Charming Catch |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með laskalínu úr DROPS Cotton Merrino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 211-7 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul í umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að hekla 7. og 8. hverja lykkju í 1 lykkju þannig: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er kantur í hálsmáli heklaður og berustykki. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, sem heklað er til loka hvert fyrir sig. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál þar sem lykkjum er fækkað þannig að hálsmálið verði stífara. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 88-88-88-96-96-104 loftlykkjur með Cotton Mereino með heklunál 4,5 – sjá LOFTLYKKJA og tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Nú er mynstrið heklað þannig: Heklið A.1 alls 22-22-22-24-24-26 sinnum í umferð. Setjið eitt prjónamerki í 4-4-4-5-5-5 loftlykkjuboga í umferð (= á bakstykki), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Heklið mynstur hringinn þannig: Heklið A.2a um fyrsta loftlykkjuboga (= útaukning laskalína), A.3 yfir næstu 6-6-6-7-7-8 loftlykkjuboga (= bakstykki), A.4 um næsta loftlykkjuboga (= útaukning fyrir laskalínu), A.3 yfir næstu 3 loftlykkjuboga (= hægri ermi), A.4 um næsta loftlykkjuboga (= útaukning laskalína), A.3 yfir næstu 6-6-6-7-7-8 loftlykkjuboga (= framstykki), A.4 um næsta loftlykkjuboga (= útaukning laskalína), A.3 yfir næstu 3 loftlykkjuboga (= vinstri ermi), endið með A.2b. Haldið svona áfram hringinn þar til 6 umferðirnar í mynsturteikningu hafa verið heklaðar til loka á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Síðan er útaukningin endurtekin og 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu alveg eins 0-1-2-2-3-4 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. þar til heklaðar hafa verið alls 6-8-10-10-12-14 umferðir, talið frá umferð með ör í mynsturteikningu) – ATH: Í stærð S er útaukningu lokið þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka 1 sinni á hæðina. Nú eru 42-50-58-60-68-78 loftlykkjubogar í umferð + 1 loftlykkjubogi í hverri laskalínu (= 4 loftlykkjubogar) = alls 46-54-62-64-72-82 loftlykkjubogar. Nú er mynstrið heklað og aukið er út þannig: Heklið A.5a (= útaukning laskalína), A.3 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan næstu útaukningu fyrir laskalínu, A.6 (= útaukning laskalína), A.3 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan næstu útaukningu fyrir laskalínu, A.6 (= útaukning laskalína), A.3 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan næstu útaukningu fyrir laskalínu, A.6 (= útaukning laskalína), A.3 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir í umferð og endið með A.5b. Haldið svona áfram hringinn þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka. Nú eru 50-58-66-68-76-86 loftlykkjubogar í umferð. Nú er mynstrið heklað eins og áður án þess að auka út fyrir laskalínu. Þ.e.a.s. endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.3 þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu. Nú er eftir 1 cm á berustykki til loka. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= byrjun á umferð), heklið umferð með ör í A.3 yfir næstu 15-17-19-20-22-25 loftlykkjuboga (= bakstykki), hoppið yfir næstu 9-11-13-13-15-17 loftlykkjuboga (= ermi), heklið 8-8-8-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.3 yfir næstu 16-18-20-21-23-26 loftlykkjuboga (= framstykki), hoppið yfir næstu 9-11-13-13-15-17 loftlykkjuboga (= ermi), heklið 8-8-8-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.3 um síðustu loftlykkju í umferð, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú er mynstrið heklað í hring þannig: Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, haldið áfram með mynstur eins og áður (þ.e.a.s. A.3) hringinn í umferð, en yfir 8 lausar loftlykkjur í hlið undir ermi, heklið 2 mynstureiningar A.3 = 36-40-44-46-50-56 mynstureiningar A.3 í umferð. Haldið svona áfram í hring og endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.3 þar til stykkið mælist ca 30 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju (næst síðasta umferð í A.3). Öll peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. ERMI: Byrjið frá réttu og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu af 8 loftlykkjum í hlið undir ermi. Byrjið umferð með ör í A.3 og heklið 2 mynstureiningar um 8 loftlykkjurnar undir ermi, haldið síðan áfram hringinn með A.3 – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 11-13-15-15-17-19 loftlykkjubogar. Haldið svona áfram hringinn og endurtakið síðustu 2 umferðir í A.3 þar til ermin mælist 15-13-12-10-9-7 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju (næst síðasta umferð í A.3). Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju, heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju hringinn í umferð jafnframt er fækkað um 11-8-5-10-6-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 77-80-83-86-90-93 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Lorna wrote:
So I’ve worked until dividing for the sleeves but my stitches are all slanted so the sleeves are in totally the wrong place. It doesn’t look straight like the picture. I haven’t changed my hook or tension and have had the correct number of stitches/spaces throughout. What am I doing wrong? Any help would be appreciated.
