 8 razy co 4 okrążenia; na tyle/przodzie: dodawać 9 razy 2 oczka za schematem A.2 na początku tyłu i przodu, i przed schematem A.2 na końcu tyłu i przodu co 2 okrążenia, dalej dodawać 1 oczko 25 razy za schematem A.2 na początku tyłu i przodu i przed schematem A.2 na końcu tyłu i przodu co 2 okrążenia. Powodzenia
29.01.2021 - 17:28Aneta wrote:
Nic nie rozumiem z tego opisu,nic.o co tu chodzi?zrobiłam z tej strony 3 swetry i mimo ze nie jestem doswiadczona to poszło mi dobrze,ale ten opis jest nie do pojecia dla mnie.chodzi o reglan i te dwa wzory A1 i A2.nawet trudno mi zadac konkretne pytanie bo nie wiem o co chodzi.błagam o pomoc bo bardzo zalezy mina tym swetrze.dzieki
29.01.2021 - 13:15DROPS Design answered:
Witaj Aneto, cały sweter jest przerabiany wg schematu A.1, schemat A.2 stanowią 3 oczka każdego skosu raglanu (4 miejsca) i one są przerabiane cały czas na prawo. Z każdej strony tych 3 oczek prawych są dodawane oczka na reglany. Dodane oczka na reglany będą przerabiane wg schematu A.1 w miarę postępu robótki. W rozmiarze M dodajesz oczka na reglan inaczej na tyle/przodzie, a inaczej na rękawach (ale dzieje się to jednocześnie). cd nastąpi
29.01.2021 - 17:25BAULON wrote:
Bonjour Je ne trouve pas la correction du nombre de pelotes pour le tricot de ce modèle. Pouvez-vous me l’indiquer par réponse ? Merci Cordialement
22.01.2021 - 20:28DROPS Design answered:
Bonjour Mme Baulon, le modèle actuel est déjà corrigé, autrement dit, cette correction ne s'applique que si vous aviez imprimé le modèle avant le 18 mai 2018, date de la correction. Bon tricot!
25.01.2021 - 13:04Annette Werger wrote:
Waar kan ik de aanpassing in garen terugvinden?? ' Dit patroon is gecorrigeerd. Klik hier om de correcties te bekijken.. Gewijzigd online: 18.05.2018 Benodigde hoeveelheid garen aangepast'
16.01.2021 - 10:46DROPS Design answered:
Dag Annette,
De correcties zijn in de online versie altijd al verwerkt, zodra er bij staat dat het patroon gecorrigeerd is. Als je een afdruk hebt van voor de correctiedatum, dan is de aanpassing nog niet verwerkt in de afdruk.
17.01.2021 - 11:37Caroline Lines wrote:
The measurements for the width of this jumper says 115cm for the largest size so that is a total of 230cm all way round...that is HUGE, just want to confirm that is correct
13.01.2021 - 19:43DROPS Design answered:
Dear Mrs Lines, measurements are correct, as shown on the pictures, this jumper is oversize. Happy knitting!
14.01.2021 - 07:35