Rainbow the Unicorn |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður einhyrningur í garðaprjóni úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Children 37-18 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EINHYRNINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Einhyrningurinn er prjónaður í einu stykki. Efra stykkið er prjónað frá höfði að baki og síðan er neðra stykkið prjónað frá baki að höfði. Stykkið er saumað saman meðfram hvorri hlið og neðan á höfði. Hornið er prjónað í lokin. HÖFUÐ: Fitjið upp 12 lykkjur á hringprjón 3 með litnum kirsuber. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út þannig: Prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkja slétt = 23 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! Stykkið er síðan prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón, prjónið áfram með litnum bleikur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FRAMFÆTUR (að ofan): Þegar stykkið mælist 5 cm, fitjið upp 21 lykkju í lok 2 næstu umferða fyrir framfætur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 65 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út þannig: Prjónið 14 lykkjur slétt, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið 27 lykkjur slétt, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum og endið með 14 lykkjur slétt = 75 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! EYRU OG HORN: Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir framfætur, fitjið upp lykkjur fyrir eyru og prjónið 1 gat fyrir horn, í næstu umferð frá réttu þannig: FYRRA EYRA: Prjóni 35 lykkjur slétt, fitjið upp 8 lykkjur fyrir eyra, prjónið 2 lykkjur slétt, snúið stykkinu = 45 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir eyrum þannig: Prjónið 35 lykkjur slétt, fellið af 8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt = 35 lykkjur. Prjónið fram og til baka yfir þessar lykkjur þar til stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir fætur. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 13 lykkjurnar fyrir höfði og prjónaðar sléttar lykkjur út umferðina = 24 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 14 lykkjurnar fyrir fótum og prjónaðar sléttar lykkjur út umferðina = 10 lykkjur. SEINNA EYRA: Prjónið nú yfir lykkjurnar í hinni hliðinni frá réttu þannig: Fellið af fyrstu lykkju í toppi á höfði, prjónið 2 lykkjur slétt, fitjið upp 8 lykkjur fyrir eyra og prjónið síðustu 35 lykkjurnar slétt = 45 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir eyra þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, fellið af 8 lykkjur, prjónið 35 lykkjur slétt = 37 lykkjur. Prjónið fram og til baka yfir þessar lykkjur þar til stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir fætur, stillið af með hinni hliðinni. Í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrstu 13 lykkjurnar fyrir höfði og prjónaðar sléttar lykkjur út umferðina = 24 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 14 lykkjurnar fyrir fótum og prjónaðar sléttar lykkjur út umferðina = 10 lykkjur. BAK: Prjónið nú yfir allar lykkjur þannig: Prjónið áfram með þræði frá þar sem fyrra eyra endaði, frá réttu þannig: Þ.e.a.s. fyrstu 10 lykkjurnar eru prjónaðar slétt (= lykkjur frá fyrra eyra), fitjið upp 1 nýja lykkju (mitt á baki) og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá seinna eyra = 21 lykkjur. Prjónið fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 8 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir framfótum. AFTURFÆTUR: Í lok 2 næstu umferða eru fitjaðar upp 14 nýjar lykkjur fyrir afturfætur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 49 lykkjur. Prjónið fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir afturfætur. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 14 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum (= 10 lykkjur færri) og endið með 15 lykkjur slétt = 39 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 7½ cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir afturfætur. Í byrjun á 2 næstu umferðum eru felldar af 13 lykkjur fyrir afturfætur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 13 lykkjur eftir fyrir maga. MAGI: Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 8 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir afturfætur. FRAMFÆTUR (að neðan): Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 13 lykkjur = 39 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 3½ cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir framfætur (að neðan). Fellið af með sléttum lykkjum. HORN: Prjónið upp 8 lykkjur í kringum op fyrir horni með litnum sinnep, þar sem höfuðið skiptist áður en lykkjur voru fellda af fyrir höfði. Prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 3 cm. