Fjord Mosaic Set |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar með norrænu mynstri úr DROPS Nepal. Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri úr DROPS Nepal. Stærð 35 – 43.
DROPS 214-54 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.2 og A.x og A.y). Sokkar: Sjá mynsturteikningu A.5 til A.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni, nema A.1 sem er prjónað í stroffprjóni. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 8. og 9. hver lykkja slétt saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.6 þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.6 þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.6 þar til 3-4-4 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.6 þar til 3-4-4 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 9-9-11 lykkjur eru eftir í umferð. ÚRTAKA (á við um tá á sokkum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig: Byrjið 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman með gagnstæðum lit við lykkju með prjónamerki, prjónið lykkjuna með prjónamerki eins og áður, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með gagnstæðum lit á lykkju með prjónamerki. Fækkið lykkjum svona við hitt prjónamerkið (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 4 lykkjur færri í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá úlnlið og upp. Lykkjur eru auknar út fyrir op fyrir þumal eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar útaukningu fyrir fyrir þumalopi er lokið, eru þumallykkjurnar settar á þráð áður en höndin er prjónuð til loka. Síðan er þumallinn prjónaður. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 36-40 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum ljós blár. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með röndum eins og útskýrt er í A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár þar sem aukið er út um 4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Afgangur af vettlingum er prjónað í sléttprjóni eins og útskýrt er að neðan. Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð er A.3 prjónað yfir 3 svörtu ferningana í A.2. Aukið út fyrir þumalopi eins og útskýrt er í A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hafa verið auknar út 8 lykkjur í A.3 og A.3 nær nú yfir 11 lykkjur. Í næstu umferð eru 11 lykkjur í A.3 settar á þráð og fitjaðar eru upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði (fitjið upp með litum eins og útskýrt er í mynsturteikningu) = 40-44 lykkjur. Haldið áfram með A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 8 lykkjur eftir. Klippið þræðina frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 11 lykkjur af þræði á sokkaprjón 4 og prjónið þessar 11 lykkjur eins og fyrstu 11 lykkjur í fyrstu umferð í A.4 (= framhlið á þumli) – prjónið að auki upp 9 lykkjur í kringum opið fyrir þumal, þ.e.a.s. prjónið upp 2 lykkjur í hverri hlið og 5 lykkjur í 3 lykkjur sem fitjaðar voru upp (þessar 9 lykkjur eru prjónaðar eins og síðustu 9 lykkjurnar í fyrstu umferð í A.4 = bakhlið á þumli) = 20 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.4 hringinn. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, eru 4 lykkjur eftir. Klippið þræðina frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið vinstri vettling á sama hátt og hægri vettlingur, en nú er þumallinn prjónaður í gagnstæðri hlið – sjá mynsturteikningu A.x sem sýnir hvar þumallinn er prjónaður í mynstri. Þegar A.x hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.y til loka. Prjónið þumal á sama hátt og á hægri vettlingi. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum ljós blár. Skiptið yfir í litninn ljós grár og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.5 yfir fyrstu 30 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.5, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið – þessar 31 lykkjur eru mitt framan á sokknum, prjónið A.6 yfir næstu 14-16-18 lykkjur, prjónið síðan síðustu lykkju sem fyrstu lykkju í A.6, þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið – þessar 15-17-19 lykkjur eru mitt aftan á sokknum. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina í öllum stærðum, setjið 31 lykkjur mitt framan á sokknum (þ.e.a.s. lykkjur í A.5) á þráð = 15-17-19 lykkjur eftir fyrir hæl. Haldið áfram með A.6 fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í síðustu umferð – prjónamerkið er notað síðar þegar mæla á lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.6 yfir 9-9-11 hællykkjur, prjónið upp 8-10-12 lykkjur meðfram hlið á hæl (með litum í A.6), haldið áfram með A.5 eins og áður yfir 31 lykkjur frá þræði mitt framan á sokknum og prjónið upp 8-10-12 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum (með litum í A.6) = 56-60-66 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.5 eins og áður yfir 31 lykkjur mitt framan á sokknum og A.6 yfir þær lykkjur sem eftir eru aftan á sokknum. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 31 lykkjur framan á sokknum – fækkið lykkjum innan við ystu lykkju í A.6 eins og útskýrt er að neðan (byrjið eftir 31 lykkjur framan á sokknum): Prjónið fyrstu lykkju í A.6 eins og áður (þessi lykkja á ekki að vera með í úrtöku, en heldur áfram í litnum ljós blár), prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með litnum ljós grár, prjónið A.6 þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.5, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman með litnum ljós grár og prjónið síðustu lykkju í A.6 eins og áður (þessi lykkja á ekki að vera með í úrtöku, en heldur áfram í litnum ljós blár). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-6-6 sinnum í hvori hlið = 48-48-54 lykkjur eftir. Haldið áfram með A.5 og A.6 eins og áður þar til stykkið mælist ca 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir ca 4-4-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd, en endið eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina í A.5. Prjónið síðan A.6 hringinn yfir allar lykkjur, en stillið af að mynstrið haldi fallega áfram yfir lykkjur undir fæti. JAFNFRAMT í 2. umferð er sett 1 prjónamerki í miðjulykkju í hvorri hlið þannig að það verða 23-23-27 lykkjur ofan á fæti og 23-23-25 lykkjur undir fæti (á milli lykkja með prjónamerki í). Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚRTAKA = 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 9-9-10 sinnum = 12-12-14 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-7 lykkjur eftir. Klippið þræðina frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Mette Marthinsen wrote:
Jeg strikket disse vottene i s/m og m/l, men hvorfor er det ikke to mønster til tommel? Votter i to str, men tommel i en str, det er merkelig. Jeg strikket tommel i m/l på pinne 4,5 for å få den større, men det burde være mønster i to str.
