Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Spring Lines |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og laskalínu. Stærð 3-12 ára.
DROPS Children 34-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Prjónið rendur í mismunandi lengdum eftir stærðum. Röðin og lengdin á röndum er: RÖND 1: Prjónið með ljós gallabuxnablár í 7-8-8½-9½-10 cm. RÖND 2: Prjónið með ljós fjólublár í 7-8-8½-9½-10 cm. RÖND 3: Prjónið með fjólublár í 7-8-8½-9½-10 cm. RÖND 4: Prjónið með ljós sægrænn í 7-8-8½-9½-10 cm. RÖND 5: Prjónið með gallabuxnablár til loka í öllum stærðum. ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 148 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 6,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju lykkjunni af þessum 5 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Stykkið skiptist upp við fram- og bakstykki og ermar, fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Allt stykkið er prjónað með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-80-80-84-84 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með ljós gallabuxnablár. Setjið stykkið saman og prjónið 4 umferðir með stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugði). Byrjun á umferð er á miðju aftan á bakstykki. Prjónið nú 1 umferð sléttprjón og setjið 4 prjónamerki í stykkið sem nota á við útaukningu fyrir laskalínu þannig: Prjónið 12-13-13-14-14 lykkjur (= hálft bakstykki), prjónið 1 lykkju og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 12 lykkjur (= ermi), prjónið 1 lykkju og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 24-26-26-28-28 lykkjur (= framstykki), prjónið 1 lykkju og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 12 lykkjur (= ermi), prjónið 1 lykkju og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 12-13-13-14-14 lykkjur (= hálft bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og röndum eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH! Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum, fylgið því leiðbeiningum nákvæmlega í útskýringu. Aukið út þannig: AUKIÐ ÚT Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI/ERMUM ÞANNIG: Aukið út um 2 lykkjur fyrir laskalínu við hvert og eitt af 4 prjónamerkjum eins og útskýrt er að ofan (= 8 lykkjur alls í umferð): Aukið svona út í annarri hverri umferð 11-12-12-12-12 sinnum. Nú eru 46-50-50-52-52 lykkjur á framstykki/bakstykki, 34-36-36-36-36 lykkjur á hvorri ermi, 4 lykkjur með prjónamerkjum. Það eru alls 164-176-176-180-180 lykkjur í umferð. Aukið nú út í annarri hverri umferð eins og áður á framstykki/bakstykki. JAFNFRAMT er aukið nú út í 4. hverri umferð á ermum þannig: AUKIÐ ÚT Á FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI ÞANNIG: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur alls í umferð): Aukið svona út í annarri hverri umferð 10-10-12-12-14 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 21-22-24-24-26 sinnum á fram- og bakstykki og það eru alls 66-70-74-76-80 lykkjur á hvoru fram- og bakstykki. AUKIÐ SVONA ÚT Á ERMUM ÞANNIG: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin á hvorri ermi (= 4 lykkjur alls í umferð): Aukið út í 4. hverri umferð 5-5-6-6-7 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 16-17-18-18-19 sinnum á ermum og það eru 44-46-48-48-50 lykkjur á hvorri ermi. Eftir allar útaukningar eru 224-236-248-252-264 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 16-16-18-18-19 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 34-36-38-39-41 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-72-76-78-82 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fijtið upp 6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 34-36-38-39-41 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 148-156-164-172-180 lykkjur í umferð. Haldið nú áfram í sléttprjóni hringinn með röndum eins og áður. Þegar stykkið mælist 17-21-23-27-30 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út um 24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 172-184-192-204-212 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur bruðið þar til stykkið mælist alls 21-25-27-31-34 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-46-48-48-50), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-52-54-56-58 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6-6-6-8-8 nýju lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn eins og áður. Þegar ermin mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki - SJÁ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 36-38-38-38-40 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum þar til ermin mælist 20-24-27-32-36 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 8-6-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina alveg eins. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (20)
Dominique Chardon wrote:
Bonjour, pouvez vous me dire ce que deviennent les 4 mailles qui portent un marqueur ? Rien n'est mentionné à leur sujet dans les explications !? Vont-elles rejoindre les mailles des manches ou bien dos et devant ? Merci pour votre réponse. Dominique
01.12.2023 - 14:19DROPS Design answered:
Bonjour Mme Chardon, suivez attentivement le décompte des mailles pour la taille que vous tricotez lors de la division, vous pouvez retirer les marqueurs car vous n'en avez plus besoin. En fonction des modèles et de la taille, les mailles des raglans et les augmentations sont parfois affectées à une autre partie que celle de l'empiècement, ainsi, seul le nombre de mailles compte pour bien avoir les mesures finales correctes. Bon tricot!