10.10.2022 - 15:26DROPS Design answered:
Dear Lorna, after division you should now work pattern as before following now only A.3 over all stitches - adjust the beginning of the round and the first round so that pattern will not be displaced. Happy crocheting!
10.10.2022 - 16:07Marianne Spruijt wrote:
Ik begrijp niet helemaal wat jullie bedoelen bij A2b: bij de eerste keer zijn er niet genoeg steken gemeerderd om A6b te haken (klopt)maar dan snap ik het niet wat bedoeld word met : verplaats op het einde de toer zoals uitgelegd op het begin van A2a?????
12.07.2022 - 12:54DROPS Design answered:
Dag Marianne,
Het staat inderdaad niet goed uitgelegd bij dit symbool. De bedoeling is dat je gewoon verder haakt met A.2a en pas op de volgende toer (wanneer er genoeg steken zijn) begint met A.2b. De omschrijving van het symbool heb ik inmiddels aangepast. Hopelijk is het zo duidelijk.
17.07.2022 - 12:31François wrote:
Bonjour, dans l'explication, au chapitre empiècement après les augmentations pour diviser le devant et derrière des manches, vous dites de faire 8 arceaux sous la manche et pour la deuxième manche vous dites 8 mailles en l'air. Je pense qu'il y a une erreur sur l'une des deux. Laquelle faut-il retenir 8 mailles ou 8 arceaux ? Merci de me renseigner. Christel
28.09.2020 - 11:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme François, il faut faire 8 mailles en l'air sous les 2 manches, merci pour votre retour, les explications vont être corrigées de suite. Bon crochet!
28.09.2020 - 12:28Lucia wrote:
Buongiorno, esiste una versione cardigan di questo modello? Grazie❣
24.05.2020 - 15:05DROPS Design answered:
Buongiorno Lucia. Purtroppo per questo modello non è prevista la versione cardigan. A questo link trova altri nostri cardigan all'uncinetto, che potrebbero piacerle. Buon lavoro!
24.05.2020 - 17:33Sonia wrote:
Bonjour. Avez-vous des patrons au crochet pour gauchères, en français? Les croquis pour droitières sont trop difficiles à suivre... J'en cherche depuis des années et je n'ai jamais trouvé... :-( Merci!
18.05.2020 - 16:08DROPS Design answered:
Bonjour Sonia, nous sommes toutes droitières, je suis désolée, en revanche, cette leçon explique comment lire un diagramme et vous permettre peut-être de les adapter à votre façon de faire? Bonne chance!
19.05.2020 - 07:37Salky wrote:
Can anyone help with pattern? I'm ok until yoke! ( I think)
09.05.2020 - 17:58DROPS Design answered:
Dear Salky, you are welcome to ask your question here - and/or request individual assistance from the store where you bought the yarn. Happy crocheting!
11.05.2020 - 09:33Susanne Glans wrote:
Super modern und luftig. Anleitung gerne diesen Sommer
10.04.2020 - 16:24Stefanie Spira wrote:
Sieht wirklich klassisch schön aus, aber damit ich das Teil im Sommer noch tragen kann, bräuchte ich langsam eine Anleitung. Im Voraus lieben Dank.
07.04.2020 - 08:56Angelica Neef wrote:
Why tooks the pattern so long
30.03.2020 - 10:40Anne Helen Jacobsen wrote:
Nydelig. Flott sommerplagg. Kommer til å hekle denne.
26.02.2020 - 08:13