DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide |
638.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel 75% Ull, 25% Polyamide |
682.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide |
726.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide 638.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel print 75% Ull, 25% Polyamide 682.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide 726.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Georgy Girl |
|||||||
|
|
||||||
Prjónaðar buxur úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXL.
DROPS 205-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (á við um skálmar): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerkin. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1: Stærð M og XL: Aukið út hvoru megin við 3 lykkjur slétt mitt að framan og mitt að aftan. Stærð S, L og XXL: Aukið út hvoru megin við 2 lykkjur slétt mitt að framan og mitt að aftan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 83 lykkjur) mínus lykkjur í A.1 (= 8 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 18,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 19. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. RENDUR: Allar rendur eru prjónaðar með 2 þráðum Fabel. 17-18-19-20-21 cm með 1 þræði í litnum grænn/turkos og 1 þræði í litnum strönd. 7 cm með 1 þræði í litnum strönd og 1 þræði í litnum þokumistur. 17 cm með 1 þræði í litnum þokumistur og 1 þræði í litnum lavender. 7 cm með 1 þræði í litnum lavender og 1 þræði í litnum strönd. 17 cm með 1 þræði í litnum strönd og 1 þræði í litnum bleikur draumur. 17 cm með 1 þræði í litnum bleikur draumur og 1 þræði í litnum lavender. 7 cm með 1 þræði í litnum lavender og 1 þræði í litnum strönd. Prjónið síðan með 1 þræði í litnum strönd og 1 þræði í litnum grænn/turkos til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. BUXUR: Fitjið upp 142-156-170-184-198 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði í litnum strönd og 1 þræði í litnum grænn/turkos (= 2 þræðir). Prjónið síðan 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð, prjónamerki fylgir með í stykkinu. Prjónið nú RENDUR- sjá útskýringu að ofan og prjónið stroff þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 8 lykkjur, 1 lykkja slétt, 5 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 8-9-10-11-12 sinnum, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 8 lykkjur, 1 lykkja slétt, 5 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 8-9-10-11-12 sinnum, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir næstu 8 lykkjur, sléttar lykkjur yfir næstu 63-70-77-84-91 lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman, A.1 yfir næstu 8 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-70-77-84-91 lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 140-154-168-182-196 lykkjur. Nú eru 62-69-76-83-90 lykkjur á milli hverra A.1 í hvorri hlið. Klippið frá. Setjið eitt prjónamerki eftir fyrstu 31-34-38-41-45 lykkjur í sléttprjóni eftir mynstureiningu A.1. Þetta er núna byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón með A.1 í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 11 cm prjónið upphækkun þannig að buxurnar verið aðeins hærri að aftan en að framan. Byrjið mitt að aftan frá réttu og prjónið þannig: Prjónið 10 lykkjur frá prjónamerki mitt að aftan, snúið stykkinu, takið fyrstu lykkjuna af prjóni (til að koma í veg fyrir göt) og prjónið til baka að 10 lykkjum fram hjá prjónamerki í hinni hliðinni, snúið stykkinu, * lyftið fyrstu lykkjunni af prjóni og prjónið 10 lykkjur lengra en í fyrra skipti *, prjónið frá *-* þar til 20-14-28-22-16 lykkjur eru eftir mitt að framan. Snúið, en þegar þú kemur í síðasta sinni að réttu á stykki, prjónaðu þá hringinn yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14-14-15-15 cm mitt að framan er aukið út að framan og að aftan – sjá ÚTAUKNING! Aukið út 2 lykkjur að framan og að aftan í 5.-5.-6.-6.-7. hverri umferð alls 7 sinnum = 168-182-196-210-224 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-29-31-33-35 cm mitt að framan eru felldar af fyrstu 4-4-5-5-6 lykkjur, setjið næstu 77-83-89-95-101 lykkjur á þráð (= skálm), látið næstu 7-8-9-10-11 lykkjur vera eftir á prjóni (= klofbót), setjið næstu 77-83-89-95-101 lykkjur á þráð (= skálm), fellið af 3-4-4-5-5 lykkjur sem eftir eru. Prjónið síðan 9-10-11-12-13 cm sléttprjón yfir 7-8-9-10-11 lykkjur fyrir klofbót, fellið af og festið klofbótina við 7-8-9-10-11 lykkjur sem felldar voru af mitt að aftan. SKÁLM: Setjið 77-83-89-95-101 lykkjur frá öðrum þræði á stuttan hringprjón 4, takið að auki upp 16-18-18-20-22 lykkjur meðfram annarri hlið á klofbót = 93-101-107-115-123 lykkjur. Prjónið síðan A.1 í hlið eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Setjið 1 prjónamerki innan á skálm (þ.e.a.s. mitt í lykkjurnar sem teknar voru upp meðfram klofbót). Þegar skálmin mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 14.-10.-8.-6.-5. hverri umferð alls 5-7-8-11-13 sinnum = 83-87-91-93-97 lykkjur. Prjónið áfram þar til skálmin mælist ca 38 cm. Nú er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 (en ekki yfir lykkjur í A.1 í hlið) = 87-91-95-97-101 lykkjur. Endurtakið útaukningu með 4 lykkjur þegar stykkið mælist 43 cm = 91-95-99-101-105 lykkjur. Prjónið áfram þar til skálmin mælist ca 76-77-78-79-80 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir skálmar og klofbót – mátið e.t.v. til að lengdin verði passleg. Nú er eftir stroff ca 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjurnar í A.1) = 100-104-108-110-114 lykkjur. Skiptið yfir í sokkaprjóna 3. Prjónið fram að A.1. Nú er stroffið prjónað (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), en passið uppá að stroffið gangi upp allan hringinn og að það verði sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í A.1. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið aðra skálm alveg eins – stillið af eftir fyrri skálm. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (41)
Emanuela Ceretta wrote:
Vorrei lavorare questi pantaloni con un filo solo, anziché co due. Come posso regolarmi col n.di ferri,i punti di inizio e i vari aumenti? Grazie
11.01.2023 - 18:41DROPS Design answered:
Buonasera Emanuela, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
12.01.2023 - 21:22Marie Jansson wrote:
Hej! Mitt barnbarn vill så gärna ha såna byxor. Hon är nio år och har storlek 134. Hur gör man för att anpassa mönstret till mindre storlek? Tacksam för svar och hjälp! Marie
10.01.2023 - 21:06DROPS Design answered:
Hej Marie, vi kan desværre ikke regne opskriften om. Men du måler hoftemål. Den mindste størrelse bliver 142m/19= 74 cm i omkreds. Længden kan du let justere efter dit barnebarn :)
12.01.2023 - 08:34Sylvia wrote:
Hallo, ist es möglich, eine Skizze zu der Anleitung zu bekommen? Gruß Sylvia
22.03.2022 - 19:15DROPS Design answered:
Liebe Sylvia, wir haben leider keine Skizze zu diesem Modell. Unter "GRÖSSE" oben an der Seite finden Sie einigen Maßen, die Ihnen helfen können. Viel Spaß beim stricken!