01.12.2023 - 15:41Kristin Lie Owren wrote:
Hei. Skal vrangborden i halsen strikkes på rundpinne 4 som det står under bærestykket, eller skal man bruke rundpinne 3,5?
20.02.2023 - 14:28DROPS Design answered:
Hej Kristin, vrangborden i halsen strikkes på pind 4 :)
23.02.2023 - 15:17Silvia wrote:
Al momento di dividere le maniche dal corpo, come divido per due le 5 maglie fra un gettato e l'altro degli aumenti? Grazie
23.01.2023 - 09:57DROPS Design answered:
Buonasera Silvia, per dividere il corpo e le maniche deve seguire le istruzioni riportate. Buon lavoro!
23.01.2023 - 21:51Rebecca wrote:
Hallo, Ich würde gerne den Kragen etwas schmaler machen, ist das möglich? Nehme ich dann zu Beginn zb 4 Maschen und nehme dann nach dem Kragen die 4 Maschen dazu ?
04.10.2022 - 15:10DROPS Design answered:
Liebe Rebecca, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen; gerne können Sie aber Ihr DROPS Laden fragen, ob Sie Ihnen damit helfen können. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!
04.10.2022 - 16:19Mevr Melinda Elen wrote:
Beste team, als ik deze trui in 1 kleur zou breien, hoeveel garen zou ik dan nodig hebben? Dankjewel
19.03.2022 - 23:46Dawn Hollohan wrote:
I can't seem to be able to read the yarn requirements table properly. I want to make the largest size and the requirements seem to be the same as the smallest size. MATERIALS: DROPS SKY from Garnstudio (belongs to yarn group B) 100-100-100-100-100 g color 12, jeans blue 50-50-50-50-50 g color 07, light sea green 50-50-50-50-50 g color 10, heather 50-50-50-50-50 g color 14, light lilac 50-50-50-50-50 g color 13, light jeans blue Thanks Dawn
18.07.2021 - 13:28DROPS Design answered:
Dear Mrs Hollohan, this is due to the stripes and the length of the yarn - see DROPS Sky here: 50 g = approx. 190 m/208yds. Happy knitting!
19.07.2021 - 08:59Madeleine wrote:
Sur ce modèle, il y a une erreur à la fin du travail pour la taille 5/6 ans. Il est indiqué pour le dos/devant de continuer avec les aiguilles 3.5 en côtes 2/2 pendant 35 cm. Je crois que la bonne longueur est 25 cm.
15.07.2021 - 04:20Daniela Marini wrote:
Si può lavorare un maglione per bambini top down chiuso con i ferri dritti? e se si come ? Grazie Daniela Marini
12.03.2021 - 12:52DROPS Design answered:
Buonasera Daniela, questo modello è lavorato in tondo con i ferri circolari, ma sul nostro sito può trovare dei modelli da bambino lavorati con i ferri dritti. Buon lavoro!
12.03.2021 - 22:43Olivia wrote:
Error found in sleeve stitch count, it should read "knit up 1 new stitch in each of the 6 new stitches on the body (= 50-52-54-54-56 stitches)" not "knit up 1 new stitch in each of the 6 new stitches on the body (= 50-52-54-55-58 stitches)"
23.01.2021 - 23:34DROPS Design answered:
Dear Olivia, thanks for your feedback, total number of sts is right, in fact, that's the number of sts cast on/picked up under sleeve that was wrong, there should be 6-6-6-8-8 sts - pattern will be edited asap, thanks again for noticing. Happy knitting!
25.01.2021 - 12:58Monika wrote:
Hallo! Ich stricke die Größe für ein 12 jähriges Kind und komme mit den 50 g für die Streifen leider nicht auf 10 cm Höhe. Musste schon bei ca.8,5 cm mit der nächsten Farbe weiterstricken. Maschenprobe stimmt bei mir. Machenanzahl auch und der Pulli misst nun an der Taille ca.45 cm Breite.
21.11.2020 - 08:18