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að og festið vel. Saumið hornið saman í hlið í ystu lykkjubogana með litnum sinnep. FRÁGANGUR: Frágangurinn er gerður með litnum bleikur. Brjótið uppá einhyrninginn þannig að hann verði tvöfaldur og saumið saman í hlið, í ystu lykkjubogana/umferðina. Fyllið einhyrninginn með vatti og saumið saman aftan í hnakka í ysta lið í ystu umferð. Saumið út augu með litnum svartur. FAX: Faxið er fest mitt ofan á höfði í hnakka. Festið lykkjur í röð meðfram saum aftan í hnakka þannig: Klippið 1 þráð í litnum sinnep, 1 þráð í litnum blár, 1 þráð í litnum kirsuber og 1 þráð í litnum bleikur ca 28 cm (= 4 þræðir). Leggið alla 4 þræðina saman tvöfalda, þræðið inn lykkjuna í gegnum 2. lykkju á eftir horni. Dragið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Festið 3 svona lykkjur niður yfir hnakka á einhyrningnum. Ca 1 lykkja í 3. hverja lykkju. Að lokum er hægt að klippa endana þannig að þeir verði jafn langir. TAGL: Klippið 2 þræði í litnum sinnep, 2 þræði í litnum blár, 2 þræði í litnum kirsuber og 1 þráð í litnum bleikur ca 30 cm, leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjuna í gegnum 1 lykkju aftan á einhyrningnum. Dragið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Að lokum er hægt að klippa endana þannig að þeir verði jafn langir. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Emilie wrote:
Bonjour , je ne comprends pas après l'oreille n°1 doit on couper le fil ? Ce n'est pas précisé dans les explications... Merci
27.04.2024 - 09:55DROPS Design answered:
Bonjour Emilie, vous ne coupez pas le fil, vous rabattez les mailles de l'oreille ainsi: tricotez les 35 premières mailles en début de rang sur l'endroit comme avant, vous rabattez les 8 mailles suivantes et tricotez 2 mailles endroit (la 1ère de ces m est la dernière des 8 m rabattues) = vous avez maintenant 37 m sur votre aiguille, vous tricotez ces 37 m et rabattez ensuite les 13 premières mailles sur l'envers puis les 14 premiers mailles sur l'endroit et tricotez ensuite l'autre partie de la tête pour la 2ème oreille. Bon tricot!
29.04.2024 - 08:58Hanna wrote:
Jeg forstår ikke hvordan man går fra forben til horn og ører. Hvor er det hullet til hornet skal være og hvordan strikker jeg rundt om åbningen?
10.03.2024 - 09:44DROPS Design answered:
Hei Hanna. Du har allerede strikket litt av forbeina før du starter med ørene og "hullet" til hornet. Når du har strikket etter forklaringen til 1. øre og 2. øre har du 20 masker igjen og et "hull" / åpning. Det er dette hullet det skal plukkes opp masker og strikkes et horn rundt, men dette gjøres helt til slutt, se under HORN. mvh DROPS Design
18.03.2024 - 11:11Inés wrote:
Hola, es posible que la explicación de las patas traseras esté mal dada? Pues de acuerdo al patrón esa pieza es doble, pues ahí justamente se realiza el doblez del trabajo... en cambio la indicación que se hace en la cantidad de centímetros pareciera no corresponder.. Si acaso fuera un problema de interpretación errada de mi parte, pido disculpas. De todas maneras el unicornio está muy lindo y seguro lograré terminarlo. Gracias
29.09.2023 - 23:19DROPS Design answered:
Hola Inés, es correcto; si te fijas en las patas delanteras tienen un ancho de 3.5cm, mientras que las traseras son 7.5cm. Por lo tanto, doblas las patas traseras para obtener aprox. un ancho de 3.5cm en ambos lados de las patas traseras. Mientras que en las patas delanteras trabajas 2 partes de 3.5cm que luego se cosen juntas.
09.10.2023 - 00:52Gudrun Carlsson wrote:
När jag stickat högra örat på enhörningen ska ja ta av garnet då innan jag stickar vänster öra och sida? Jag har tre maskor i mitten och ska maska av den första. Ska jag bara fortsätta med samma tråd och de dras ihop?
06.04.2021 - 11:39DROPS Design answered:
Hei Gudrun. Ikke klipp tråden fra 1. øre, men bruk f.eks den andre trådenden av nøstet til å strikke 2. øre. Når ryggen skal strikkes skal det strikkes videre med tråden fra der første øret avsluttet. mvh DROPS design
19.04.2021 - 11:51Teresa wrote:
Salve, dopo aver lavorato il primo orecchio il secondo viene lavorato separatamente? o il lavoro deve essere continuo senza tagliare il filo grazie!!
31.01.2021 - 12:40DROPS Design answered:
Buongiorno Teresa, deve lavorare dall'altro lato. Buon lavoro!
31.01.2021 - 14:58