Flamingo Parade |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með flamingo fuglum úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-11 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Byrjið frá réttu með ljós grágrænn og prjónið 15-15-16-16-18-18 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-32-32-36-36 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 45-45-48-48-54-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-72-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-75-80-80-90-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið að miðju að aftan. Prjóni síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1) A.1 er prjónað í sléttprjóni. Þar sem það eru löng hopp á milli litaskipta, verður að vefja þráðunum um hvern annan á eftir ca 7. hverja lykkju, svo að það verði ekki langir lausir þræðir á bakhlið. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ljós gráblár. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2½-3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-20-27-23-30-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 132-132-143-143-154-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Síðan er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar með 11 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út þannig – sjá ÚTAUKNING: ÖR-1: Aukið út 33-44-44-44-44-44 lykkjur jafnt yfir = 165-176-187-187-198-198 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-17-18-18 mynstureiningar með 11 lykkjum). ÖR-2: Aukið út 33-33-44-44-44-44 lykkjur jafnt yfir = 198-209-231-231-242-242 lykkjur (nú er pláss fyrir 18-19-21-21-22-22 mynstureiningar með 11 lykkjum). ÖR-3: Aukið út 22-22-22-33-44-44 lykkjur jafnt yfir = 220-231-253-264-286-286 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-23-24-26-26 mynstureiningar með 11 lykkjum). ÖR-4: Aukið út 22-33-33-33-33-44 lykkjur jafnt yfir = 242-264-286-297-319-330 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26-27-29-30 mynstureiningar með 11 lykkjum). ÖR-5: Aukið út 11-11-11-22-33-33 lykkjur jafnt yfir = 253-275-297-319-352-363 lykkjur (nú er pláss fyrir 23-25-27-29-32-33 mynstureiningar með 11 lykkjum). ÖR-6: Aukið út 11-21-23-25-24-29 lykkjur jafnt yfir = 264-296-320-344-376-392 lykkjur (nú er pláss fyrir 33-37-40-43-47-49 mynstureiningar með 8 lykkjum). ÖR-7: Aukið út 12-16-19-22-20-25 lykkjur jafnt yfir = 276-312-339-366-396-417 lykkjur (nú er pláss fyrir 92-104-113-122-132-139 mynstureiningar með 3 lykkjum). Í síðustu umferð í A.1, aukið út 0-0-1-2-2-1 lykkjur jafnt yfir (aukið út í grunnlit) = 276-312-340-368-398-418 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23-23-23-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Afgangur af stykkinu er prjónaður með litnum ljós gráblár. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 23-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan (þ.e.a.s. ca 0-0-2-0-2-4 cm áfram eftir A.1). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-46-50-55-61-65 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-92-100-110-123-131 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-46-50-55-62-66 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-200-220-240-270-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi í annarri hlið á stykki. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar prjónaðir hafa verið alls 3-3-3-4-4-5 cm með litnum ljós gráblár eftir A.1 á berustykki (þ.e.a.s. á eftir grindverki), byrjar gatamynstur á fram- og bakstykki. Prjónið A.2A hringinn (= 18-20-22-24-27-29 mynstureiningar með 10 lykkjum). A.2A er prjónað alls 3 sinnum á hæðina í öllum stærðum, en síðasta endurtekningin endar eftir umferð merktri með stjörnu í A.2A. Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 23-25-25-25-25-25 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Í næstu umferð er aukið út um 36-40-44-48-54-58 lykkjur jafnt yfir = 216-240-264-288-324-348 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 56-64-70-74-76-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Lesið afgang af kafla um ermi áður en prjónað er áfram! Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn (með litnum ljós gráblár). Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-13-16-17-18-19 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið alls 3-3-3-4-4-5 cm með litnum ljós gráblár eftir A.1 á berustykki (þ.e.a.s. á eftir grindverki), byrjar gatamynstur á ermi. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig (reiknað er með að fyrsta úrtakan undir ermi er gerð í S, M og XL og að það séu 62-70-80-82-88-92 lykkjur í umferð þegar gatamynstrið byrjar): Prjónið 0-4-4-0-3-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2A yfir næstu 60-60-70-80-80-90 lykkjur (= 6-6-7-8-8-9 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2B (= 2 lykkjur) og endið með 0-4-4-0-3-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur, en passið uppá að götin í A.2 séu staðsett beint yfir hvert annað þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. A.2 er prjónað alls 2 sinnum á hæðina í öllum stærðum, en síðasta endurtekningin endar eftir umferð merktri með stjörnu í A.2A. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 39-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir 4 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 43-43-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Gisela Bongart wrote:
Für die Flamingo-Parade gibt es leider die Farbe 17, Pink, von DROPS Merino Extra Fine nicht mehr. Was empfehlen Sie als Ersatz?