13.12.2023 - 06:38Hanne wrote:
Jeg synes, at der mangler forklaring/video til hvordan man stikker hælen med de lodrette striber, altså jeg ønsker tydeligere forklaring til denne til hælen i "fjord Mosaik"
20.02.2023 - 22:52DROPS Design answered:
Hej Hanne, du finder forklaringen til hælindtagningen i starten af opskriften, ovenover vanterne :)
23.02.2023 - 15:43Bettina Moth Kej wrote:
Der er kun Indtagningssymboler på vanterne. Der må mangle udtagningssymbol/ forklaring til timmelfinger udtagning?!?!?!?\r\nHjælp!!!
06.02.2023 - 20:15DROPS Design answered:
Hej Bettina, udtagningerne er omslagene du finder i diagram A.3 til tommelfingeren - symbolteksten er nu rettet, tak for info :)
08.02.2023 - 07:34Patricia wrote:
Hello! I am at the heel decrease for my first sock and a bit confused. When I get to 5 stitches remaining, slip one stitch, knit 1, then pass the slipped stitch back over, what do I do with the remaining 3 stitches? Also, how is this decreasing my stitches to 9 on the needle (I currently have 17)? Thanks for sharing so many beautiful, free patterns!
05.02.2022 - 03:02DROPS Design answered:
Dear Patricia, you turn the work without working the remaining 3 stitches; these are called short rows. You decrease once in each row, but you also stop working 2 or 3 stitches on each row, because you turn before working them, so you will decrease up to 9 stitches faster. Happy knitting!
05.02.2022 - 19:33Helene Rasmussen wrote:
Der er billede af sokker men ingen opskrift, kun på vanter,men dem er der ikke billede af. Er det ikke en fejl?
11.09.2021 - 01:48DROPS Design answered:
Hej Helene. Det är opskrift på både sokker och vanter. Först kommer vanter och sedan sokker. Mvh DROPS Design
16.09.2021 - 13:50Laura wrote:
Buongiorno, Non capisco cosa vuol dire: “ lavorare fino alla lunghezza desiderata, MA FINIRE DOPO MEZZA E UN’INTERA RIPETIZIONE DI A5 IN ALTEZZA”. Cosa vuol dire “mezza e un’intera ripetizione”? Grazie
03.09.2021 - 15:25DROPS Design answered:
Buonasera Laura, abbiamo corretto il testo, deve lavorare una ripetizione intera del motivo o mezza. Buon lavoro!
04.09.2021 - 21:21Laura wrote:
Chiedo scusa, ma se lavoro 5 cm dopo aver messo in sospeso le maglie della calza davanti prima di fare le diminuzioni del tallone, poi come faccio a riprendere solo 8 maglie e chiudere il lavoro?
27.08.2021 - 18:36DROPS Design answered:
Buonasera Laura, deve lavorare 5 cm sulle maglie del tallone, poi continuare A.6 sulle 9 maglie del tallone, riprendere 8 maglie ai due lati del tallone e continuare A.5 sulle 31 maglie in sospeso. Buon lavoro!
29.08.2021 - 22:26Kathrine wrote:
Jeg strikket vottene etter oppskrift M/L str Vottene passet til min sønn på 9 år! De passet overhodet ikke til meg😡 Mønsteret er helt nydelig, og jeg gledet med til å få meg nye votter
11.04.2021 - 22:18Friederike wrote:
Danke für die Antwort! Was ich nicht ganz verstehe... Wenn ich in der 1.Reihe das Muster Stricke und gleichzeitig den Raglan zunehme.Stricke ich diese Maschen dann laut Muster ab oder werden die vom Muster ausgenommen?
17.02.2021 - 17:06DROPS Design answered:
Liebe Friederike, Sie meinen für den Pullover "Fjord Mosaic"? Bei der 1. Reihe bei der Passen stricken Sie die 1. Reihe von den Diagrammen und gleichzeitg nehmen Sie 1 Masche beidseitig von der M mit der Markierung, dh z. B. für die Ärmel in S: 1 Umschlag, 1. Reihe A.1, 1 Umschlag. Bei der 2. Runde stricken Sie diese 13 M wie im Diagram (= Umschläge werden mit perlgrau gestrickt). Bei der 3. Reihe stricken Sie: 1 Umschlag, 3. Reihe A.1, 1 Umschlag, bei der 4. Reihe stricken Sie diese 15 M wie im Diagram gezeigt. (A.2A und A.2C stricken Sie genauso wie bei A.1). Hilft es Ihnen weiter?
18.02.2021 - 08:39Eva Lodal wrote:
Ifølge forklaringen til diagrammet skal man tage ind på tommelen i stedet for ud ...
03.02.2021 - 16:48