23.03.2022 - 07:34Vivian Voigt wrote:
Liebes Team, bei folgender Schritt: "Es sind nun je 62-69-76-83-90 Rechts-Maschen zwischen A.1 an beiden Seiten. Den Faden abschneiden. 1 Markierungsfaden nach den ersten glatt rechten 31-34-38-41-45 Maschen nach einem Rapport A.1 anbringen. Dies ist nun der Rundenbeginn. Dann glatt rechts weiterstricken, mit A.1 an beiden Seiten wie zuvor". Ich verstehe nicht, wie ich weiter stricke, wenn ich den Faden abgeschnitten habe? Vielen Dank und Grüße
22.02.2022 - 05:04DROPS Design answered:
Liebe Frau Volgt, die Runden beginnen jetzt nach diesem Markierungsfaden (= nach den ersten glatt rechten 31-34-38-41-45 Maschen nach einem Rapport A.1). Viel Spaß beim stricken!
22.02.2022 - 09:47Anika wrote:
Dear All! I think there is an error in the pattern. In you are knitting size S, it tells you in line 5 to repeat the 2x knit and 5x curl 8 times. If you do that, you end up with 156 stitches. Shouldn‘t it say „ repeat 7 times? Kind regards Anika
13.11.2021 - 11:26Mira Akseldatter Systad wrote:
Hei! På ØKETIPS-1 står det at jeg skal øke på hver side av 3 masker rett midt foran og midt bak. Videre etter 5 runder, skal man øke 2 masker på nytt igjen foran og bak. Skal dette da gjøres fortsatt på hver side av de 3 maskene rett midt foran, eller skal disse økes etter den nye masken? Takk på forrhånd :-) Mvh Mira
01.07.2021 - 18:38DROPS Design answered:
Hei Mira. Hver gang det økes skal det økes på hver side av de midterste 3 maskene. Altså, slik du skriver først( Skal dette da gjøres fortsatt på hver side av de 3 maskene rett midt foran). mvh DROPS design
05.07.2021 - 14:02Maja wrote:
Hej, jeg er i tvivl om hvor man måler hoftemålet. Er det midt på numsen? eller over numsen, lige før hoftebenet slutter?
07.06.2021 - 12:45DROPS Design answered:
Hej Maja, ja det er lige før hoftebenet slutter :)
11.06.2021 - 08:24Jannie Wouters wrote:
Ik zou graag met 1 draad breien, b.v. met Nepal, hoeveel garen heb ik dan nodig voor maat L ?
06.04.2021 - 18:54DROPS Design answered:
Dag Jannie,
Dit kun je berekenen door alle hoeveelheden bij elkaar op te tellen en dan met de garenvervanger uitrekenen, hoeveel je van een vervangend garen nodig hebt. Ik zie dat hij trouwens bij de garenvervanger geen Nepal aangeeft, maar wel bijvoorbeeld Big Merino. Dit kun je weer omrekenen met de looplengte. Dus je rekent de totale looplengte van Big Merino uit door het aantal bollen keer de looplengte te doen. Dat getal deel je weer door de looplengte van Nepal om het aantal bollen te weten. Daarnaast heb je waarschijnlijk iets minder nodig als je het kledingstuk uit één kleur maakt.
11.04.2021 - 13:55Jose Munster wrote:
Ik kan het patroon van deze broek niet vinden, hij staat niet onder het patroon.
06.02.2021 - 18:44DROPS Design answered:
Dag José,
Het patroon staat onder de materialenlijst (eerst zie je dan 'Instructies voor het patroon' staan en daaronder bij 'Begin het werk hier' start het patroon. Je kunt het patroon afdrukken met de knop 'Afdrukken', te vinden onderaan de materialenlijst.
11.02.2021 - 13:54Marie wrote:
J'ai compris, c'est parfait ! Merci et belle journée.
16.11.2020 - 08:45