06.12.2022 - 18:09DROPS Design answered:
Liebe Frau Bongart, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Händler damit helfen, die beste passende Farbe zu wählen (und auch per Telefon oder per E-Mail). Viel Spaß beim stricken!
07.12.2022 - 07:58Audrey Wilson wrote:
Can you give me the sizes in inches or dress size. Don’t know how big s, m anl etc are.
08.01.2022 - 19:55DROPS Design answered:
Dear Mrs Wilson, you will find all finished measurements for each size in the chart; compare a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more here. Happy knitting!
10.01.2022 - 08:16Julie wrote:
Hi, I am having a little problem with the sleeves when it come to the lace pattern. It said A2:::A2 A or A2B as from there I read it so many times but still very confused. It will be nice if you can post a short video for the instructions from the lace part. Otherwise I just knit a normal sleeves without doing the lace pattern. Thank you
17.10.2021 - 20:13DROPS Design answered:
Dear Julie, A.2A is the main diagram, which is worked in the whole sleeve, while A.2B is worked 2 stitches before the end of the round. All of the videos that can help you make this pattern can be found below the diagrams. If the diagrams still give you trouble, you can knit normal sleeves without the lace pattern perfectly as well. Happy knitting.
17.10.2021 - 20:20Carolina Scanzani wrote:
Buongiono, sono una nonna e vorrei realizzare la maglia del modello Flamingo Parade Drops per la mia nipotina mi occorre la taglia 7/8anni
23.01.2021 - 11:29DROPS Design answered:
Buongiorno Carolina, purtroppo questo modello è disponibile solo per adulti. Guardi questo maglione per bambini che è molto simile. Buon lavoro!
23.01.2021 - 16:07Arianna Gianneramo wrote:
Buongiorno, chiedo cortesemente lo schema del modello DROPS Flamingo Parade per una bambina di sei anni spero di averlo il prima possibile Grazie
23.01.2021 - 11:21DROPS Design answered:
Buongiorno Arianna, purtroppo questo modello è disponibile solo per adulti. Guardi questo maglione per bambini che è molto simile. Buon lavoro!
23.01.2021 - 16:07Jill Scheetz wrote:
I'm enjoying knitting Flamingo Parade but need help with A;2A and A.2B. I cannot find an explanation for the 'tick' symbol on those graphs. The text of the pattern refers to 'the lace pattern on the body'. Your help would be appreciated.
22.11.2020 - 10:31DROPS Design answered:
Dear Jill. it's not a tick, it's a combination of the circle and the diagonal line. You first work the diagonal line, in which you knit 2 together and then the circle, in which you make a yarn over with light grey blue. Happy knitting!
22.11.2020 - 11:37Orysia wrote:
Thanks for ur reply. I like the dezign of flamingos yoke. I know u have lots of patterns but none like Flamingo one bottom up.. I will study top down down tech, can't be too hard Anyway I have got the wool.
05.10.2020 - 11:47Orysia wrote:
I have never knitted a top down jumper before, is it very hard to knit it Is there any chance your Designer could reverse jumper? I read the pattern its very complicated. I don’t like a wide neckline, I prefer a snug fit to keep my neck warm. The wool came today but it looks like I have to return it if there is no bottom up version.
03.10.2020 - 16:28DROPS Design answered:
Hi Orysia, You can search for other patterns that use Merino extra fine; there are many patterns available, both with a tighter neck and worked bottom up. Happy knitting!
05.10.2020 - 09:24Doreen Daniel wrote:
Will there be a children's version of flamingo parade?
02.01.2020 - 18:06DROPS Design answered:
Dear Mrs Daniel, nothing is planned yet, sorry. Happy knitting!
03.01.2020 - 09:55Dea wrote:
Avrei bisogno un chiarimento. Perchè dice "Passare al colore verde/grigio chiaro e lavorare a coste (= 2 maglie diritto / 2 maglie rovescio) per circa 2½-3 cm. " senza specificare a che taglie corrisponde la differenza di centimetri? Visto che faccio la M cosa devo prendere in esame? Grazie.
11.10.2019 - 20:16DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. È un suggerimento sull’altezza del bordo a coste intorno allo scollo, altezza che non è vincolante, ma che può essere regolata in base al suo gusto personale. A seconda se preferisce un bordo leggermente più alto o meno. Può lavorare fino a 2,5 cm e se le sembra un bordo troppo basso può aggiungere uno o più giri a coste. Buon lavoro!
12.10.2019 - 09:42